Vísna gáta dagsins.

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

-

 

Gáta dagsins er svohljóðandi:

 

Fugl einn veit ég fljúgandi

fulltíng vængs sá þarf ei neins,

á himni, jörð og helvíti

hann gat verið undir eins.

 

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Vísbendingar koma á eftir svartilraunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Skemmtileg tilgáta, óvitlaus en ekki rétt svar.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 08:20

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, góður, skemmtileg tilgáta, óvitlaus en ekki rétt svar.

En Gunnar Þór og aðrir bloggarar, ekki fara langt frá þessum tilgátum Gunnars Þórs.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 08:41

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Jú jú Gunnar Þór, þetta er ekkert mál, svolítið loðin þessi.

Vísb: Látið hugann reyka, Athugasemd nr.1 hjá Gunnari Þór er alsekki langt frá orðinu.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 11:55

4 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Fljótt flýgur fiskisagan........ eitthvað í þeim dúr kannski?

Margrét St Hafsteinsdóttir, 9.5.2007 kl. 12:33

5 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Illfygli.......... kannski

Margrét St Hafsteinsdóttir, 9.5.2007 kl. 12:36

6 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Ímyndunaraflið

Margrét St Hafsteinsdóttir, 9.5.2007 kl. 12:37

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Yesss, þetta er komið.

Rétt svar barst við gátu dagsins kl.12.34

Rétt svar er: Hugurinn

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 13:48

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og aukagátan í dag verður á svohljóðandi:

Situr við mig þorstlát þjóð
Þykir oft á glasi séð.
Fyrir báru á fiskislóð
Finnst þegar smiður starfi réð.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 13:50

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei hvorgt rétt, en það verður að prófa til að eitthvað mjakist

Þetta er hlutur.

Set gátuna aftur hér fyrir neðan svo hún komi í jöfnum línum.

Situr við mig þorstlát þjóð
Þykir oft á glasi séð.
Fyrir báru á fiskislóð
Finnst þegar smiður starfi réð.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 16:22

10 Smámynd: Davíð Geirsson

Borð

Davíð Geirsson, 9.5.2007 kl. 16:51

11 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Það er sko alveg hárrétt hjá þér Davíð.

Rétt svar barst við auka gátu kl.16.51

Rétt svar er: Borð

Rétt svar gaf: Davíð Geirsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 17:16

12 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 Og þá er það seinni auka gátan fyrir þá bloggara sem hafa áhuga á að spreyta sig:

 

 

 

Á heiði gengu höldar tveir

og hvatlega létu,

bragnar milli báru þeir

það báðir hétu.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 17:25

13 Smámynd: Elsa Rut Jóhönnudóttir

úfff, þessar gátur eru alltof erfiðar eða ég hef ekki næga þolinmæði og sjálfstjórn enda alltaf á því að kíkja á svarið... :/

Elsa Rut Jóhönnudóttir, 9.5.2007 kl. 19:00

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahahaha, góð Elsa Rut, en þannig æfist þetta líka.

Tilvísum:

Maður og hlutur bera sama nafnið.

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 19:08

15 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og það er hárrétt Gunnar Þór.

Rétt svar barst við auka gátu II kl.22.33

Rétt svar er: Ketill

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 9.5.2007 kl. 22:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 107
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

222 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband