Gáta dagsins.

Vísnagáturnar sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er nein sérstök tímasetning á innsetningu á gátum.

.

SSvisnagatur

 

Fyrri gáta dagsins er svohljóðandi:.

,

Stendur stinnum pörum á.

Stynur sé þunginn hastur.

Færður inn en rifinn frá.

Frjáls ef ekki er fastur.

 

Rétt svar barst við fyrri gátu dagsinn kl.07.06

Rétt svar er: Stóll

Höf: Sigfús Sigurþórsson

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

 

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sko, bara í fyrsta, þetta er alltof létt fyrir þig, það er á hreinu að svarið við gátunni vissir þú ekki fyrir, því hún er frumsamin.

Góður Gunnar, svarið er: Stóll

Sigfús Sigurþórsson., 18.4.2007 kl. 07:26

2 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Þið eru nú meiru snillingarnir í þessu, ég gat ómögulega komið auga á lausnina, en svo blasir hún við.  Sigfús ertu kanski að yrkja meira?

Ester Sveinbjarnardóttir, 18.4.2007 kl. 08:36

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, ég á nú einhverstaðar í drasli riss skruddur, ca. 20 ára gamlar, þar eru ca. 400 vísnagátur, ég bara hef ekki hugmynd um hvar þær eru og nenni ekki að leita að þeim, miklu skemmtilegra að hafa þetta nýtt.

Sigfús Sigurþórsson., 18.4.2007 kl. 08:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

33 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband