Mikið var af fólki í öllum görðunum.

Það er virkilega vistvænt viðtalið vð Kristján Vídalín Jónsson skrúðgarðyrkjumeistari hér í fréttinni.

Við prinsessan mín fórum í Húsdýra og Fjölskyldugarðinn og svo í Grasagarðinn í dag og það var bara eins á besta degi sumars þar af fólki, hreinlega stappað í Húsdýra hlutanum, færra var svo í Grasagarðinum og ekki get ég nú sagt að hann hafi verið í neinum blóma, en fallegt er þar um að litast samt á þessum tíma.

Viðtalið við Vídalín


mbl.is Sumardagurinn fyrsti í garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskandi að Johnston sé enn á lífi.

Herskáir Palestínumaenn á Gasasvæðinu voru búnir að lýsa því yfir að það hafi farið fram aftaka á Johnston en nú er von um að um hræðsluáróður hafi verið að ræða.

Mahmoud Abbas, leiðtogi Palestínumanna, hefur verið fullvissaður um að breski blaðamaðurinn Alan Johnston, sem er í haldi herskárra Palestínumanna á Gasasvæðinu, hafi ekki verið tekinn af lífi líkt og haldið var fram fyrr í þessari viku. Þá segir Saeb Erekat, aðalsamningamaður Palestínumanna, palestínsk yfirvöld vinna að því að tryggja lausn hans. Þetta kemur fram á fréttavef Ha’aretz. Sigir í fréttinni.

Mahmoud Abbas

Alan Johnston

Alan Johnston


mbl.is Abbas sagður trúa því að Johnston sé á lífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðari gáta dagsins.

Vísnagáturnar sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er nein sérstök tímasetning á innsetningu á gátum.

 

Síðari gáta dagsins er svohljóðandi:.

SSvisnagatur

 

Inn í landi eyjan smá,
á andliti sporið lítur,
þunni anginn þorski á,
í þara oft skipið flýtur.

 

Rétt svar barst við síðari gátu dagsinn kl.13.10

Rétt svar er: Pétur

Rétt svar gaf: Davíð Geirsson. 

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.


Hatursfulla týpan.

Fréttamynd 426344Ekki hefi ég trú á að nokkur eða nokkuð hafi geta komið í veg fyrir þetta.

Drengurinn hefur alla tíð gert afar skringilega hluti, svo sem í skáldskap sínum, uppsetningum á öfgafullum og leikritum sem eru illskan ein, þetta segja bæði samnemendur hans og vinir.

Að kennarar skuli vera búnir að hafa samband við skólastjórn og svo lögreglu sýnir einnig að ekki var allt með felldu og að halda það að byssueign Bandaríkjanna komi þessu eitthvað við, þá er það alrangt, þessi drengur hefði útvegað sér það sem honum langaði í hversu mikið eða lítil bönn voru í gangi, vel er búið að koma fram að hann hefur verið allatíð til vandræða,einnig áður en hann fluttist til Bandaríkjanna.

Þegar maður er búinn að lesa og heyra það sem hefur verið að koma fram dettur manni helst í hug að þessi drengur hafi verið alin upp í hatri og illsku, það jaðrar við að manni detti í hug að hann hafi verið alinn upp til að framkvæma eitthvað voðaverk, og gerast hryðjuverkamaður.

Myndbandið sem Cho Seung-hui sendi NBC News

 

 

 


mbl.is Sendi sjónvarpsstöð pakka á milli árásanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skondnar þessar stjörnuspár.

Fréttamynd 426386Það eiga nú fleiri afmæli í dag, eða réttara sagt í gær þann 18 apríl en Viktoría Beckham og það er til dæmis prinsessan mín Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir, og það fer nú ekkert á milli mála hvor er yndislegri, ja, allavega að mínu áliti.

Ég var að lesa stjörnuspá þessara fegurðardísa og fannst mér ég kannast við ansi margt, við mína prinsessu alla vega, veit ekki um Becham prinsessuna.

 

 

En svo segir í stjörnuspá þeirra hér á Mbl:

Hrúturinn

Hrúturinn er vormerki. Á vorin fer birta vaxandi og veður batnandi. Mesti athafnatími ársins er fyrir höndum. Eðli Hrútsins endurspeglar þetta og birtist meðal annars í þörf fyrir athafnasemi og innri vissu um að lífið bjóði uppá ótal tækifæri. Hrúturinn er fyrir vikið drífandi og fljótur að framkvæma ætlunarverk sín. Að sama skapi er honum illa við alla bið. Hann vill gera það strax sem hann fær áhuga á.
 

Frumkvöðull

Hrúturinn þolir illa reglur, kerfi og vanabindingu, en hefur gaman af nýjum áskorunum. Það má líkja honum við landnema. Hann tendrast upp þegar ný mál eru á dagskrá hans, lifnar við og smitar út frá sér með ákafa sínum, en dofnar og verður leiður ef hann þarf að fást of lengi við það sama. Hann er góður í upphafi, sæmilegur þegar verk er hálfnað en verður oft að beita sig aga til að ljúka verkum. Hann er fæddur brautryðjandi og frumkvöðull, en er síðri í rekstri og vanaverkum.
 

Keppni og áskoranir

Hrúturinn kappsfullur og baráttuglaður að upplagi. Hann er því uppá sitt besta þegar honum er stillt upp við vegg, eða þegar þarf að drífa af ákveðin verk fyrir tilsettan tíma. Þá magnast hann upp. Hann er eldsmerki og þarf því að hafa líf í kringum sig og líður best þegar hann er að keppa eða fást við nýja áskorun. Hann þarf sömuleiðis á hreyfingu og líkamlegri útrás að halda, annað hvort með því að stunda líkamlega vinnu eða í íþróttum, líkamsrækt og útivist. Ef umhverfi hans er líflaust og kallar á vanabindingu og endurtekningar þá tapar hann orku.
 

Fram á veginn

Hrúturinn er lítið gefinn fyrir að horfa um öxl. Hann vill lifa fyrir daginn í dag og horfa fram á veginn. Hann veltir sér því sjaldan upp úr vandamálum, að minnsta kosti ekki til langframa. Ef erfiðleikar steðja að er hann fljótur að hrista þá af sér. Lífið býður alltaf upp á ný tækifæri, nýjar áskoranir og ný verkefni til að keppa að.
 

Fljótfær og uppstökkur

Hinn dæmigerði Hrútur er fljótfær og á til að vera uppstökkur. Hann er tilfinningaríkur og skapstór. Þetta kemur sérstaklega fram ef einhver ætlar að stöðva hann eða hindra hann í að gera það sem hann hefur ætlað sér. Hann þolir ekki tafir. Þá er hætt við að hann rjúki skyndilega upp. Á móti kemur að hann er fljótur að róast og fyrirgefa.
 

Einlægur

Dags daglega, og þegar allt er í lagi, þá er Hrúturinn einlægur og vingjarnlegur í fasi, og yfirleitt hress og jákvæður. Hann er að mörgu leyti það sem kalla má 'hrein sál', eða maður sem flækir hlutina ekki að óþörfu. Hann stundum svolítið barnalegur í einlægni sinni og hreinskilni, en oftast er honum fyrirgefið, því hann meinar í raun ekkert illt með því, þó að hann skjóti á fólk eða slái einstaka sinnum frá sér.
 

Snerpa og hraði

Segja má að Hrúturinn sé skorpumaður og spretthlaupari. Lífsorka hans er hröð og hann starfar einna best þegar mikið er um að vera og krafist er snerpu og skjótrar ákvarðanatöku. Um Hrútinn er sagt að hann eigi að treysta á fyrstu tilfinningu sína í hverju máli. Slíkt reynist honum best.

Þegar talað er um 'Hrútinn' og 'Hrúta', þá er átt við þá sem fæddust þegar Sólin var í Hrútsmerkinu. Þeir einstaklingar hafa 'hjartað' í þessu merki, eða grunneðlið og lífsorkuna.

Staða Tunglsins í merki segir til um tilfinningar, staða Merkúrs um hugsun, Venusar um ást og samskipti, Mars um framkvæmdir, Rísandi merkis um framkomu og staða Miðhimins um (þjóðfélags)markmið. Hver einstakur maður er í nokkrum stjörnumerkjum og þess vegna eru gerð stjörnukort, en ekki bara fjallað um stjörnumerkin.

 

En sú stutta vill ekki meina að hún sé í einhverju hrúta merki, það er svo ljótt nafn segir hún, hún segist vera í pabba merkinu, og segir að hrútarnir séu pabbar allra kinda,,,, og þess vegna er hún í pabba merkinu.

 

 

 


mbl.is Óvissuferð til Parísar í afmælisgjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeim er EKKI óhætt án mín!

Lindsay Lohan finnist hún þurfa að vernda ástvini sína.

„Þegar vinir mínir og ættingjar eru með mér finnst mér þeir vera öruggir. Þegar vinir mínir hafa yfirgefið mig hef ég orðið vitni að því hvernig allt hefur hrunið. Þeim er ekki óhætt án mín.“

 

Lohan segist hafa af því dálitlar áhyggjur að aðdáendur sínir séu orðnir þreyttir á villtu líferni sínu. „Kannski væri ráðlegt að láta lítið fyrir sér fara og ná bata,“ segir hún.

 

Nú þekki ég ekkert um Lohan, en miðað við þessa frétt og tal hennar er ekki einusinni svampur ámilli eyrnanna á henni.

Eða hvað, er ég að lesa eitthvað vitlaust útúr þessu?


mbl.is Lohan svekkt yfir að þurfa í áfengismeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáta dagsins

Vísnagáturnar sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er nein sérstök tímasetning á innsetningu á gátum..

 

-

SSvisnagaturFyrri gáta dagsins er svohljóðandi:.

,

Einhver finnst þar öðrum betri
álitinn sá hólpinn er
Skráð er oftast skýru letri
skýringu ég fram á fer

 

Svarið er: Grein 

 

Einhver finnst þar öðrum betri = Td. í keppnis grein
álitinn sá hólpinn er
= að vera á grænni grein
Skráð er oftast skýru letri
= Td. skrifuð grein, blaða grein, laga grein
skýringu ég fram á fer
. = Td. vill láta gera sér grein fyrir.

 

Rétt svar barst við fyrri gátu dagsinn kl.10.42

Rétt svar er: Grein

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.


Múhamed fór létt með fjallið.

Alveg hreinasta snilld hvað þessi pínulitli korktappi dráttarbáturinn Magni fór létt með Wilson Muuga til Hafnarfjarðar, og talsverður mótvindur var á leiðinni.

Og eins og segir á Mbl.is - Það er enginn vafi á því að góð skipulagning og vönduð vinnubrögð urðu til þess að svo vel tókst að losa flutningaskipið Wilson Muuga af strandstað. Sá sem hvað mest hrós hefur þó fengið vegna aðgerðarinnar er dráttarbáturinn Magni sem sannaði ótvírætt gildi sitt þegar hann togaði flutningaskipið af strandstað og til Hafnarfjarðar í gær.

Myndband:
Myndskeið

mbl.is „Mátti ekkert út af bera"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur varla verið á verri stað.

Fréttamynd 426412

Austurstræti 22, þar sem veitingastaðurinn Pravda er til húsa.

Þetta er vægast sagt afleitur staður og ábyggilega virkilega erfitt fyrir slökkviliðsmenn að athafna sig, sér í lagi baka til.

Reykkafarar hafa farið inn í húsin og hefur slökkvilið sprautað miklu magni af vatni á þau. Mikinn reyk leggur yfir miðborg Reykjavíkur og í átt að Hljómskálagarðinum.

 Fréttamynd 426415

Húsin við Austurstræti eru gömul eins og segir í einni fréttinni á Mbl.is og ljóst að eldur læsist um menningarverðmæti. Veitinga-og skemmtistaðurinn Pravda er í Austurstræti 22 sem er friðað hús, reist árið 1801-1802. Lækjargata 2, þar sem nú logar líka í, er byggt árið 1801 en er ekki friðað. Húsið vestanmegin við Pravda er gamli Hressunarskálinn sem er líka friðað hús og var byggt árið 1805. <em>mbl.is/Júlíus</em>

 

 

Fréttamynd 426416

 Húsin sem brenna eru frá upphafi 19. aldar

fréttamannafundar; enn logar í Austurstræti 22  

Þök rifin af brennandi húsum - gaskútageymslur í hættu Video

Slökkvistarfi lokið að mestu og hreinsunarstörf hafin í miðborginni


mbl.is Þök rifin af brennandi húsum - gaskútageymslur í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáta dagsins II

Vísnagáturnar sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er nein sérstök tímasetning á innsetningu á gátum.

 

SSvisnagatur

Gáta dagsins II er svohljóðandi:.

 

Reyni að grunda rökin snjöll.
Rauf ég læsta kælinn.
Vann á högum hlutum spjöll.
Hlýða læt ég þrælinn.

Svar: Brjóta

Brjóta til mergjar
Brjóta upp
Brjóta
Brjóta niður

 

Ég ætla að gefa Ester Sveinbjarnardóttir rétt fyrir sitt svar

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.


Í tilefni dagsins.

 Í tilefni dagsins kemur þessi, tengist indislegustu veru jarðar.

SSvisnagatur

,

Tveimur nöfnum tekur mín

tengist Guð þeim báðum

annað trú en hitt hátt skín

heldur uppá daginn bráðum.

 

Rétt svar barst við fyrri gátu dagsinn kl.10.29

Rétt svar er: Guðbjörg Sól.

Höf: Sigfús Sigurþórsson

Rétt svar gaf: Ester Sveinbjarnardóttir 

Þakkir til allra þátttakenda.

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.


París Hilton með bíladellu.

Tekur enginn neitt tillit til þess að París er með ólæknandi bíladellu, hvurslags er þetta eginlega?


mbl.is París Hilton kölluð fyrir rétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilld.

The stranded ship - Wilson Muuga
Þetta var bara snilld hjá strákunum, eins við segjum í boltanum,
Valinn hópur manna sem konnu sitt fag í hvívetna.

mbl.is Wilson Muuga stefnir til Hafnarfjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það verður sko reisn yfir þessu.

Það verður sko reisn yfir þessu húsi, en nú fellur reisnin á Smáralindinni sem var, er ég hræddur um, það reyndar hefur aldrei verið nein reisn á henni, lafir þarna bara einhvernvegin.

Fréttamynd 426358     


Gáta dagsins.

Vísnagáturnar sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er nein sérstök tímasetning á innsetningu á gátum.

.

SSvisnagatur

 

Fyrri gáta dagsins er svohljóðandi:.

,

Stendur stinnum pörum á.

Stynur sé þunginn hastur.

Færður inn en rifinn frá.

Frjáls ef ekki er fastur.

 

Rétt svar barst við fyrri gátu dagsinn kl.07.06

Rétt svar er: Stóll

Höf: Sigfús Sigurþórsson

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

 

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.


Þetta náttúrulega getur bara skeð á íslandi.

Undir það síðasta sást aðeins glitta í iljarnar á henni. Nokkrir fílefldir slökkviliðsmenn náðu að smeygja belti utan um konuna og toga hana út er þeir héldu um ökklana á henni.

Þegar konan hafði fengið skóna sína aftur þakkaði hún bara fyrir sig og flaug burt.


mbl.is Konu kippt upp úr gjótu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Getur einhver gefið okkur Álver?

Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðar neikvæð á síðasta ári

Rekstur Hafnarfjarðarbæjar fyrir fjármagnsliði er jákvæður um 805 milljónir krónur á árinu 2006 en rekstrarniðurstaða ársins var neikvæð um 833 milljónir króna samanborið við 1122 milljón króna jákvæða niðurstöðu árið 2005. Segir Hafnarfjarðarbær, að ástæðan fyrir þessari breytingu sé að fjármagnsliðir voru neikvæðir um 1639 milljónir króna, fyrst og fremst vegna lækkunar krónunnar á árinu.

 


mbl.is Rekstrarniðurstaða Hafnarfjarðar neikvæð á síðasta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 159446

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

247 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband