Vísna gáta dagsins.

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

 

-

 

Gáta dagsins er svohljóðandi:

.

Fagur prýðir felgu sá.
Fellur í hann skítur.
Vaknar stundum vanga á.
Varla á sjónum flýtur.

 

-

 

Rétt svar barst við gátu dagsinn kl.06.49

Rétt svar er: Koppur

Rétt svar gaf: Haukur Nikulásson 

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haukur Nikulásson

Koppurinn

Haukur Nikulásson, 2.5.2007 kl. 06:49

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Góðan daginn Haukur.

Að sjálfsögðu er það koppur.

Sigfús Sigurþórsson., 2.5.2007 kl. 07:01

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Óskað hefur verið eftir aukagátu, og kemur hún hér.

Umrætt góður gripur telst.
Guma prýðir klofið.
Seggur þar til setu velst.
Sjaldan þó er rofið.

Sigfús Sigurþórsson., 2.5.2007 kl. 09:01

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ok Gunnar Þór, en orðið kemur dýrum ekkert við, og þó, í einstaka tilfelli er þetta þó notað um dýr.

Afar erfitt fyrir einn að kallast þessu nafni.

Sigfús Sigurþórsson., 2.5.2007 kl. 17:11

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahahaha, gott að húmorinn sé stutt undan, en af hveju alltaf GIB ?

Nei það er ekki hann, en veistu annað, hann sat á þessu orði einu sinni, margir aðrir gera það í dag.

Sjaldan þó er rofið.

Sigfús Sigurþórsson., 2.5.2007 kl. 23:29

6 Smámynd: Haukur Nikulásson

Lokan.

Haukur Nikulásson, 3.5.2007 kl. 10:04

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Góðan daginn drengir, nei hvorugt svarið er rétt.

Þá látum við fjúka sterka vísbendingar:

Þetta orð er mikið nefnt þessa dagana vegna kosninganna

Sigfús Sigurþórsson., 3.5.2007 kl. 10:13

8 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þing.

Haukur Nikulásson, 3.5.2007 kl. 11:15

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og það er hárrétt Haukur.

Rétt svar barst við gátu dagsinn kl.11.15

Rétt svar er: Þingið

Rétt svar gaf: Haukur Nikulásson 

 

Ps. Aukagáta er inn á 3/5

Sigfús Sigurþórsson., 3.5.2007 kl. 11:37

10 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 Hahahaha, já það meiga nú vera smá gátur í svörunum, góður Gunnar Þór, já þú varst með þetta, bara eitthvað hik á þér.

Sigfús Sigurþórsson., 4.5.2007 kl. 07:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 109
  • Frá upphafi: 159087

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 109
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

222 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband