Vísna gáta dagsins.

Gáta dagsins er svohljóðandi:

 

Bítast oft saman, og sundur tennur

sem karlar oft gleyma að laga

misvel og mislangt, greyið rennur

Margoft vill smábörnin plaga

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Rennilásinn..........

Einar Örn 8.6.2007 kl. 01:42

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Góðan daginn Einar Örn.

Og það er hárrétt.

Rétt svar barst við Gátu dagsins kl.01,42

Rétt svar er: Rennilás.

Rétt svar gaf: Einar Örn. 

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 09:20

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þá skellum við hér inn annari laufléttri.

Kúnum gefst á nýársnótt,
 nákvæmt stærðir kvarðar.
 Einatt sækir að mér skjótt,
 orð og hugsun varðar.

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 09:24

4 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

mál?

Hrönn Sigurðardóttir, 8.6.2007 kl. 10:25

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Að sjálfsögðu ertu með svarið á reiðum höndum Hrönn.

Rétt svar barst við auka gátu í ATHS 3 kl.10,25

Rétt svar er:  Mál

Rétt svar gaf: Hrönn Sigurðardóttir. 

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 10:41

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þá kemur önnur sem ekki er eftir mig, en að undanförnu hafa gáturnar verið frumsamdar utan þessarar í ATHS 3.

Í öllu líki ílt og gott

einatt má eg gera,

en þreyngdu frá mér þá í brott

því ei án mátt vera.

Fleygðu burtu fremsta staf

finnst eg á hendi þinni;

hásetanum hlut eg gaf hæsta á vertíðinni,

Tvo ef stafi flytur frá

fyrstu lögun minni,

orku sinnar ímynd þá

allir held eg finni,

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 10:46

7 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Rennilás. er  þetta ekki gott hjá mér.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2007 kl. 11:00

8 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Katla! Þú ert frábær

Hrönn Sigurðardóttir, 8.6.2007 kl. 11:05

9 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Glófi?

Hrönn Sigurðardóttir, 8.6.2007 kl. 11:06

10 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

HE he Hrönn er þetta ekki skondið hjá mér.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2007 kl. 12:07

11 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Æi fyrirgefðu mér glensið í mér Sigfús minn.

Kristín Katla Árnadóttir, 8.6.2007 kl. 12:20

12 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Jú Katla mér fannst þetta ferlega fyndið

tíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 8.6.2007 kl. 12:30

13 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þið eruð alveg æðisleg, ómissandi yndislegir bloggfélagar.

Gunnar Þór, hárrétt hjá þér kappi.

Rétt svar barst við auka gátu í ATHS 6 kl.13,26

Rétt svar er:  Flaska

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 13:39

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Höfund gátu í ATHS 6 skrái ég E.G. hver sem það nú er.

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 13:41

15 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og áfram höldum við, þessi gæti reynst einhverjum erfið.

Málið fasta njörfar niður,
nær í bergi sexu strendur,
prjónabanda prúður siður,
prýðir kassann - styrktarrendur.

 

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 13:44

16 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, algerlega sammála og alveg hárrétt Gunnar.

Rétt svar barst við auka gátu í ATHS 16 kl.17,10

Rétt svar er:  Stuðlar

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 21:47

17 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Bara svona að athuga hvort þið væruð í einhverjum erfiðleikum hér að ráða gáturnar  og ætlaði þá að hjálpa ykkur

Margrét St Hafsteinsdóttir, 8.6.2007 kl. 22:48

18 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Glæsilegt Margrét, aðstoð ávalt vel þegin. eigum við ekki bara að skella hér snöggvast einni inn.

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 23:31

19 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þá kemur hér ein glæný.

Gjarnan gagnast í sveitunum

gagnast þó lítið eitt sér

stundum það slítur reytunum

smekklega oft þá smíðum vér.

Sigfús Sigurþórsson., 8.6.2007 kl. 23:32

20 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Hrútur?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 00:33

21 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rangt gátubrjótur, eeeeen auðvelt að tengja rétta orðið við þetta.

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 00:40

22 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

sæðingamaður?

....þetta er nú að verða aaaaðeins of erótískt.....

tíhí

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:04

23 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þetta líkar mér Hrönn, þú færð 10 prik fyrir þetta svar, en einga medalíu, vegna þess að þetta svar er rangt, en 10 prik fyrir að láta þetta svar vaða, þú ert bara frábær.

Og ekki rétt hjá þér heldur Gunnar Þór, eeeeen asssskoti ertu nú heitur, ekki kannski sjóðandi, en heitur samt.

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 01:29

24 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Set hana breytta um eina kommu (betri framburður) og það í stað þá í neðstu hendingunni.

Gjarnan gagnast í sveitunum

gagnast þó lítið, eitt sér

stundum það slítur reytunum

smekklega oft það smíðum vér.

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 01:32

25 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Tiklvísun.

Þetta er hlutur og er hreifanlegur.

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 01:34

26 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

rétt?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:35

27 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

bás?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 01:36

28 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Heyri þið mig nú, hvað er verið að pæla? Sæðingamaður og hlaupastelpa -----  undan honum????

Ekki rétt svo en nú er það Hrönn sem er heit.

Þetta er klárlega hægt að tengja við svör sem komin eru> Stíum-Rétt-Bás

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 01:50

29 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Dandanrandandann ------ Nú ertu alveg sjóð heytur Gunnar Þór gátubrjórur.

 > gagnast þó lítið, eitt sér <

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 15:08

30 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

girðingarstaur?

Hrönn Sigurðardóttir, 9.6.2007 kl. 16:28

31 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Neeeei Hrönn, ekki er það orðið sem ég leita eftir (en gæti alveg gengið) en klárlega tengist girðingastaur rétta svarinu.

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 16:35

32 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þar kom orðið sem leita var eftir.

.

Rétt svar barst við auka gátu í ATHS 27 kl.17,10

Rétt svar er:  Hlið.

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 18:47

33 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sorry með þessar 10 sek.

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 18:48

34 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, Hvaða 10 sek.???? - -það er eðlilegt að þú spyrjir, mað sem lætur ekki smámunina trufla félagsskapinn.

Rétt svar barst við auka gátu í ATHS 27 kl.17,10 ----- En svar þitt barst Kl.17,00

Sigfús Sigurþórsson., 9.6.2007 kl. 19:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 158942

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

239 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband