Vísna gáta dagsins.

 Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Teningurinn

 

Öllum eru velkomið að spreyta sig á vísnagátunum sem birtast hér á partners.blog.is, og koma með svör og svar tillögur, allt er þetta bara til gamans gert.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Aurinn stoppar ferða fólk

farar tálmi tíður.

bíður fólk í farar hólk

fyrir neðan síður.

.

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)                          

 

                        

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners / hugsuðurinn

 

 

Rétt svar er: Skriðufall við Esjuna.

Rétt svar barst kl.: 09.12

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

 
 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Góðan daginn meistari Gunnar Þór, ó já þetta kom upp í huga minn akvurat þegar ég var að setja éinhverja vísnagátu inn, heyrði fréttin á meðan í útvarpinu, á annarri stöð heyrði ég að fólk hefði verið pirrað::::::::

Allstór og mikill aurinn er

arkaði hlíðar niður

þessi aur með mokstri fer

mun þá verða friður.

 

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:20

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Hver var það, sem raða varð,

vísa skal í nafnið

fagur kjölur og fínlegt barð

fengur er í safnið.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:23

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Lyft er upp, af sinni setu

sett með skömmum niður

karlar þráast við þeirri getu

þó er það góður siður.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:36

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei, ekki er það rétt.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:45

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

ekki vitlaus tilaga samt, og nokkuð findin.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:46

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Brosleg ella heldur.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:47

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og það er alveg hárrétt Málfríður.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 4 er: Klósett seta.

Rétt svar barst kl.: 09.49

Rétt svar gaf: Málfríður Hafdís Ægisdóttir.

Höfundur gátu: Sigfús Sig.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 09:57

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

 

TeningurGatur

Giftur gaurinn bannið fékk

gult nú hefði nægt hér

ógiftur svo hátt með bolta hékk

henti burtu frá sér.

 

Þessi átti nú ekki að vera nei gát, datt bara upp í kollinn á mér í gærkvöldi, en læt hana vað.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 10:07

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og enn er ATHS 3 óleyst.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 10:08

10 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já einmitt, einhvernveginn fannst mér þetta afar skondið.

Það er einsgott að vera ekki giftur á vellinum.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 10:23

11 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 11 er: Hermann Hreiðarsson.

Rétt svar barst kl.: 10.19

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson.

Höfundur gátu: Sigfús Sig.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 10:24

12 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ekki er þetta nægilega nákvæmt svar hjá þér Gunnar Þór í ATHS 14 varðandi ATHS 3

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 10:26

13 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þótt 3 sé enn óráðin, smelli ég hér einni enn inn.

 

TeningurGatur

Á börmum hanga oft voða verk

varla talin siðleg

svona sést um opna kverk

sum eru alveg voðaleg

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 11:02

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já, og einni bara til viðbótar, þá eru þrjár í óleystar.:

 

TeningurGatur

Heimt var út með beittum stáli

heldur vildi bíða

varð þó úr að með þessu prjáli

þeim skal betur líða.

 

 

   Þetta er kannski of mikið í einu ?

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 11:06

15 Smámynd: Baldvin Jónsson

Svakalegur snillingur ertu Sigfús, þyrfti að koma þér í eina af þessum stórskemmtilegu keppnum hagyrðinga.

Er #3 ekki Vísnabók?

Baldvin Jónsson, 13.9.2007 kl. 15:59

16 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, þú segir það meistari, ég lenti nokkrum sinnum í slíku hér fyrir margt löngu, og fraus bara í öll skiptin, held ég sleppi slíku takk fyrir, en maður þyrti að fara að fá einhvern til að gefa þetta út ú VÍSNAHVERI eða HVERUM.

Þetta er hárrétt svar hjá þér Baldvin gátubrjótur.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 3 er: Vísnahver.

Rétt svar barst kl.: 15.59

Rétt svar gaf: Baldvin Jónsson.

Höfundur gátu: Sigfús Sig.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 16:45

17 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei Málfríður, þetta er skraut í ATHS 18, eða í það minsta kalla sumir þetta skraut, flest álíka er fagurt og oft mikið lagt í það, sérstaklega hjá kvennþjóðinni.

Sigfús Sigurþórsson., 13.9.2007 kl. 23:26

18 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 Og það var hárrétt Málfríður.

 

 

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 18 er: Hálsmen, (hakakross, hauskúpa, skrattinn sjálfur ofl)

Rétt svar barst kl.: 01.03 (14/9)

Rétt svar gaf: Málfríður Hafdís Ægisdóttir.

Höfundur gátu: Sigfús Sig.

Sigfús Sigurþórsson., 14.9.2007 kl. 07:25

19 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þá er bara gátan í ATHS 19 enn óleyst,,, Færi hana hingað niður.

 

TeningurGatur

Heimt var út með beittum stáli

heldur vildi bíða

varð þó úr að með þessu prjáli

þeim skal betur líða.

 

Sigfús Sigurþórsson., 14.9.2007 kl. 07:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 158948

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

238 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband