Vísnagáta dagsins 19 september 2007

 Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Teningurinn

 

Öllum eru velkomið að spreyta sig á vísnagátum þeim sem hér birtast á partners.blog.is, og koma með svör og svar tillögur.

 

Svartillögur og rétt svör birtast í Athugasemdum.

Ef ráðning gátu gengur illa, er tilvalið hjá fólki að óska eftir vísbendingu.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Yfir líður fargi létt

leiðin er á grundu

listin er að lenda nett

leggst á þeirri stundu.

.

Svar óskast, og helst höfundarnafn.

(Rétt svar er fullgilt þótt höfundarnafn vanti.)             

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners / hugsuðurinn

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.

 

Allt er þetta bara til gamans gert, og veltum við okkur ekki alltof mikið uppúr bragfræði reglunum.

 

Vísnagátur eru vel þegnar, hver sem höfundur þeirra er og sendist þá á iceland@internet.is 

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Mynni á að enn eru gátur óleystar frá því í gær   HÉR

Sigfús Sigurþórsson., 19.9.2007 kl. 11:19

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ég skal breita fyrstu hendingunni, grunar að hún "lagist" við það, prufum allavega áður en fl. vísb. koma.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 07:39

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Bæti við, þetta er verkfæri, þetta verkfæri er notað í sporti, stríði vinnu eða verkefnum ofl.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 08:01

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 Nei Málfríður, ekki er það rétt, bætum tilvísunum við.:

Yfir líður fargi létt> Hér er eitthvað sem svífur, svífur yfir einhverju, og er þjált og létt.

 

leiðin er á grundu> og er frá himni ofan.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 15:42

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Kanski réttara að segja: svífur niður á jörðu.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 15:44

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ekki rétt gátubrjótur, Flugvél er níðþungt ferlíki.

Yfir líður fargi létt > eitthvað farg hangir neðaní þessu.

 

leiðin er á grundu> hvortveggja er á niðurleið.

 

listin er að lenda nett> þegar niður er komið er eins gott að lenda mjúklega.

 

leggst á þeirri stundu.> Þegar niður er komið fellur þetta máttlaust saman.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 21:03

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar er: SmeFallhlíf.

Rétt svar barst kl.: 21.27

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 21:53

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nú ætla ég að koma meðhingað áður óleystar gátur, úr Athugasemdum 18/9.

Ef fólk er komið í þrot er um að gera að gera eihverja tilraun, þá koma vísbendingar, nú ellegar óska bara beint eftir þeim.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 21:57

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Leyfum ljótum hent er út

leyfist mörgum slökum

á meðan hleypur allt í hnút

hefst af mörgum sökum.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 21:57

10 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Hreyfist hvorki á lönd né strönd

hulinn sjónum mínum

við matarborðið er með rönd

matar að skjánum fínum.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 21:57

11 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Biðst innilega fyrirgefningar Gunnar Þór og aðrir, að sjálfsögðu á að standa í FALLHLÍF, EKKI SmFallhlíf, í réttu svari á lausnargátu dagsins, sem Gunnar Þór gátubrjótur leysi.

Sigfús Sigurþórsson., 20.9.2007 kl. 22:01

12 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þá er bara #14 óleyst eftir.

Sigfús Sigurþórsson., 21.9.2007 kl. 12:35

13 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 15 er: Diskur.        

Rétt svar barst kl.: 10.47 (21/9 07)

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 21.9.2007 kl. 12:56

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 14 er:Uppköst/Æla.        

Rétt svar barst kl.: 13.02 (21/9 07)

Rétt svar gaf: Málfríður Hafdís Ægisdóttir Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 21.9.2007 kl. 15:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 110
  • Frá upphafi: 159084

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 110
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

223 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband