Vísna gáta dagsins.

 Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Teningurinn

 

Öllum eru velkomið að spreyta sig á vísnagátunum hér á partners.blog.is, og koma með svör og svar tillögur.

Ekki er stjórnandi þessarar síðu neinn sérfræðingur í þessum málum, en hefur gaman af, og þess vegna getur útkoma efnis hér verið misvel gert.

Muna: allt er þetta bara til gamans gert.

   

Svartillögur og rétt svör birtast í Athugasemdum.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Sérð ei hana öðrum hjá

hinn sér ekki sjálfur

beinist þetta burtu frá

brenglast sértu hálfur.

.

Svar óskast, og helst höfundarnafn.

(Rétt svar er fullgilt þótt höfundarnafn vanti.)                   

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners / hugsuðurinn

 

 

Ps.

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og síðustjóra sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá síðustjóra að hann viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Eitthvað gengur illa að fá svartillögu, svo ég skelli hér einni aukagátu á meðan

 

TeningurGatur

Flýgur suður silfur lið

skal nú halda hátíð

vænar þotur þurfti við

varla bauðst í þátíð.

 

Sigfús Sigurþórsson., 14.9.2007 kl. 12:05

2 Smámynd: Billi bilaði

„Sérð ei öðrum hana hjá“ myndi laga stuðlasetningu í fyrstu línu.

Ekki þekki ég höfund, en myndi skjóta á að svarið væri „Sjón“.

ES: Vísnagátur eru mun skemmtilegri þegar þær eru bragfræðilega réttar.

Billi bilaði, 14.9.2007 kl. 17:22

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

Sæll Billi, þú ert ekki sá fyrsti sem bendir á stuðla í vísnagátum hér, sérstaklega ef hún er eftir mig, sem þessi einmitt er, ég hef lítið gert að því hér á blogginu að rína mikið í þá, sem sjálfsagt fer fyrir brjóstið á sumum.

En þetta svar þitt er alveg hárrétt.

 

Rétt svar við vísnagátu dagsins er: Sjónin.        

Rétt svar barst kl.: 17.22

Rétt svar gaf: Billi bilaði Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 14.9.2007 kl. 18:03

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Varðandi vísnagátuna í ATHS 1: Þetta var í fréttum í gær.

Sigfús Sigurþórsson., 15.9.2007 kl. 09:37

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahahaha, þetta eru alger kvikindi, svarið er samt ekki rétt, en litlu þarftu að breyta, kannaðu fyrstu hendinguna betur.

Sigfús Sigurþórsson., 15.9.2007 kl. 09:52

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 1 er: Síldarvinnslufólk í árshátíðaferð á leið í óperuhúsi í Tallinn.        

Rétt svar barst kl.: 20.26  (15/9)

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson  Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 16.9.2007 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 158949

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

238 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband