Vísna gáta dagsins.

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

-

 

Gáta dagsins er svohljóðandi:

 

Rekkum kvalir rammar vinn
rauðu falin blóði.
Ég hef alið aldur minn
oft í smalahljóði.

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Vísbendingar koma á eftir svartilraunum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Að sjálfsögðu meistari, góóóður.

Rétt svar barst við gátu dagsins kl.07.39

Rétt svar er: Fjöður

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 07:45

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þá setjum við aukagátu hér í gang, og eru þær þá orðnar 2 í gangi:

Dauðinn nafn úr bítum ber
bragna styðja kunni.
Víst því fylgir vatn sem er
vermt af náttúrunni.

 

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 07:48

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hallóóó, flottur, rétt svar Gunnar Þór.

Rétt svar barst við auka gátu dagsins kl.07.58

Rétt svar er: Sigurlaug.

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

 

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 08:44

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og þá kemur Aukagáta II.

-

-

Þá er nærri þundur brands
þegna fallna dregur
síðast upp til sama lands.
Sá er þægilegur.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 08:47

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Eigðu gott frí Gunna Þór, kærar þakkir fyrir verulega skemmtilega þáttöku, sjáumst hér vonadi síðar.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 08:52

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Velkomin aftur.

Ekki rétt, ef þetta er ágiskun.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 08:58

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahahahahahaha, góóóóður,

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 09:15

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar barst við auka gátu dagsins II kl.08.51

Rétt svar er: Naglbítur

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 09:18

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ææ, ég gleymdi, að ég ætlaði að setja inn eina aukagátauna enn.

En hér kemur hún þá:

-

Tekur yfir alla breidd.
Öllu nú hann stendur gegn.
Á brattan klett var konan leidd.
Karlinn stríður varð við fregn.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 10:13

10 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já, sammála þér, ef maður er með opið hugarfar

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 10:47

11 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Góður tenórinn, þarna í þessari gömlu vísu er vísbending góð eins og þú segir Gunar Þór, svo nú vantar bara bloggara þann sem ætlar að ráða gátuna.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 14:25

12 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þessi hér finst mér svolítið smellin, afar auðveld, og þó, gáum.

-

-

Upprunnin er ég

af ókyrleikum,

og haganlega

án handa samin;

finnst ég í sveitum

og við síðu ægis

um merkur fjalls

og í mjóum dölum.

Ýmsir vilja mig

undir sig leggja,

og elta mig

sem óðast megna,

en enginn um hirti

það af mér náði,

þótt ákaflega

eftir sækti;

býðst mér því harðara

sem betri þyki,

en vondri er mér

vægt á stundum,

enda var uppeldi mitt

áníðsla tóm

og undirokun

aukning þroska.

Lokin er gáta,

létt er að ráða.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 14:55

13 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Orðið sem leitað er að er fjögurra stafa orð.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 14:56

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þessi er aftur á móti í okkar hefðbundna dúr.

_

Utan lengst úr löndum

lagað oft með röndum

fang þess best í bú.

Man ég ekki meira,

má það hver einn heyra;

gettu gátu nú.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 15:00

15 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þessi síðasta er gáta í eldri kantinum og svarið ér eftir því.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 15:01

16 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þetta er einfaldlega hárrétt svar meistari Gunnar Þór.

Rétt svar barst við gátu í Athugasemd nr. 19 barst kl.18.06

Rétt svar er: Gata.

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

 

Ps. Hvar í óskupunum geymir þú allar orðurnar? Í gesta húsinu?

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 18:20

17 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já var það ekki? mér fannst eitthvað vera farið að þrengjast hér um mig.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 18:24

18 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Fínt kappi, þá ætla ég að selflytja eitthvað af orðunum þínum niður í kjallara, svona bara svo ég komist um íbúðina, já og svo pláss verði fyrir fleiri.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 18:40

19 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Athugasemd #29

Svar við gátu 21

Utan lengst úr löndum

lagað oft með röndum

fang þess best í bú.

Man ég ekki meira,

má það hver einn heyra;

gettu gátu nú.

Hárrétt, hjá þér Gunnar Þór. Rétt svar er: Mjöltunna.

Rétt svar barst við gátu í Athugasemd nr. 21 barst kl.20.22

Rétt svar er: Mjöltunna.

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 21:11

20 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þú ert nú búinn að geyma þetta svar í allan dag, í þeim tilgangi væntanlega að gá hvort einhver annar svarandi kæmi með svarið, svarið við gátunni í Athugasemd nr.14 er:  Þver.

Rétt svar barst við gátu í Athugasemd nr. 14 barst kl.21.25

Rétt svar er: Þver.

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Kærar þakkir Gunnar Þór.

Þetta er nú búið að vera fullmikið í dag, en nú er hreint borð hér.

Sigfús Sigurþórsson., 11.5.2007 kl. 21:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 159093

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

219 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband