Mest eykst fylgið meðal kvenna!

 

Grænu flokkarnir á niðurleið, með ca 18% fylgi samanlagt.
Ef næstu skoðanakannanir verða á svipuðum nótum, hvað þá?
Í þessari skoðanakönnun tóku tæplega 60% aðspurðra afstöðu.

 

Fréttablaðið í dag birti eftirfarandi grein um skoðanakönnunina:

Fylgi Sjálfstæðisflokks eykst
Sjálfstæðisflokkur fengi 29 þingmenn, væri gengið til kosninga nú, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins. Fylgi Vinstri grænna dalar verulega frá síðustu könnun og er nú tæp sautján prósent. Hvorki Íslandshreyfingin né Baráttusamtök eldri borgara og öryrkja fengju mann kjörinn.
Skoðanakönnun Landsfundir Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar gætu haft nokkur áhrif á niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Fréttablaðsins sem gerð var í gær.

Samkvæmt henni eykur Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt verulega og mælist nú með 43,4 prósent. Vikmörk reiknast 4,4 prósentustig og því er hægt að segja með 95 prósenta vissu að fylgi flokksins sé nú á bilinu 39,0 til 47,8 prósent. Ef þetta yrðu niðurstöður kosninga fengi flokkurinn 29 þingmenn kjörna. Mest eykst fylgið meðal kvenna og á höfuðborgarsvæðinu, um tíu prósentustig, en alls eykst fylgið um 7,3 prósentustig frá síðustu könnun blaðsins þegar 36,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku sagðist myndu kjósa flokkinn.

Frjálslyndi flokkurinn eykur einnig fylgi sitt milli kannana og segjast nú 5,8 prósent myndu kjósa flokkinn. Fengi flokkurinn samkvæmt því þrjá þingmenn kjörna. Í síðustu könnun blaðsins sögðust 4,4 prósent myndu kjósa flokkinn. Mest eykst fylgi flokksins á landsbygginni, um 3,8 prósentustig. Vikmörk við fylgi Frjálslynda flokksins er 2,1 prósentustig og er fylgið þá á bilinu 3,7 til 7,9 prósent.

Þriðji flokkurinn sem eykur fylgi sitt á milli kannana er Samfylkingin, sem líkt og Sjálfstæðisflokkur heldur landsfund sinn nú um helgina. Áhrif landsfundar virðast þó minni á Samfylkingu en Sjálfstæðisflokk og eykst fylgi flokksins um rúm prósentustig á milli kannana. Nú segjast 22,3 prósent þeirra sem afstöðu tóku myndu kjósa Samfylkingu og fengi flokkurinn samkvæmt því fimmtán þingmenn kjörna. Í síðustu könnun blaðsins hafði hann 21,0 prósenta fylgi. Samkvæmt þessari könnun er Samfylking aftur orðin næststærsti flokkurinn. Mest eykst fylgið á landsbyggðinni, um 4,1 prósentustig. Vikmörk við fylgi Samfylkingar eru 3,7 prósentustig og fylgið því á bilinu 18,6 til 26,0 prósent.

Hvorugt tveggja nýrra framboða myndi ná manni á þing, ef skoðanakönnunin yrði niðurstaða kosninga. Baráttusamtök eldri borgara og öryrkja mælast einungis með 0,8 prósenta fylgi með vikmörk upp á 0,8 prósentustig. Allt fylgið mælist á höfuðborgarsvæðinu.

Íslandshreyfingin er nú komin niður fyrir fimm prósenta markið og fengi því engan jöfnunarmann. 2,3 prósent segjast nú myndu kjósa hreyfinguna en í síðustu könnun blaðsins sögðust 5,0 prósent myndu kjósa hana Mest missir hreyfingin fylgi meðal karlmanna, 3,8 prósentustig. Vikmörk reiknast 1,3 prósentustig.

Fylgi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs dalar verulega frá síðustu könnun blaðsins en það fer úr 23,3 prósentum í 16,7 prósent. Fylgið dregst því saman um rúman fjórðung. Samkvæmt þessu fengi flokkurinn ellefu þingmenn kjörna, í stað sextán í síðustu könnun blaðsins. Mest minnkar fylgið meðal kvenna, um tíu prósentustig. Þá dregst fylgi flokksins saman um tæp átta prósentustig á landsbyggðinni. Vikmörk fylgis Vinstri grænna eru 3,3 prósentustig og er fylgið því á bilinu 13,4 til 20,0 prósent.

Fylgi Framsóknarflokksins dalar lítillega frá síðustu könnun. Nú segjast 8,6 prósent myndu kjósa Framsóknarflokkinn, en í síðustu könnun blaðsins voru það 9,4 prósent. Samkvæmt því myndi flokkurinn fá fimm þingmenn kjörna. Vikmörk reiknast 2,5 prósentustig, sem þýðir að fylgið er á bilinu 6,1 til 11,1 prósent.

Þingmeirihluti núverandi stjórnar heldur því, samkvæmt þessari könnun. Samanlagt hafa stjórnarflokkarnir 52,0 prósenta fylgi og fengju 34 þingmenn kjörna. Stjórnarandstöðuflokkarnir og ný framboð fengju 48,0 prósent atkvæða og 29 þingmenn

Hringt var í 800 manns á kosningaaldri laugardaginn 14. apríl og skiptust kjósendur jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir kjördæmum. Spurt var: Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til kosninga nú? 59,9 prósent aðspurðra tóku afstöðu en 31,3 prósent voru óákveðin. 6,6 prósent svöruðu ekki spurningunni og 2,3 prósent sögðust ætla að skila auðu eða ekki ætla að kjósa. svanborg

@frettabladid.is

Ef myndband virkar ekki þá smelltu hér.

Ætlar Sjálfstæðisflokkurinn þá bara að rúlla þess upp?

 

Ef næstu skoðanakannanir verða á svipuðum nótum, hvað þá? Það er eingin spurning, að sjálfsögðu heldur ríkisstjórnin velli. Hvernig á að snúa þessu við?

 

 

Hann Ragnar Bjarnason bloggvinur Framsóknarmaður með miklu meiru setti upp nokkuð "skemmtilega" töflu um hverjir yrðu Alþingismenn miðað við nýjustu könnun Capacent-Gallup, og læt ég hana flakka hér.

 

Reykjavík Suður Reykjavík Norður Suðvestur 
Geir H HaardeDGuðlaugur Þór ÞórðarsonDÞorgerður Katrín GunnarsdóttirD
Ingibjörg Sólrún GísladóttirSKatrín JakobsdóttirVBjarni BenediktssonD
Kolbrún HalldórsdóttirVGuðfinna BjarnadóttirDÖgmundur JónassonV
Björn BjarnasonDÖssur SkarphéðinssonSGunnar SvavarssonS
Illugi GunnarssonDPétur BlöndalDÁrmann Kr. ÓlafssonD
Ágúst Ólafur ÁgústssonSÁrni Þór SigurðssonVJón GunnarssonD
Álfheiður IngadóttirVSigurður Kári KristjánssonDGuðfríður Lilja GrétarsdóttirV
Ásta MöllerDJóhanna SigurðardóttirSRagnheiður Elín ÁrnadóttirD
Birgir ÁrmannssonDPaul NikolovVRagnheiður RíkharðsdóttirD
Auður Lilja ErlingsdóttirVMagnús Þór HafsteinssonFKatrín JúlíusdóttirS
Ásta R. JóhannesdóttirSHelgi HjörvarSGestur SvavarssonV
    Kolbrún StefánsdóttirF
Norðvestur Norðaustur Suður 
Sturla BöðvarssonDKristján Þór JúlíussonDÁrni M. MathiessenD
Jón BjarnasonVSteingrímur J. SigfússonVBjörgvin G. SigurðssonS
Guðbjartur HannessonSValgerður SverrisdóttirBÁrni JohnsenD
Magnús StefánssonBArnbjörg SveinsdóttirDAtli GíslasonV
Einar Kristinn GuðfinnssonDKristján MöllerSGuðni ÁgústssonB
Guðjón Arnar KristjánssonFÞuríður BackmanVKjartan ÓlafssonD
Einar Oddur KristjánssonDÓlöf NordalDLúðvík BergvinssonS
Ingibjörg Inga GuðmundsdóttirVBjörn Valur GíslasonVBjörk GuðjónsdóttirD
Herdís SæmundardóttirBBirkir Jón JónssonBAlma Lísa JóhannsdóttirV
  Höskuldur Þór ÞórhallssonBGrétar Mar JónssonF

Einhver smávægilegur nafna ruglingur getur verið hér með fólk og kjördæmi en gaman að þessu samt.

Verður þessu nokkuð snúið við úr þessu?


mbl.is Fylgi VG minnkar samkvæmt nýrri könnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Fólk er ótrúlega vanafast, og trúir því statt og stöðugt að ef vinstri stjórn komist að þá fari allt til fjandans. Svo ég býst alveg eins við því að D-listinn hafi vinninginn, ég er sjálf alveg þrælpólitísk þó ég skrifi aldrei á bloggið neitt um stjórnmál. EN.....hvað ég kýs....það verður örugglega leyndarmál.

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 15.4.2007 kl. 14:38

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Jú jú fólk er vanafast, allavega margir. Ég væri ekki hissa á að óvissu atkvæði séu fleiri en við erum að sjá.

Sigfús Sigurþórsson., 15.4.2007 kl. 15:14

3 Smámynd: Sóldís Fjóla Karlsdóttir

Smásvar inni á þínu bloggi. Eins og þú og sjálfsagt allir vita, er það að vera doktor ekki endilega það að vera læknir, það er hægt að vera doktor í svo mörgu. Annars eru konur rétt eins og karlar, góðar í sumu og ómögulegar í sumu. Það hefur reynslan kennt mér. En ég verð nú að játa það að ég hef unnið með báðum kynjum og líkar eiginlega betur við suma karlana, þeir eru ekki eins flóknir....hemm. Ekki einfaldari! Ég á börn og barnabörn af báðum kynjum og þykir jafnvænt um bæði kynin. Bara til að forðast misskilning. Jæja, nú ætla ég að hætta þessu tuði. Bestu kveðjur.....Sóldís Fjóla 

Sóldís Fjóla Karlsdóttir, 15.4.2007 kl. 15:50

4 identicon

Mér sýnist Ragnar Bjarnason vera að leika sér með tölur frá Capacent-Gallup en ekki úr síðustu könnun Fréttablaðsins enda er hún MEINGÖLLUÐ.

Guðmundur Guðmundsson 15.4.2007 kl. 16:17

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Það er bara alveg hárrétt hjá þér meistari Guðmundur, þetta þarf að leiðrétta.

Sigfús Sigurþórsson., 15.4.2007 kl. 16:38

6 identicon

Ég veit nú ekki til hvers er veriða að leggja þetta á sig, það er nú nokkuð til kosninga. Spyrjum að leikslokum.

Óli Tomm. 15.4.2007 kl. 17:00

7 Smámynd: Ragnar Bjarnason

Sammála þessu með leikslokin en þegar maður hefur gaman af tölum þá leikur maður sér stundum. Eitt rangt hjá mér í þessu, Höskuldur Þór og Grétar Mar færðust um dálk til vinstri og lentu því í vitlausu kjördæmi. Gerðist við yfirfærslu úr excel skjali á bloggið. Höskuldur er í NA en Grétar Mar í Suður.

Ragnar Bjarnason, 15.4.2007 kl. 17:56

8 Smámynd: Georg Eiður Arnarson

Kolbrún á f er í sv

Georg Eiður Arnarson, 15.4.2007 kl. 20:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Okt. 2024
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 159207

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

79 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband