Er tappinn snarrugglaður? Svo drep ég alla vini þína ...

Svo drep ég alla vini þína ... og enda á þér sjálfum.

Hvað fullorðinn maður með smá glóru lætur svona lagað út úr sér.

Það er á hreinu að þessi, einn af mínum uppáhalds leikurum hefur tapað ÖLLUM sínum prikum frá mér. Vertu sæll.

Hann heldur strangri verndarhendi yfir dætrum sínum þrem gagnvart drengjum sem fara á fjörurnar við þær og vilja fara út með þeim. Hann segist ennfremur halda dætrunum vandlega upplýstum um það hvað 16 til 18 ára drengir hugsa öðru fremur um og langar umfram allt í. „Ég vona að það tryggi öryggi þeirra,“ sagði Bruci Willis í viðtali við People.

 

Dæturnar þrjár, sem hann á með Demi Moore, eru Rumer (18 ára), Scout (15 ára) og Tallulah (13 ára). Willis segist alls ekki vera strangur við strákana sem stelpurnar umgangist.

 

„Ég segist bara vilja fá að hitta þá - ég fer ekki fram á meira. Ég sendi þeim ákveðið augnaráð ... Ég geri alltaf einn þeirra ábyrgan.

 

Ef þær koma með hóp með sér heim til að hafa sundlaugarpartí eða eitthvað ... segi ég við einn þeirra: Þú berð ábyrgðina.

 

Ef eitthvað kemur fyrir einhverja af dætrum mínum leita ég þig fyrst uppi, svo drep ég alla vini þína ... og enda á þér sjálfum.“

 

 


mbl.is Bruce Willis hótar að drepa drengi sem fara út með dætrum hans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á pappírum er erfitt að heyra hvort um kaldhæðinn húmor sé að ræða eða ekki.  Sjálfur hef ég oft sagt eitthvað kaldhæðið í gríni á msn sem alltaf misskilst af því að enginn heyrir tóninn, hvernig ég myndi segja þetta.  Ég er nánast viss um að þetta sé létt grín...annars er mér alveg hundsama um hvað Bruce Willis segir og gerir en vildi bara benda þér á að kannski eru blöðin að nýta sér orðin.

Kristján 5.6.2007 kl. 07:52

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Sæll Kristján, Það bendir nú allt til að þetta sé tekið úr viðtali, það segir í fréttinni> sagði Bruci Willis í viðtali við People. En það svo sem þarf ekki að vera að það sé einusinni rétt, en ef rétt er, en ummæli sem þessi eru afar ámælisverð, svo ekki sé dýpra tekið í árina.

Sigfús Sigurþórsson., 5.6.2007 kl. 18:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 158971

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

230 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband