Hvaða kona elskar hann ekki? meyra að segja gera sumir karlar það.

Ég elska þig, Brad!

Birta Björnsdóttir í Cannes
Fréttamynd 428768Kvikmyndin Death Proof var frumsýnd hér í Cannes í gær en hún er önnur tveggja í svokölluðu Grindhouse-verkefni Quentins Tarantino og Roberts Rodrigues. Death Proof er ein þeirra mynda sem eru "í keppninni", en það þýðir að hún eigi möguleika á að hreppa Gullpálmann næstkomandi sunnudag. Tarantino á þegar einn Gullpálma á arinhillunni sinni en hann fékk hann fyrir Pulp Fiction.

Death Proof segir frá tveimur hópum firnasterkra kvenhetja og samskiptum þeirra við hinn rúnum rista Stuntman Mike, sem leikinn er af Kurt Russel. Meðal kvennanna er Zoe Bell sem kemur fram undir eigin nafni. Sú er áhættuleikari og lék öll áhættuatriði Umu Thurman í Kill Bill-myndunum. Senuþjófurinn er þó án efa Russel, sem er stórkostlegur í myndinni, sérstaklega í síðari hlutanum.

Blaðamannafundur var svo haldinn að Cannes-sið með leikstjóra og leikurum. Tarantino sagðist alltaf byrja handritsgerð á því að búa til persónur. Það gerði hann sjaldnast með ákveðna leikara í huga. Undantekningarnar væru hinsvegar hlutverk Zoe í Death Proof og Umu í Kill Bill. "Þær voru bara þær sjálfar í myndunum," sagði Tarantino.

Fyrrihluta gærdagsins var svo eytt á hinu goðsagnarkennda Hotel Du Cap. Það er í um hálftíma akstursfjarlægð frá strandlengjunni og skilst mér að allar skærustu stjörnurnar gisti þar ár hvert. Allavega er öryggisgæslan mikil. Tilgangur ferðalagsins var þó ekki að lepja kokteila við sundlaugarbakkann með fræga fólkinu heldur að taka viðtöl við leikstjóra og leikara A Mighty Heart, sem frumsýnd var hér í gær. Það var trúlega engu logið um tigna gesti hótelsins því þarna sáust á sveimi hjónakornin Brad og Angelina ásamt öllum leikurum úr Ocean's 13, sem fumsýnd verður hér næstkomandi fimmtudag. Clooney var reyndar hvergi sjáanlegur í þetta skiptið. Króatískur blaðamaður ætlaði svo aldeilis að slá um sig með upplýsingum: "Ég sá Maddox og Zahara vera að leika sér við sundlaugina." Fyrir þá sem ekki vita eru það helmingur barna Jolie og Pitt. Aumingja fólkið, þau hljóta að vera það fólk sem fylgst er best með í heiminum!

Annars er auðvelt að geta sér til um hver er frægur hér og hver ekki. Þeir allra frægustu eru undantekningarlaust með í eftirdragi um 250 kílóa mannveru sem færi létt með að taka Gunnar á Hlíðarenda og Gretti Ásmundarson í bakaríið...báða í einu. Það leggur því trúlega enginn í að kasta sér á kvikmyndastjörnurnar, nema reyndar ein stúlkukind sem fleygði sér á Brad Pitt eftir blaðamannafund A Mighty Heart og æpti: "Brad, ég elska þig!" Kraftajötnarnir voru fljótir að fjarlægja hana. Aðdáendur frægra einstaklinga gætu hæglega haldið árshátíð sína hér í borg á þessum tíma árs. Jafnvel getur verið að slíkur gleðskapur fari fram þessa dagana því daglega hanga hundruð manns fyrir framan stærstu hótelin hér við strandgötuna og vonast til að sjá glitta í eitthvert uppáhaldið.

Blaðamennirnir hér eru líka skemmtilegur þjóðflokkur. Augljóst er að margir eru eldri en tvævetur í starfinu og í sumum viðtölum og á blaðamannafundum hefjast spurningarnar á: "Síðast þegar við hittumst, Brad Pitt, þá sagðirðu að". Einnig varð ég vitni að afar fagmannlegum vinnubrögðum hjá breskum og áströlskum kollegum mínum um daginn. Yfirvofandi var viðtal við leikarann Josh Brolin og á meðan beðið var hreyttu blaðamennirnir tveir svoleiðis fúkyrðum hvor í annan að ég signdi mig í huganum. Um leið og sást glitta í verðandi viðtalsefni hurfu blótsyrðin samstundis og þeir voru hinir alúðlegustu hvor við annan meðan á viðtalinu stóð og afsökuðu sig prúðmannlega ef annar greip frammí fyrir hinum.

 


mbl.is Ég elska þig, Brad!
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

ekki ég......

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 13:17

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei nei, sei sei, þetta segi þið nú allar, en hvað svo? Viðurkendu bara veikleika þinn fyrir honum.

Sigfús Sigurþórsson., 23.5.2007 kl. 13:25

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

hehehe er hann kannski svarið við gátunni...... ?

Hrönn Sigurðardóttir, 23.5.2007 kl. 14:33

4 Smámynd: Ísdrottningin

Mér þykir nú ekki mikið varið í Pitt-inn en það er bara mín persónulega skoðun og það er sko meira en að segja það...   alveg án yfsilons.

Ísdrottningin, 24.5.2007 kl. 00:15

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, nei Hrönn, svo var nú ekki.

Nei, er það nokkuð að marka kæra Ísdrottning?

Sigfús Sigurþórsson., 24.5.2007 kl. 07:37

6 Smámynd: halkatla

ég heillaðist af Edward Norton frekar en Brad Pitt, Brad er of vöðvastæltur

halkatla, 24.5.2007 kl. 20:32

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Of vöðvastæltur??? Þetta er samt bráðmyndarlegur maður, enda hluti af vinsældum hanns.

Enginn smá pistill hjá þér Anna Karen, varðandi BB. las hann einhverntíman í dag.

Sigfús Sigurþórsson., 24.5.2007 kl. 20:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 11
  • Frá upphafi: 158939

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 11
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

240 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband