Vísna gáta dagsins.

Gleði og hræðsla, gjörn er þar

gjarnan er þetta kannað

síðar oft sagt hvað þar við bar

stundum rætist og sannað.

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

-

 

 

Rétt svar er: Draumur

Rétt svar barst kl.: 13.17

Rétt svar gaf: Gunar Kr.

Höfundur gátu: Sigfús Sig.

 

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Öllum eru velkomið að þreyta Vísnagáturnar, og koma með svör og svar tillögur í gátur þær sem birtast hér á partners.blog.is

Aðal vísnagátan mun birtast að kvöldi dags, fyrir hvern dag hér á partners.blog.is en undanfarna mánuði hafa þær verið settar inn á ýmsum tímum sólahringsins, undantekning getur þó komið fyrir.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Kr.

Fyrst orðið rætist er þarna... og bæði gleði og hræðsla, fólk flettir upp í ráðningabókum og segir frá... er þetta ekki draumur?

Gunnar Kr., 2.9.2007 kl. 13:17

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, mikið rétt, og ekki lengi að því.

Sigfús Sigurþórsson., 2.9.2007 kl. 13:32

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

 

 

TeningurGatur

Hönd hans gleypti eitt vatna dýr

hrakinn af klukkum og kvalinn

á fljótandi fari fanturinn býr

ferlega illur er talinn.

Sigfús Sigurþórsson., 2.9.2007 kl. 13:36

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei Málfríður, svo er ekki, þessi er mikið skemmtilegri en jafn tilbúinn persóna samt.

Sigfús Sigurþórsson., 3.9.2007 kl. 10:57

5 Smámynd: Gunnar Kr.

Hlýtur að vera einhver sjóræningi... Hvað heitir hann, sem var í myndinni um Pétur Pan?

Gunnar Kr., 3.9.2007 kl. 14:13

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Alveg hárrétt Gunnar Kr. Kobbi Krókur í Pétur Pan.

Sigfús Sigurþórsson., 3.9.2007 kl. 14:58

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 3 er: Kobbi Krókur í Pétur Pan.

Rétt svar barst kl.: 14.58  3/9

Rétt svar gaf: Gunnar Kr. 

Höf. gátu: SigfúsSig.

Sigfús Sigurþórsson., 3.9.2007 kl. 15:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

33 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband