Vísnagáta dagsins 24 sept. 2007

 Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Teningurinn

 

Öllum eru velkomið að spreyta sig á vísnagátum þeim sem hér birtast á partners.blog.is, og koma með svör og svar tillögur.

 

Svartillögur og rétt svör birtast í Athugasemdum.

Ef ráðning gátu gengur illa, er tilvalið hjá fólki að óska eftir vísbendingu.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Togað í með höndum tveim

trosnar oft þá síðar

í bílum þarf að skipta út þeim

Þá hjá smiðum tíðar.

.

Svar óskast, og helst höfundarnafn.

(Rétt svar er fullgilt þótt höfundarnafn vanti.)             

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners / hugsuðurinn

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.

 

Allt er þetta bara til gamans gert, og veltum við okkur ekki alltof mikið uppúr bragfræði reglunum.

 

Vísnagátur eru vel þegnar, hver sem höfundur þeirra er og sendist þá á iceland@internet.is 

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Að sjálfsögðu meistari, afsakið hve seint ég gat staðfest svarið, þannig getur samt oft komið fyrir næstu vikurnar, þó ekki altítt.

Rétt svar er: Skóreimar.

Rétt svar barst kl.: 10.02

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 24.9.2007 kl. 17:54

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Sólar varminn sýður það,

svo það höndin brýtur;

fótur hraustur títt það trað.

Trútt þess munnur nýtur.

Sigfús Sigurþórsson., 24.9.2007 kl. 18:01

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Minni á eina óleysta aukagátu í færsum 23/9

Sigfús Sigurþórsson., 24.9.2007 kl. 18:02

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ís.......

Hrönn Sigurðardóttir, 25.9.2007 kl. 19:45

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sæl Hrönn, nei ekki er það ís, þetta er samt matarkyns, og kemur frá nátturúnni, megnið sem við notum kemur erlendis frá.

Sigfús Sigurþórsson., 25.9.2007 kl. 19:56

6 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

salt?

Hrönn Sigurðardóttir, 25.9.2007 kl. 20:03

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ekki salt, bendi á þriðju hendinguna.

Sigfús Sigurþórsson., 25.9.2007 kl. 20:05

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

klaki?

Hrönn Sigurðardóttir, 25.9.2007 kl. 21:16

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Einmitt

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 3 er: Vínber.        

Rétt svar barst kl.: 22.19

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: "Ókunnur"

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 06:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 158958

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

236 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband