Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007

Grófar aðgerðir!

Er þetta nú ekki of langt gengið, eða þetta kannski var bara óvart, ekki hefndaraðgerðir.


mbl.is Rafmagn komið á í Kópavogi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hætta að reykja, drekka meyra!

Þetta er klárlega góð lausn fyrir reykingarfólk, það þarf ekki að vera að taka neina reykingarpásur, bara fá sér einn.


SigfúsSig.

Skondið.

Rúnar Júl og María ganga í eina sæng í dag.

Rúnar og María hafa aldrei gifst í öll þessi ár en fyrir um tveimur árum síðan gaf Rúnar út þá yfirlýsingu á Fjörukránni í Hafnarfirði að hann ætlaði að biðja Maríu að giftast sér þegar hún yrði sextug.

Og viti menn og konur, María er sextug í dag og brúðkaup verður eins og Rúnar hafði tilkynnt þarna um árið.

Brúðkaup þeirra fer fram í Keflavíkur kirkju.

Skondið.

SigfúsSig.


Hver er mesta ástæða svifriksins?

SS124323Ég var að tala við skólabílstjóra dóttur minnar og spurði ég svona í gríni hvort svifrikið væri mikið í

dag, hló hann þá dátt þessi bílstjóri sem hefur verið í akstri í marga tugi ára og sagði; Þessir andsk#"$$%%& salta og sanda göturnar eins og þeir eigi lífið að leysa, við hverju búast þeir eginlega? tilvitnun lokið.

Mér er spurn, var þetta aðalega mold, sandur og saltmengun? og er verið að hræða fólk frá naglanotkun?

SigfúsSig.


Flokkar fyrir ALLA hagsmunahópa?

Ég var aðlesa grein morgunblaðsins Stefnt að stofnun nýs stjórnmálaafls: og varð hugsað til þess SS78345með hryllingi ef ALLIR hópar sem telja sínum málum ekki borgið fari í sérframboð.

Ég tek það skírt fram að ég tel mikið ávanta að öryrkjum, fötluðum og öldruðum séu við sama borð og "aðrir" og eins og vinir mínir og kunningjar vita hef ég alloft ljáð máls á því síðustu misserin, en er þetta rétta leiðin?SS543657457

Margir hagsmunahópar munu skoða þetta ef fram fer sem horfir.

 SS77567

Af hverju geta þeir ekki eignast forsvarsmenn í einhverju flokknum sem fyrir er? gæti það ekki verið sterkara? hvað er því til fyrirstöðu?

Það sem ég er að velta fyrir mér líka er að ef allir hópar sem telja sig beitta misrétti eða eru ekki ánægðir með kjör sín stofna nýjan stjórnmálaflokk, hvernig í ósköpunum verða kosningar á íslandi þá? 6 eða 8 flokka stjórn?

SS7675677 

Ég er hrifin af flestu sem stendur í fréttinni en spyr þig, er þetta rétta leiðin og er þetta eina leiðin?

SigfúsSig.


Ljótleika aðgerðir!

Á meðan þú leitar að aðferð til að ná því fegursta fram í andliti þínu og líkama þá: >Smella hér<

SigfúsSig.


Ræður atkvæðafjöldinn bak við vandana úrslitum?

SS4353245 Verkefni til úrlausnar á vanda fatlaðra barna hafa ávalt verið mörg og margvísleg og er einmitt góð grein um einn slíkan vanda á forsíðu Fréttblaðsins í dag, þetta8889797 óásættanlega vandamál er alsekki bara að koma upp núna, foreldrar eru bara orðnir þreyttir á hægagangi einhverra lausna.

Á síðastliðnu ári og eins á því sem nú er byrjað hefur þó nokkuð verið talað um að það sé veriðað taka á þessum vanda, ekki efast ég nú um það, en af hverju gengur það svona óskaplega hægt?

Talað er um að stefnt sé að því að þessi vandi verði komin í lag næsta haust, ég spyr nú bara AF HVERJU EKKI FYRR EN NÆSTA HAUST.

Hvað er það sem þarf að tefja lausn þessa máls?

Hvað í ósköpunum gerir þessa úrlausn svona erfiða?

Þarf að ráð fólk? já að sjálfsögðu.

Þarf húsnæði? já að sjálfsögðu og húsnæði eins og til dæmis hjá sveitarfélögunum á höfðuborgarsvæðinu upp á tugi ef ekki hundruð milljarða stendur ónotað, kostnaður fylgir þessum kofum þar sem kynda þarf húsin og tryggja, af hverju ekki að nýta þessa steypuhauga?

 

SS34534545Ég held að aðalástæða fyrir hægagangi á ýmsum málum fatlaðra og þá þá sérílagi fatlaðra barna sé að það eru svo FÁ ATKVÆÐ á bak við þessi börn.

Flokkar eru ekkert spenntir fyrir að gera þetta mál að einhverju baráttu máli, sumir eru jú með SUM þessara mála á stefnuskrá sinni, en smærri hópar í fötlunarmálum eru ávallt látin dragast, liggja á hakanum.

 

Ég er sem sagt forvitinn um það hvað það er sem er svona mikið mál að lausnin á dagvistun ALLRA fatlaðra barna þurfi að dragast þangað til þangað til þangað til osfrv., hvað er það sem stendur í vegi fyrir því að málið sé leyst einn tveir og snell.

 

Tekið skal fram að margt í þessum málum er í góðum farvegi að mínu mati, en hér erum við að tala um einstakt mál sem er vistanir veikra barna svo foreldri eða foreldrar geti til dæmis stunda vinnu og meyra lifað eins og "venjulegt fólk", einnig skal tekið fram að ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði en tel mig hafa vit á því einfaldlega vegna þess að ég hef verið þessari aðstöðu.

 

Pólitíkusar og ráðamenn sýnið fordæmi og þrýstið þessu máli í lag, STRAX.

SigfúsSig.


Rómeo og Júlíus

Það er svo sem ekki frásögu færandi að fara í leikhús, en frá þessu langar mig að segja.

Við Guðbjörg Sól (dóttir mín 7 ára) fórum í gær (sunnudag) á leikritið Rómeo og Júlíus byggt á sögu Arnþórs Sigurðssonar í leikstjórn Sigurjóns Kjartanssonar í Loftkastalanum sem Menntaskólinn við Sund er með til sýningar þessa dagana.

Alveg magnað hvað þessir "krakkar" geta gert úr algerri steypu, samt var söguþráðurinn alveg skiljanlegur og þar að auki bráskemmtilegur að mínu mati, og 7 ára prinsessan mín fannst þetta æðislegt en hávaðinn kannski heldur mikill.

Þarna eru kringum 30 manna hópur sem leikur leikrit um strák sem lendir í draumaheimi, (eftir að hann er rotaður) mikið rugl fer af stað í þessum draumaheimi og lendir hann á einhverjum stað sem að ég held enginn hafi áttað sig á hvar var, pilturinn er að sjálfsögðu hræddur og vill komast útúr þessu rugli, heim til pabba, mömmu og systkina, hittir marga sem hann reynir að fá til að hjálpa sér út úr þessum ósköpum, hittir meyra að segja anda, sem að vísu er einhver sá kjánalegasti andi sem ég og Guðbjörg Sól höfum "augum litið" en andinn getur ekki komið drengnum heim, en bendir á að það sé einn maður sem gæti mögulega hjálpað, eftir mikinn hasar, söng og vesen kemur í ljós að þessi maður er enginn annar en ÁRNI JOHNSEN. og hvað haldi þið? jú Árni Johnsen birtist í lokin í eigin persónu, eeeen gat ekki hjálpað.

Mér fannst krakkarnir, hver og einn einasti fara á kostum í þessu leikriti og gef þeim 10. hljómsveit spilaði lögin og það vantaði ekki að meðlimir þeirrar hljómsveitar kunni sitt fag og skilaði sínu hlutverki frá sér með sóma.

Var að gera smá stafsetninga leiðréttingu í færslunni og hvarf þá öll færslan án þess að ég hafi skýringu, sennilega einhver andi á ferðinni, bloggfærslan sett inn aftur 26 febr. 07

SigfúsSig.


Næsta síða »

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 158869

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

271 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband