Hvort er hættulegra læknadóp eða annað dóp?

SSdogtorsdop21Hversu algengt er að fólk ánetjist lyfjum af völdum lyfja sem læknir hefur ráðlagt sjúklingi/einstaklingi?

 

Mikið er um að fólki sem vantar peninga fær "læknadóp" hjá lækni sínum en selur það síðan háðum lyfjaneitanda.

Heyrst hefur að læknir þori ekki öðru en að skrifa upp á lyfseðil af ótta við viðkomandi sem kannski er ofbeldisfullur einstaklingur.

Fíklar ná sér í læknadóp eftir margskonar leiðum og sennilega verður aldrei hægt að stöðva þá þróun.

Aðeins ein leið er að stöðva þessa þróun og hún einfaldlega að unglingur/fullorðin byrji ekki á lyfjum/dópi. Grein sem birt var á Doktor.is


 

SSpillur46Efnin á götunni. Heilbrigðismál Olga Austfjörð

Kompás nýji fréttaskýringaþátturinn á NFS og Stöð 2 fékk mig til að fá hroll í kvöld. Rætt var um fíkniefni og sérstaklega um læknadóp. Ég fagna því sérstaklega að kominn sé alvöru íslenskur fréttaskýringaþáttur sem kafar dýpra í málefni líðandi stundar þó svo að á stundum hafi mér þótt eins og ég væri að horfa á DV.

Sakleysinginn ég er alltaf jafn skelfingu lostin þegar ég heyri fréttir úr fíkniefnaheiminum enda er þetta heimur sem ég sé ekki einfaldlega ekki inn í. Ég þekki varla mun á efnum, veit ekki hvað er "inn" í fíkniefnaheiminum í dag, veit lítið um nákvæmar afleiðingar þó ég viti að þær séu slæmar og ég veit ekki hvað götuverð á efnum er þó ég viti að þau séu almennt mjög dýr.

Enn skelfdari varð ég þó þegar ég sá hversu mikill hluti af fíkniefnunum á götunni er læknadóp, þ.e. lyf sem læknar framvísa en eru svo seld á uppsprengdu verði á götunni. Eru virkilega tugir aðila sem eru að misnota heilbrigðiskerfið okkar?

Fréttamaður Kompás hætti sér með falda myndavél inn í íbúð í Fannborg í Kópavogi og keypti læknadóp og tók það ferli ekki nema 3 mínútur! Efnunum skilaði hann svo til lögreglunnar í Kópavogi sem skoðaði málið og færði svo umræddan sala sem sýndur var í mynd til yfirheyrslu.

Það sem var athyglisverðast við þennan hluta var að íbúðin í Fannborginni þar sem efnin voru seld var eingöngu notuð til þess virtist vera. Fram kom að þessi umræddi sali seldi efnin frá 13-14 á daginn og svo frá 17-18, hann byggi svo annars staðar!

Þetta er svo ótrúlega skipulagt og svo auðvelt fyrir einstaklinga að nálgast að þetta er mikil ógn við okkar samfélag! Þáttinn ég hvet alla til að horfa á, hægt að nálgast hann á VefTv inn á visir.is.

 

 

SSdogtorsdop22Læknar í vanda Ópíumfíklum fjölgar stöðugt.

Fréttabréf Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann. Ábm. Gunnar Kvaran

Læknar í vanda Ópíumfíklum fjölgar stöðugt. Fíkn í lyf sem ávísað er af læknum er nú orðinn aðalvandi 7-10% þeirra sem koma á Vog. Um er að ræða róandi og örvandi ávanalyf og sterk verkjalyf, ópíumefni eða morfínefni. Nýgengi hjá ópíumfíklum hefur aldrei verið meira. Kallað er eftir raunhæfum viðbrögðum frá samtökum lækna og embættismannakerfinu. Þetta er það mikill vandi að hann slær upp í ólöglega vímuefnavandann. Á þessu verður ekki unnið nema með fræðslu og endurmenntun þeirra sem ávísa lyfjum. Morfínfaraldur hófst hérlendis árið 1999. Nýir sprautufíklar sem koma á Vog og nota morfín eru rúmlega 40 á ári og alls hafa 769 einstaklingar greinst með ópíumvanda á síðustu 10 árum. 4/13/2005 Þórarinn Tyrfingsson

 Kódín Morfín Ráðamenn þurfa að vakna til vitundar um nauðsyn þess að setja fjármuni í meðferð sjúklinga hér.

Lesa meira.

 

 

Upplýsingar af vef Setbergskóla.

Róandi ávanalyf

Venja að skipta róandi eða slævandi lyfjum í fjóra undirflokka:

  1. Róandi ávanalyf: Dæmi um slík lyf eru fenemal og diazepam. Þessi lyf hafa róandi og kvíðastillandi verkun í litlum skömmtum en krampastillandi verkun og valda svefni séu þau notuð í stærri skömmtum.

  2. Svæfingalyf: Svæfingarlæknar einir nota þessi lyf á sjúklinga sína oftast á skurðstofum.

  3. Ópíumefni eða sterk verkjadeyfandi lyf: Dæmi um slík lyf eru morfín og heróín.

  4. Sefandi geðlyf: Dæmi um slík lyf eru klórprómazín ( largactil ) og trílafon.

Róandi ávanalyf eru mikið notuð í okkar heimshluta til lækninga. Þau hafa fyrst og fremst verið notuð til að lækna kvíða og svefnleysi. Ávanahætta er talsverð þegar þessi lyf eru notuð og allt of margir verða fíknir í þessi lyf. Þessi lyf eru oft kölluð læknadóp þar sem læknar gefa út lyfseðla fyrir þessum lyfjum.
 

Róandi lyfjaneysla

Þrjár meginleiðir eru til þess að verða háður róandi ávanalyfjum.

  1. Ein þeirra er að gæta ekki að ávanahættu þessara lyfja þegar þau eru notuð við kvíða eða svefnleysi. Langvarandi notkun róandi lyfja við svefnleysi eða kvíða veldur oft vandræðum því að svefnleysi og kvíði eru alltaf einkenni um sjúkdóm eða þörf fyrir breytt líferni.

  2. Önnur dæmigerð notkun þessara lyfja er þegar ungmenni eða áfengissjúklingar taka þau beinlínis til að komast í vímu með eða án annarra vímuefna.

  3. Þriðja dæmið um misnotkun er síðan þegar lyfin eru notuð við fráhvarfseinkennum eftir áfengisneyslu eða til að hamla gegn óæskilegum einkennum örvandi vímuefna. Þannig eru þessi lyf oft tekin með amfetamíni eða til að laga áfengisfráhvörf.

SSdogtorsdop23Steraneysla

Þeir sem misnota stera, fara yfirleitt mjög leynt með þessa neyslu og er hún jafnvel meira feimnismál en misnotkun ólöglegra fíkniefna. Þessir neytendur eru í mikilli afneitun á þær hættur sem steraneyslan hefur í för með sér. Hjartasjúkdómar, lifrar- og lungnasjúkdómar eru vel þekktir fylgikvillar og hefur leitt fólk til dauða hér á landi sem annars staðar. Neytendur eru að slíta vöðvafestur og eistun verða eins og baunir, eins og þekktur íslenskur læknir orðaði það. Menn fara í fráhvörf eftir langvarandi steranotkun, svefntruflanir, hjartsláttur, þunglyndishugsanir ofl., allt fráhvarfseinkenni sem eru vel þekkt eftir misnotkun vímuefna. Meðan á steranotkun stendur getur eftirfarandi komið fram: breyting á skapferli og geði, m.a. fljótfærni, bræði, oftrú á eigin getu og aukin kynhvöt sem getur komið neytendum í vandræði. Þegar steraneyslu er hætt koma eftirfarandi atriði oft fram: þreyta, svartsýni, gleðileysi, minnkuð kynhvöt og aukin löngun í stera og vímuefni almennt, aukin fíkn.


Menn sem hafa neytt stera hafa gefið upp ýmsar ástæður fyrir því, hvers vegna steramisnotkun hófst. Það var m.a. von um betri árangur í íþróttum, aðallega lyftingum og vaxtarrækt. Einnig var talað um forvitni og fordæmi félaganna og margir nefndu að þeir vildu verða flottari.

 

 

Umræða og fyrirspurn sem birt var á Doktor.is

 

Unglingar

Efni:

Dóp/Læknadóp

Sendandi:

asd

Sent þann:

6. feb, 2007  Klukkan: 0:22

Texti:

var að spá í hvernig málin liggja með hvort er skaðlegra að taka læknadóp eða bara dóp ? taka kannski rítalín og svefntöflur, eða eitthvað álíka, ístaðinn fyrir að taka kannski spítt og smóka?

held það sé alveg jafn skaðlegt.. en einhver sagði mér að læknadóp væri líklega skaðlegra veit þetta einhver ?..

Svara

 

Efni:

Um:Dóp/Læknadóp

Sendandi:

Gummi

Sent þann:

6. feb, 2007  Klukkan: 0:39

Texti:

Það fer náttúrulega alfarið eftir því hvernig dópið er notað. Allt er þetta skaðlegt sama hvað þú hefur heyrt, frá vini, fjölskyldumeðlimi eða jafnvel lækni.
Rítalín og svefntöflur geta farið illa í suma en aðra ekki. Þessi lyf eru ætluð fyrir þá sem eru veikir og ef það er tekið það á rangan hátt til dæmis of stóra skammta þá getur það þýtt dauði.

Sama er hægt að segja um spítt og hass, reyndar er ekki hægt að overdoza af hassi/marijuana en samt skaðar í þér heilann af mikilli notkun. Svo fara efnin að vera ávanabindandi og þú getur ekki stoppað þetta. Það þýðir að þú farir að taka stærri skammta/reykja meira og eyðileggja þig meira.

Svo það er best að láta þetta bara allt í friði því bæði læknadóp og venjuleg fíkniefni fara illa með þig hvað sem aðrir segja.

 

Efni:

Um:Dóp/Læknadóp

Sendandi:

ég

Sent þann:

7. feb, 2007  Klukkan: 18:01

Texti:

Málið er að spítt á að vera köttað með mjólkursykri (held ég) en þú getur aldrei verið viss um að það sé gert. Svo gætirðu líka fengið bara sykur sem gerir þér ekki neitt.

Læknadópið ætti auðvitað ekki að vera köttað en það verður að passa sig að taka ekki of mikið.

Ef þú hefur ekki notað dóp áður en vilt prófa skaltu muna að það byrja allir í fiktinu, það ætlar sér enginn að verða háður eða neitt svoleiðis. Vertu viss um að þú viljir taka áhættuna áður en þú ferð þú út í þetta.

Ég hef allavega alltaf hugsað þetta þannig.

Unglingar

Efni:

drekka með pensilíni?

Sendandi:

bara ég..

Sent þann:

1. feb, 2006  Klukkan: 1:23


 

Texti:

þegar maður er á pensilíni, má þá ekki drekka áfengi ofaní það..? og hvað getur skeð ef maður gerir það?
takk fyrir.

Svara

Efni:

Um:drekka með pensilíni?

Sendandi:

sf

Sent þann:

1. feb, 2006  Klukkan: 6:23

Texti:

nei það er alls ekki sniðugt
það er ekki sniðugt að drekka áfengi ofaní neitt læknadóp. Svo getur áfengið eyðilagt skammtinn

Svara

 Fyrirspurn og umræða sem birt var inn á doktor.is

 

 

SSdogtorsdop24

 Efnafíkn (Chemical Dependency) af upplýsingavef DRA

Efnafíkn er samheiti yfir hvers kyns fíkn í efni hvort heldur það rennur, rúllar eða rýkur; það er að segja hvort sem það er í fljótandi formi, föstu (töflur) eða loftkenndu. Það nær sem sagt yfir alkóhólisma, fíkn í hvers kyns vímuefni, lögleg eða ólögleg, þar með talið það sem kallað hefur verið læknadóp. Á ensku eru notuð ýmis orð með mismunandi sérhæfða merkingu: Chemical Dependency, chemically dependent, chemical dependence, alcoholism, addiction, substance abuse, substance dependence, drug habit, and drug addiction.

Við lítum svona á málið: Efnafíkn er heiti á sjúkdómi sem einkennist af fíkn í efni sem breytir hugarástandi einstaklingsins. Efnafíkn nær bæði yfir eiturlyfjafíkn og alkóhólisma (fíkn í eiturlyfið alókahól). Einstaklingur sem haldinn er efnafíkn er ófær um að stöðva drykkju eða að neyta tiltekins hugarástands-breytandi efnis þrátt fyrir alvarlegar afleiðingar sem snerta heilsu hans, fjárhag, atvinnu og lagalega, andlega eða félagslega stöðu. Sjúkdómurinn lætur sig engu varða um aldur, kynferði, kynþátt, trúarskoðanir eða efnahagslega stöðu einstaklingsins. Hann þróast stig af stigi (er prógressífur) og er ólæknandi (krónískur) og getur leitt til dauða ef hann er ekki meðhöndlaður.

Þegar einstaklingur er haldin efnafíkn hefur hann ekki lengur neina valkosti um það hvort hann notar hugarástands-breytandi efni eða ekki. Hann kann að geta stöðvað neyslu sína um tíma, en hann mun hverfa í neyslu aftur og aftur þrátt fyrir rökfestu sína, viljastyrk og góðan ásetning um annað. Af þessum sökum er efnafíkn (alkóhólismi og eiturlyfjafíkn) álitinn vera lævís, torskilinn og öflugur sjúkdómur.

SSdogtorsdop25Einkenni efnafíknar koma ýmist samfellt fram eða þau birtast og hverfa á víxl á mismunandi löngum tímabilum. Einkennin eru: Skert stjórn á áfengisneyslu og/eða lyfjaneyslu (samkvæmt lyfseðli eða ólöglegri), hugurinn er stöðugt bundinn við hið hugarástands-breytandi efni, neysla fíkniefnisins heldur áfram þrátt fyrir alvarlegar afleiðingar og að hugsun verði brengluð. Það síðast nefnda kemur augljósast fram í afneitun.

Við lítum á afneitun sem varnarkerfi sem byggist upp á nokkrum sálfræðilegum ferlum sem miða að því að draga úr árvekni einstaklingsins gagnvart þeirri staðreynd að áfengis- og vímuefnaneysla sé orsökin fyrir vandmálum hans frekar en lausnin á þeim. Það er dæmigert að akólhólisti eða fíkill eru þeir síðustu til að viðurkenna að þeir eigi við drykkju- eða neysluvandamál að etja. Afneitunin verður óaðskiljanlegur hluti af sjúkdómsferlinu í efnafíkn, ein aðalhindrunin í bataferlinu og þverhnípið sem einstaklingurinn fellur fram af þegar hann snýr aftur í neyslu.

Afneitunin er sá lævísi, torskildi og öflugi hluti efnafíknarinnar sem segir fíklinum að hann eigi ekki við neitt vandamál að stríða. Ef efnafíkill er "í afneitun" gagnvart alkóhólisma sínum eða annarri fíkn þá getur hann ekki hafið vinnu í bataferli sínu. Maður getur ekki unnið með vandamál ef maður viðurkennir ekki tilvist þess.

Þótt ekki sé unnt að lækna sjúkdóminn er hægt að koma á hann böndum og meðhöndla hann (hefta virkni hans). Sjúkdómurinn er miklu flóknari en svo að hann taki einungis til neyslu og misnotkunar á hugarástands-breytandi efna. Á sama hátt er bataferlið miklu flóknara en svo að það snúist bara um það að verða edrú. Því miður trúa margir alkóhólistar og fíkniefnaneytendur því að ef þeir geti bara losað sig við lyfin eða áfengið þá verði allt í lagi með þá og þeir geti tekið við stjórninni á lífi sínu á ný. Afeitrunin ein og sér er sjaldnast nægileg. Til að viðhalda edrúmennsku verður einstaklingurinn að gera breytingar á eigin persónu, samskiptum sínum við aðra og eigin lífsstíl. Þetta tekur tíma – í raun líta flestir fagaðilar, fíklar og alkóhólistar í bata svo á að bati úr efnafíkn sé ævilangt ferli.

Þar eð efnafíkn er fyrst og fremst sjúkdómur, þá gerir árangursrík meðferð kröfur um að það sé litið á hana sem slíka. Í tilviki tvíþættrar truflunar þá kann að vera að einstaklingurinn hafi byrjað að neyta hugarástands-breytandi efna til að takast á við eða hylja sársaukann sem fylgdi geðsjúkdómnum. Efnin sem hann notaði kunna að hafa valdið tímabundnum létti en gerðu ekkert til að lagfæra tilfinnigalega vandamálið sem lá til grundvallar vanlíðaninni. Þetta er kallað sjálfs-lækning og getur auðveldlega leitt til fíknar. Það læknar hins vegar ekki fíknina að lækna geðsjúkdóminn. Þetta eru tveir skýrt afmarkaðir sjúkdómar og hvor um sig þarfnast sértækrar meðferðar sem tekur þó tillit til hins sjúkdómsins. Tólf reynsluspor Dual Recovery Anonymous og sá stuðningur sem fæst á fundum Dual Recovery Anonymous deilda býður upp á von og stuðning fyrir þá sem leita hjálpar og heilunar. Von sem hægt er að trúa á og raunhæfan stuðning fólks sem á við sama vanda að stríða.

Það er ekki ætlun okkar að gefa fullkomna vísindalega útlistun á þeim hugtökum sem hér hafa verið til umfjöllunar. Efnafíkn, fíkn og afneitun eru mjög flókin fyrirbæri sem ótölulegur fjöldi bóka hafa verið skrifaðar um og mörg sjónarmið hafa verið þar á lofti. Upplýsingar þær sem hér er að finna er almennt yfirlit, einkum ætlaðar leikmönnum til að útskýra hugtök sem eru notuð í tengslum við þess vefsíðu og tvíþættum bata þeirra sjálfra. Einstaklingur er í tvíþættum bata þegar hann fylgir á virkan hátt bataáætlun sem tekur til bataþarfa hans. Bataþarfa fyrir efnafíkn sína annars vegar og hins vegar fyrir geðsjúkdóm sinn.

Athugið: Sumir einstaklingar sem eru í tvíþættum bata verða að taka lyf sem geta leitt til misnotkunar eða þeir geta orðið líkamlega háðir þeim. Ef lyfjaskammtur er rétt stilltur og samviskusamlega farið eftir fyrirmælum læknis þá geta þessi lyf verið mikilvægasta tækið við að hafa stjórn á geðrænum einkennum og geta skipt sköpum um tvíþættan bata og velferð viðkomandi einstaklings. Við sýnum varkárni gagnvart lyfjagjöf og skiljum að stundum eru bara ekki önnur úrræði fyrir hendi. Læknar okkar vita best um það. Við erum strangheiðarleg um allt það sem snertir tvíþættan sjúkdóm okkar og neyslusögu við lækna okkar og annað fagfólk sem kemur að meðferð okkar. Þegar við tökum þessi lyf í samræmi við fyrirmæli læknis og bataáætlanir þá munu þau ekki trufla edrúmennsku okkar. Dual Recovery Anonymous gerir sér grein fyrir því að geðlyf eru notuð til að hafa stjórn á geðrænum einkennum og eru ekki tekin til að komast í vímu. Þess vegna er ekki litið svo á að lyfjafgjöf samkvæmt lyfseðli læknis sé það sama og bakfall.  (see Medications and Recovery) af upplýsingavef DRA

 

 

Sennilega er læknadópsneysla betur falin og mun algengari en "venjuleg" dópneysla, spurningin er havð er til ráða?

 

Hvernig getum við varist? Hvernig getum við varst að "börnin" okkar fari útí læknadóps neyslu?

Sennilega hryllir öllum foreldrum við að hugsa til þess að börnin þeirra eigi kansi eftir að sökkvast í þennan andskota.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Púff.. þetta er svo sannarlega mikið böl.

Ester Sveinbjarnardóttir, 5.4.2007 kl. 00:51

2 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég er fíkill í súkkulaði, gott að það eru að koma páskar, þá fær maður sér kannski páskaegg.

Svava frá Strandbergi , 5.4.2007 kl. 01:01

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já mikið böl, það er sko vægt til orða tekið.

Jú það er hægt að ánetjast súkkulaði, en það held ég að sé ekki neitt skilt við þetta risa vandamál.

Ég einhvernvegin hef trú á að það verði ekki mikið um comment hér, fók (afar margt) er hreinlega hrætt við að tjá sig um þetta mikla vandamál.

Sigfús Sigurþórsson., 5.4.2007 kl. 01:11

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Takk fyrir góðan og tímabæran pistil.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.4.2007 kl. 01:24

5 Smámynd: halkatla

vá takk fyrir þetta! aldeilis fræðandi.... og skuggalegt, ég segi bara einsog þú, Kompás er rosalegur þáttur.

halkatla, 5.4.2007 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 159233

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

32 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband