Vísnagáta dagsins 26 sept.

 Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Teningurinn

 

Öllum eru velkomið að spreyta sig á vísnagátum þeim sem hér birtast á partners.blog.is, og koma með svör og svar tillögur.

 

Svartillögur og rétt svör birtast í Athugasemdum.

Ef ráðning gátu gengur illa, er tilvalið hjá fólki að óska eftir vísbendingu.

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners

Nýr þeim margur höndum með

margur teygir arma

sumir þá með stúrið geð

svo með hreinni hvarma.

.

Svar óskast, og helst höfundarnafn.

(Rétt svar er fullgilt þótt höfundarnafn vanti.)             

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners / hugsuðurinn

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.

 

Allt er þetta bara til gamans gert, og veltum við okkur ekki alltof mikið uppúr bragfræði reglunum.

 

Vísnagátur eru vel þegnar, hver sem höfundur þeirra er og sendist þá á iceland@internet.is 

 

Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Partners


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og hér skellum við strax inn aukagátu, tvær í gangi.

 

TeningurGatur

Þessir kappar keppast við

kræsingarnar moka

hefta hægt með góðum sið

hrekkja Jens með hroka.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 06:36

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ekki er nú laust við að eitthvað sé til í þessu.

Rétt svar er: Augun/augu nudduð

Rétt svar barst kl.: 07.22

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 07:35

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Jens!  Jens er einhver sem ekki hlíðir daglegum og góðum þörfum.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 07:59

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þar sem ég er að fara útúr dyrunum og kemst ekki í tölvu fyrr en síðar í dag, læt ég tvær vísnagátur til viðbótar inn.

 

TeningurGatur

Á kollinn hittir æði hart

hefur klaufir góðar

harðann hefur fremsta part

hann á þyngri bróður.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 08:22

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Stendur fyrir framan þig

fimlega þig skoðar

fúl er oft við sjálfan sig

sjaldnast nokkuð stoðar.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 08:23

6 Smámynd: Gunnar Kr.

#1, ætli ekki sé átt við bræðurna Baríus og Kaktus, eða frændur þeirra Karíus og Baktus?

Gunnar Kr., 26.9.2007 kl. 14:46

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Gunnar Kr. fattaði Jens.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 1 er: Karíus og Baktus.        

Rétt svar barst kl.: 14.46

Rétt svar gaf: Gunnar Kr. Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 20:31

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og Gunnar Þór klikkar ekki.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 6 er: Klaufhamar.        

Rétt svar barst kl.: 08.56

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 20:32

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og Gunnar Þór með eina lausnina í viðbót.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 7 er: Spegilmynd.        

Rétt svar barst kl.: 08.56

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 20:34

10 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Skelli hér inn einni kvöldgátu.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 21:04

11 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

Oft er hiti í hennar haus

hlaðin þá, svo barin

sumir þá með sífellt raus

sjaldan er hún varin.

Sigfús Sigurþórsson., 26.9.2007 kl. 21:05

12 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Pípa...höf Sigfús Sig

Vilborg Traustadóttir, 26.9.2007 kl. 23:05

13 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 Nákvæmlega Vilborg.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 7 er: Pípa.        

Rétt svar barst kl.: 23.05

Rétt svar gaf: Vilborg Traustadóttir Vísna gátur Sigfúsar Sigurþórssonar / Medalía

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 27.9.2007 kl. 07:34

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sorry, lausnin hjá Vilborgu Trausta, var við ATHS 14

Sigfús Sigurþórsson., 27.9.2007 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 158943

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband