Bjeviðans dýrið át hundinn!

Breski listamaðurinn Mark McGowan lagði sér corgi smáhund til munns til að mótmæla meintu refadrápi bresku konungsfjölskyldunnar. Corgi hundar eru í miklu uppáhaldi hjá Elísabetu II Englandsdrottningar en McGowan setti upp borð á götu í London og snæddi kjötbollur lagaðar úr hundakjöti til að vekja athygli á fréttum af því að Filippus eiginmaður drottningar barði ref til bana á refaveiðum.

Yoko Ono var einnig viðstödd hundaátið sem fjölmiðlar fylgdust vandlega með og fékk sér einnig bita.

„Við erum þjóð sem elskar dýr, hvers vegna leyfum við fólki sem er hluti af ímynd okkar útávið að sýna dýrum svo litla virðingu,” sagði McGowan við fjölmiðla.

Buckinghamhöll gaf enga yfirlýsingu um málið og helstu dýraverndunarstamtök landsins sögðu að það væru ekkert sem benti til þess að prins Philip hefði banað refnum með þessum hætti.

Hundabollurnar sem McGowan snæddi voru blanda af eplum, lauk og kryddum og voru þær bornar fram með salati.

Að sögn McGowans hafði hundurinn sem hann snæddi nýlega drepist hjá hundaræktanda og hafði honum ekki verið slátrað fyrir mótmælin en hann vildi ekki segja hvert banamein hundsins hafði verið. McGowan fékk sér einungis einn og hálfan bita af hundinum.

Drottningin er sérlega hrifin af Corgi-hundum og fá þeir að valsa um höllina að vild jafnvel þegar formlegar móttökur standa yfir.


mbl.is Át hund í mótmælaskyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Þær eru ógeðslegar þessar refaveiðar þar sem refurinn er einn á móti óteljandi hundum og hestamönnum. Þetta eru eins og villimenn sem aðhafast slíkar veiðar en ekki aðalsmenn og konungbornir.

Svava frá Strandbergi , 1.6.2007 kl. 01:29

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hæ Guðný, það er svo sannarlega rét hjá þér, þetta eru reglulega kvikindislegar aðferðir, það er eins og maðurinn sé komin í strýð við dýrið.Svona akkvurat haga glæpahópa sér, ráðast á minni máttar án dóms og laga.
Og þér éta kvikindið ekki einu sinni, það er ekki eins og þarna sé verið að veiða sér til matar, svo ánægjan liggur eingöngu í að pína og drepa.
Þetta er aldagamall siður sem löngu ætti að vera búið að leggja niður af siðmenntaðari þjóð.

Sigfús Sigurþórsson., 1.6.2007 kl. 07:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 158959

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

236 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband