Það er nú bara glæpsamlegt af konum að villa um á sér heimildir.

Það sjá það náttúrulega allir að það er hreinlega glæpsamlegt af konum að lita á sér hárið.

Við getum tekið mjög skír dæmi um það.:

Karl ræfill sem heillast eingöngu af konum með ljóst hár verður kannski yfir sig ástfanginn af einhverjum ljóshærðum engli, sængar með henni, sleikir hana í bak og fyrir, já og jafnvel borðar með henni og giftist henni síðan. Svo einn morguninn vaknar karl anginn við það að KONAN hans er að koma útúr sturtu og er þá rauðhærð.

Það segir sig alveg sjálft að á þessum tímapunkti gæti bara hjartað hans hreinlega stoppað, já og aldrei farið af stað aftur, það kallast morð.

Þetta væri eins og hann hefði boðið síðhærðri ljóshærði fallegri dömu heim og sængaði með henni og þegar húhann ætlaði að þreyfa á eftirsóttu líffæri, kæmi bara í ljós að það væri sko bara allt annað þarna niðri en það sem ætti að vera á konu.

Já það ætti að setja refsilög við hára litun og hananú.

 

Jessica Alba með sinn eigin háralit.Fréttin á Mbl.: Jessica Alba segir að það sé engin lygi að karlmenn veiti ljóskum meiri athygli en konum með annan háralit. Þetta hafi hún sjálf fengið að reyna þegar hún litaði hárið á sér ljóst er hún lék í Fantastic Four og Sin City.

Í viðtali við tímaritið Elle segir Jessica: „Fólk veitir ljóskum miklu meiri athygli en dökkhærðum konum. Það var áreiðanlega horft á mig fjórum til fimm sinnum oftar en þegar ég var með minn eiginlega háralit.“


mbl.is Jessica Alba segir karla í raun og veru hrifnari af ljóskum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Kvennleg fegurð er ekki bara hárið!!!!!,svo maður taki nu þátt/Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 4.6.2007 kl. 13:17

2 Smámynd: halkatla

takk fyrir að vekja athygli á þessari frétt. ég er ein af þessum konum sem villa allsvakalega á sér heimildir. 

halkatla, 4.6.2007 kl. 15:15

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahahaha, já er það Anna Karen, það ér SVAKALEGA varasamt

nei að sjálfsögðu er hárið ekki eina fegurð kvenna, en af hverju er td. litun svona gríðalega algeng? er það vegna þess að fólk er óánægt með sig?

Sigfús Sigurþórsson., 4.6.2007 kl. 15:45

4 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Ég villi líka svakalega á mér heimildir, var platínblond fram að fimmtán ára aldri. Setti þá í það blátt skol í hárið til að lýsa það enn meir og það varð alveg lýsandi fjólubláttt. Daginn eftir ætlaði ég að lita það brúnt en þá varð það knallrautt. Þriðja daginn var ég alveg komin í þrot og  litaði ég þá hárið með enn brúnni lit og þá varð það næstum því kolsvart.
Ég mætti svona í skólann dag eftir dag með sitthvorn háralitinn. þegar ég mætti með rauða litinn á hárinum horfði strangi dönskukennarinn á mig svipþungur alla kennslustundina. Kallaði svo þegar tíminn var að enda á mig fyrir framan allan bekkinn. 'Guðný, viltu koma hér upp að töflunni'
Ég gekk til hans skjálfandi á beinunun meðan hann mældi mig alla út og sagði svo seint um síðar.'Heldurðu að þú vildir þurrka af töflunni Guðný' 

Daginn eftir mætti ég svo með svarta hárið. Ég eiginlega dáist að mér í dag fyrir kjarkinn og ég er ennþá dökkhærð. 

Svava frá Strandbergi , 4.6.2007 kl. 19:51

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, þetta hefur verið meyriháttar aðferðir, en þú gafst ekki upp, þessi kennarui  hefur nú líka verið ágætur, að vera ekkert að rexa í þér. En hvaða litur fannst þér virka best á strákana? þú hefur ekki neitt gefið það upp.

Sigfús Sigurþórsson., 4.6.2007 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 13
  • Sl. viku: 114
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 113
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

224 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband