Vísna gáta dagsins.

     

Hugsuðurinn

 Þrautir reyna á huga þinn

 það er jú eldgamall siður

 látum hann lifa, hér um sinn

 lifir, ef bloggarinn biður.

 

 

 

Á heiði gengu höldar tveir

og hvatlega létu,

báru á sínu baki þeir

það báðir hétu.

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

-

Rétt svar er: Steinn

Rétt svar barst kl.: 01.46 (1/9)

Rétt svar gaf: Málfríður Hafdís Ægisdóttir

Höfundur gátu: Ókunnur.

 

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Öllum eru velkomið að þreyta Vísnagáturnar, og koma með svör og svar tillögur í gátur þær sem birtast hér á partners.blog.is

Aðal vísnagátan mun birtast að kvöldi dags, fyrir hvern dag hér á partners.blog.is en undanfarna mánuði hafa þær verið settar inn á ýmsum tímum sólahringsins, undantekning getur þó komið fyrir.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Sigfús Siguþórsson

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.8.2007 kl. 20:20

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Neeei Gunnar Helgi, ekki er það nú rétt.

Sigfús Sigurþórsson., 31.8.2007 kl. 20:29

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góð tilraun

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.8.2007 kl. 20:30

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sammála þér gunnar Helgi.

Nei Gunnar Þór, ég hef undir höndum ekki ólíka vísnagátu þessarri, og þar er svarið einmitt Páll.

Þið eruð báðir á rétri leið, mannsnafn er svarið.

Sigfús Sigurþórsson., 31.8.2007 kl. 22:07

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hæ hæ Málfríður, já það er líka langt frí sem ég tók frá þessu.

Og það er einmitt hárrétt Málfríður Hafdís, ekki vandamál hjá þér.

Sigfús Sigurþórsson., 1.9.2007 kl. 01:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 158963

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

233 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband