Hvernig útskýrir þú manndráp og sprengingar á húsum og fólki fyrir barni?

Ég var að lesa og skoða fréttir af átakasvæðum í morgun, ég festist einhvern veginn í þessum ófögnuði en þurfti að gera fleira á meðan, eitt var að sinn dóttur minni 7 ára.

 

Hún labbaði til mín og bað mig að smyrja brauð með skinku, ég var í miðju kafi að skoða myndband að átökum af þessum svæðum, en stoppaði samt myndbandið og fór í að smyrja brauðið.

Þegar ég kom  með brauðið til hennar var hún langt komin með að skoða þetta sama myndband og hafði lækkað alveg niður í því að því hún skildi ekki enskuna.

Hún var eiginlega frosin við tölvuna, sagði ekki eitt aukatekið orð þegar ég slökkti á myndbandinu, en horfði í dágóða stund á mig, líka eftir að hún tók við diskinum með brauðinu.

Svo kom spurningar flóðið, af hverju eru "þeir" að drepa fólkið? sástu blóðið? er þetta alvöru fólk? hvað gerðist? hvað gerðist pabbi?

 

Palestínumenn bera særðan mann eftir loftárás Ísraelsmanna...Þegar stórt er spurt er oft ákaflega erfitt að svara, ég var langt fram eftir degi að reina að "útskýra" eitthvað af þessu fyrir henni, en gat ekkert útskýrt, bar að það væri til voðalega vont fólk, sem að sjálfsögðu svaraði engu varðandi spurningarlistann hennar.

 

Hvernig útskýrir þú manndráp og sprengingar á húsum og fólki fyrir barni?

Myndbandið sem um ræðir er hér efsta myndbandið.

 

Myndband 1

Myndband 2

Myndband 3

Myndband 4

Myndband 5

 

Allt eru þetta frétta myndbönd af Mbl.


mbl.is Átta létu lífið í loftárás Ísraelsmanna á Gasa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Halló halló halló.

Eiithvað er að comment kerfinu, meistararnir hjá Mbl. eru að kíkja á þetta.

Ég hefi ekki lokað á neinn til að skrifa comment, svona svo það sé á hreinu, vonum að þetta komist í lag í snatri.

Sigfús Sigurþórsson., 21.5.2007 kl. 13:27

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Búið er að finna útúr Comment bilununum svo nú ætti að vera í lagi að skrifa í Athugasemdir.

Sigfús Sigurþórsson., 21.5.2007 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 158935

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

240 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband