Mánudagur, 4. júní 2007
Heildar yfirlit á strandi og björgun Wilson Muuga.
Hér er á að líta yfirlit yfir flest það sem bar fyrir góma varðandi Wilsonn Muuga, allt af Mbl.
Flutningaskip strandar við Sandgerði
Innlent | Morgunbl. | 24.4.2007 | 5:30
Altjónsstimpill á Wilson Muuga
Það kemur ekki á óvart að flutningaskipið Wilson Muuga sem selt verður til Líbanons fyrir nokkru betra verð en brotajárnsverð, sé nú stimplað sem altjónað skip eða Total loss af hálfu tryggingafélags þess. Tryggingabæturnar eru greiddar í samræmi við þessa flokkun en heildarupphæðin mun vera um 170180 milljónir.
Innlent | Morgunbl. | 23.4.2007 | 5:30
Wilson Muuga selt og fer til viðgerðar í Líbanon
Ég er ekki kominn með nafnið á fyrirtækinu, það er ekki búið að ganga frá undirskrift, en eftir viðræður helgarinnar erum við komnir að niðurstöðu. Þetta er heiðursmannasamkomula og ef báðir standa við sitt er þetta frágengið," segir Guðmundur Ásgeirsson stjórnarformaður Nesskipa, en síðdegis í gær varð ljóst að flutningaskipið Wilson Muuga, sem bjargað var í síðustu viku af strandstað við Hvalsnes, yrði selt til Líbanons.
Innlent | Morgunbl. | 20.4.2007 | 5:30
Áhugi á Wilson Muuga
Fjórir hafa sýnt áhuga á að eignast flutningaskipið Wilson Muuga sem bjargað var af strandstað við Hvalsnes á dögunum. Hugsanlega mun fulltrúi mögulegs kaupanda skoða skipið þegar í dag, að sögn Guðmundar Ásgeirssonar, framkvæmdastjóra Nesskipa.
Innlent | mbl.is | 17.4.2007 | 23:10
Wilson Muuga í höfn
Dráttarbáturinn Magni kom með flutningaskipið Wilson Muuga til Hafnarfjarðar laust eftir klukkan 23 í kvöld. Flutningaskipið var dregið af strandstað við Hvalsnes um klukkan 17:30 í dag en það strandaði í desember á síðasta ári. Siglingin fyrir Garðsskaga gekk vel og er Wilson Muuga nú í suðurhöfninni í Hafnarfirði skammt frá stóru flotkvínni sem þar er.
Innlent | mbl.is | 17.4.2007 | 18:01
Sérlega vel að þessu staðið
Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra kom á vettvang við Hvalsnes núna rétt fyrir kl. 18 til þess að fylgjast með lokum á björgun Wilson Muuga, en þá var skipið komið vel út á sjó. Hún sagði að björgunin væri til marks um fumlaus vinnbrögð og góðan undirbúning. Þetta er fagnaðarefni fyrir okkur öll og það var sérlega vel að þessu staðið, sagði ráðherra.
Innlent | mbl.is | 17.4.2007 | 17:23
Byrjað að draga Wilson Muuga af strandstað
Byrjað var að draga flutningaskipið Wilson Muuga af strandstað nú síðdegis á háflóði og er skipið nú þegar komið talsvert frá staðnum þar sem það strandaði við Hvalsnes. Dráttarbáturinn Magni dregur skipið og að auki taka tveir bátar þátt í björgunartilraununum, og freista þess að stýra flutningaskipinu út rennu, sem liggur beint fyrir aftan það.
Innlent | Morgunbl. | 17.4.2007 | 5:30
Wilson Muuga tilbúið fyrir brottför af strandstað
Eftir fjögurra mánaða legu á strandstað við Hvalsnes er loksins komið að stóru stundinni. Reynt verður að draga flutningaskipið Wilson Muuga á flot í kvöld eða annað kvöld. Fimmtudagurinn kemur líka til greina ef veðrið er ómögulegt hina dagana. Ef ekki tekst að draga skipið út að þessu sinni verður beðið fram í maí eftir næsta stórstraumsflóði og víst er að tíminn vinnur ekki með skipinu sem sætir miklu sjávarálagi í fjörunni.
Innlent | mbl.is | 16.4.2007 | 0:25
Björgunarbátum Wilson Muuga siglt í land
Báðir björgunarbátar flutningaskipsins Wilson Muuga voru settir í sjóinn á flóðinu í dag og var bátunum, sem eru vélknúnir, siglt fyrir eigin vélarafli til Sandgerðis. Björgunarsveitarmenn frá Sigurvon fylgdu bátunum til hafnar á björgunarbátnum Sigga Guðjóns. Ferðin gekk vel þrátt fyrir að smá alda væri á leiðinni.
Innlent | mbl.is | 28.3.2007 | 12:36
Wilson Muuga dregið af strandstað 16.-18. maí
Áfallinn kostnaður vegna aðgerða við að koma í veg fyrir tjón vegna brennslu olíu Wilson Muuga nemur 69 milljónum króna. Samkomulag hefur náðst á milli íslenska ríkisins og eigenda skipsins um flutning skipsins af strandstað og er gert ráð fyrir að það verði dregið út á stórstraumsflóði 16.-18. maí. Þetta kom fram á fundi Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra með blaðamönnum nú í hádeginu.
Innlent | mbl.is | 28.3.2007 | 10:40
Samkomulag um að fjarlægja Wilson Muuga
Tekist hefur samkomulag milli íslenska ríkisins og eigenda Wilson Muuga um hvernig staðið verður að fjarlægingu skipsins af strandstað. Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra mun kynna fjölmiðlum samkomulagið við Hvalsnes klukkan 12:00 í dag.
Innlent | Morgunbl. | 21.2.2007 | 5:30
Skoða þarf betur mengað svæði í nágrenni Sandgerðis og Garðs
Starfsmenn Náttúrustofu Reykjaness flugu ásamt fulltrúum Umhverfisstofnunar yfir svæði í nágrenni Sandgerðis og Garðs í gær án þess þó að sjá neina olíumengun. Hins vegar fannst dauð og olíublaut æðarkolla við Hvalsnes þar sem flutningaskipið Wilson Muuga hefur legið á strandstað í rúma tvo mánuði. Er fuglinn hinn fyrsti sem finnst dauður úr olíumengun.
Innlent | Morgunbl. | 20.2.2007 | 5:30
Ekki bráð hætta vegna mengunar
Umhverfisstofnun telur ekki að fuglastofnum stafi bráð hætta af olíumengun sem orðið hefur vart við í fiðri fugla á Suðurnesjum. Forstöðumaður Náttúrustofu Reykjaness segir alltaf alvarlegt þegar fuglar lendi í olíu en tekur undir það að afleiðingarnar séu ekki alvarlegar, það er að segja ef ekki verður vart við fleiri olíublauta fugla.
Innlent | Morgunbl. | 1.2.2007 | 5:30
Engin niðurstaða um Wilson Muuga
Engin niðurstaða fékkst á fundi fulltrúa útgerðar Wilsons Muuga og Umhverfisstofnunar í gær, að sögn Guðmundar Ásgeirssonar, stjórnarformanns Nesskipa. Á fundinum var farið yfir málið og lögðu fulltrúar Nesskipa þar fram drög að mögulegum aðgerðum.
Innlent | Morgunbl. | 26.1.2007 | 5:30
Skoða lögfræðilega stöðu Wilsons Muuga
Lögfræðingar samgönguráðuneytisins og Siglingastofnunar eru að fara yfir lögfræðileg álitamál í sambandi við hreinsun vegna strands Wilsons Muuga við Hvalsnes.
Innlent | Morgunbl. | 25.1.2007 | 5:30
Borga ekki meira en 74 milljónir kr. fyrir björgun skips
Eigendur flutningaskipsins Wilsons Muuga telja sér ekki skylt að greiða meira en 74 milljónir króna vegna hreinsunar á strandstað við Hvalsnes þar sem flakið af Muuga liggur, og telja sig í fullum rétti til þess að takmarka sig við þessa fjárhæð, samkvæmt ákvæðum siglingalaga. Að sögn Guðmundar Ásgeirssonar stjórnarformanns Nesskips hefði átt að innleiða nýjar takmörkunarfjárhæðir fyrir áratug upp í rúmlega 200 milljónir króna en svo virðist sem Íslendingar hafi fyrir einhvern misskilning sofið á verðinum hvað það snerti.
Innlent | mbl.is | 24.1.2007 | 12:25
Aðeins einn olíublautur fugl á Rosmhvalanesi
Nokkuð af olíu fór í sjóinn þegar flutningaskipið Wilson Muuga strandaði við Hvalsnes skömmu fyrir jól. Olían virtist hins vegar hafa brotnað fljótt niður og menn urðu ekki varir við olíublauta fugla í kjölfarið. Í fuglatalningu Náttúrufræðistofnunar, sem m.a. fór fram á þessu svæði, sást aðeins einn olíublautur æðarfugl í Ósum við Hafnir en slíkir fuglar sjást yfirleitt í hverri talningu, án þess að stórslys hafi orðið.
Innlent | mbl.is | 11.1.2007 | 10:02
Danski varnarmálaráðherrann heiðrar starfsmenn Landhelgisgæslunnar
Søren Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, veitti við athöfn sem fram fór í höfuðstöðvum Landhelgisgæslu Íslands klukkan 10 í dag starfsmönnum Landhelgisgæslunnar sem unnu að björgun sjómanna af danska varðskipinu Triton þann 19. desember sl., heiðursviðurkenningu.
Innlent | mbl.is | 5.1.2007 | 8:30
Hreinsun olíu úr lest Wilson Muuga lokið
Í gær var lokið við að hreinsa olíu úr lest Wilson Muuga og búnaður og mannskapur hefur verið fluttur í land. Í allt náðust um 40 tonn í þessum áfanga en það er mun meira en búist var við. Umhverfisstofnun telur að hættan á bráðamengun hafs og stranda sé ekki mikil og því bíður það eiganda skipsins að fjarlægja flakið af strandstað.
Innlent | Morgunbl. | 3.1.2007 | 5:30
Nauðsynlegt að draga Wilson Muuga ofar í fjöruna
Einar Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Hringrásar, segir að eigi að vera hægt að rífa flutningaskipið Wilson Muuga, sem strandaði við Hvalsnes fyrir jól verði að draga skipið ofar í fjöruna. Hann segir nauðsynlegt að gera þetta sem fyrst því að hætt sé við að skipið brotni í öldurótinu og þá verði erfiðara að draga það.
Innlent | mbl.is | 30.12.2006 | 11:00
Móttaka fyrir þá sem tæmdu olíuna úr Wilson Muuga
Jónína Bjartmarz, umhverfisráðherra, hefur boðið öllum þeim sem komu að aðgerðum á staðnum þar sem flutningaskipið Wilson Muuga strandaði, til móttöku í ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í Reykjavík í dag.
Innlent | mbl.is | 28.12.2006 | 17:25
10-15 tonn af olíublönduðum sjó eftir í lestarrými Wilson Muuga
Lokið var nú síðdegis við að dæla olíu úr tönkum flutningaskipsins Wilson Muuga þar sem það strandaði við Hvalsnes, alls 95 tonnum. Eftir í skipinu er olíublandaður sjór í lestarrými, sem hefur pumpast þangað úr rifnum botntönkum. Áætlað magn þeirrar olíu sem þar er eftir er 10-15 tonn. Segir Umhverfisstofnun, að hreinsun olíunnar úr lestarrýminu kalli á annars konar aðgerðir og getitekið nokkra daga en ekki sé lengur bráð hætta af þeirri olíu sem eftir er í skipinu á meðan það stendur af sér veður og sjógang.
Innlent | mbl.is | 28.12.2006 | 15:40
Næstu skref varðandi Wilson Muuga liggja ekki fyrir
Guðmundur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Nesskipa hf. segir ekki liggja fyrir hver næstu skref verða varðandi flutningaskipið Wilson Muuga, sem situr á strandstað skammt suður af Sandgerði, en verið er að ljúka olíudælingu úr síðutönkum skipsins.
Innlent | mbl.is | 28.12.2006 | 15:34
Bráðamengunarhætta á strandstaðnum liðin hjá
Dælingu olíu úr síðutönkum flutningaskipsins Wilson Muuga, sem situr á strandstað skammt suður af Sandgerði, er nú við það að ljúka samkvæmt upplýsingum Gottskálks Friðgeirssonar, fulltrúa Umhverfisstofnunar á strandstað. Það er búið að dæla í allan dag og hefur það gengið mjög vel þannig að nú eru bara dreggjarnar eftir, sagði hann er blaðamaður mbl.is náði tali af honum fyrir stundu. Þetta er sem sagt alveg að klárast og þegar það verður komið verður bráðamengunarhætta liðin hjá.
Innlent | Morgunbl. | 28.12.2006 | 5:30
Tugir tonna af olíu í sjóinn
Ljóst er að umtalsvert magn af bæði svart- og dísilolíu fór í sjóinn við strand flutningaskipsins Wilson Muuga. Dæling á olíu úr skipinu hófst í fyrrinótt og stóð enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prentun. Þá hafði alls rúmum 60 tonnum af olíu verið dælt úr skipinu. Um borð í Muuga voru alls 120 tonn af svartolíu og 17 tonn af dísilolíu.
Innlent | mbl.is | 21.12.2006 | 15:41
Minningarathöfn um danska sjóliðsforingjann sem lést við
björgunaraðgerðir
Innlent | mbl.is | 20.12.2006 | 14:23
Lítið hægt að gera á strandstaðnum í dag
Innlent | mbl.is | 20.12.2006 | 9:00
Innlent | mbl.is | 19.12.2006 | 12:38
Búið að sækja lík danska skipverjans og flytja það til Reykjavíkur
Innlent | mbl.is | 19.12.2006 | 10:10
Lík danska varðskipsmannsins fundið; björgunarsveitir meta aðstæður
Innlent | mbl.is | 19.12.2006 | 8:37
Varðskipsmenn af danska varðskipinu Triton fóru í sjóinn; einn beið
bana
Innlent | mbl.is | 19.12.2006 | 7:57
Flogið verður með menn í flutningaskipið til að meta björgunaraðstæður
Wilson Muuga á leið til Líbanons | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkar: Bækur, Dægurmál | Breytt 5.6.2007 kl. 07:10 | Facebook
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- halkatla
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Baldvin Jónsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Bjarni Harðarson
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyþór Jónsson
- Fannar frá Rifi
- Fararstjórinn
- Friðjón R. Friðjónsson
- Gestur Halldórsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Svava frá Strandbergi
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gylfi Björgvinsson
- Hafsteinn Karlsson
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Baldursson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Jens Guð
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolgrima
- Kristján Jónsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Sigurðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurður Sigurðsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Traustadóttir
- gudni.is
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur fannberg
- Ólöf Nordal
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Örvar Þór Kristjánsson
- Þóra Hermannsdóttir Passauer
- Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.