Vísna gáta dagsins.

Undir og yfir, skín eitt skart

skín oft í myrkri um nætur

sum eru dýr og ferlega smart

skína og þurfa ekki fætur

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

-

 

Rétt svar er: Loftljós

Rétt svar barst kl.: 18.02

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson

Höfundur gátu: SigfúsSig.

 
 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, og mig sjálfan, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda mun það klárlega koma fyrir hjá mér að ég viti ekki höfundarnafnið á öllum gátum sem hér birtast.

Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum né svörum við athugasemdum.

 

Öllum eru velkomið að þreyta Vísnagáturnar, og koma með svör og svar tillögur í gátur þær sem birtast hér á partners.blog.is

Aðal vísnagátan mun birtast að kvöldi dags, fyrir hvern dag hér á partners.blog.is en undanfarna mánuði hafa þær verið settar inn á ýmsum tímum sólahringsins, undantekning getur þó komið fyrir.

 

Einnig eru líkur á að aukagátur verði settar inn í Athugasemdir, eftir að rétt svar hefur borist í síðustu gátu hverju sinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Hehe er sammála Gunnari

Kristín Katla Árnadóttir, 7.9.2007 kl. 11:04

2 Smámynd: Fannar frá Rifi

úr eða réttara sagt tölvuúr? Vekjaraklukka jafnvel?

Fannar frá Rifi, 7.9.2007 kl. 11:27

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 Heil og sæl aftur Fannar og Kristín (Meistara Gunnari Þór var ég búinn að heilsa)

Ekki er neitt af þessu rétta svarið, þótt alveg væri hægt að nota.

Þetta er öllu stærra stykki, og alsekki á ferðinni, nema þá í bílum, skipum og þessháttar.

Betur má ef duga skal.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 12:19

4 Smámynd: Fannar frá Rifi

Kastarar? ljóskastarar?

Fannar frá Rifi, 7.9.2007 kl. 14:13

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Ég vill meina að þokuljós og ljóskastarar geti staðið á fæti, eða fótum - -skína og þurfa ekki fætur - - (og hafa aldrei fætur) 

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 14:22

6 Smámynd: Fannar frá Rifi

Er þetta þá kannski endurskynsmerki?

Fannar frá Rifi, 7.9.2007 kl. 15:10

7 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei Fannar, þetta er hlutur sem inni er á hverju einasta heimili, hverju einasta herbergi hjá þér, allavega flestum, einnig í fyrirtækjum og víðar.

Undir ????? hverju? og yfir ???? hverju? og það lýsir stundum.

skína og þurfa ekki fætur.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 17:41

8 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha,,, kallinn bara drjúgur í dag, haha, þú ert ávallt góður Gunnar þór og léttur í lund.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 17:42

9 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Já djúpur,,,, svona er það þegar maður les bara með öðru auganu.

Þarna kom svarið,,, Loftljós er svarið.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 18:24

10 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

TeningurGatur

 

Ég er hvorki ýlt né ljótt,

og allra hressing manna,

þó er ég einkum notað um nótt

í nauðum aumingjanna.

 

    

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 18:41

11 Smámynd: Fannar frá Rifi

hmmmm. ekki áttu kannski við áfengi???

Fannar frá Rifi, 7.9.2007 kl. 18:48

12 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Nei Fannar, ekki er þetta áfengi, þetta er öllu hollara og bráðnauðsinlegt öllu fólki, ungum sem gölum.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 18:57

13 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Heyrðu, ekki tók ég eftir þessu kappi, og las þó gátuna yfir nokkrum sinnum á meðan ég var að reyna að fatta hana, en þetta er bara einhver prentvilla hjá þeim sem skráðu gátuna inn.

Já einmitt, þótt um aumingja væri að ræða

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 15 er: Rúm

Rétt svar barst kl.: 19.33

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Höf. gátu: J.B.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 19:47

14 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

 

TeningurGatur

 

Velta þeir um víðan heim
Vísur orti snjallar
Óhreinu börnin enduðu í þeim
Eru í veggjum hallar.

    

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 20:01

15 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Akkvurat, seinn/steinar er rétta svarið, og er þetta nokkuð gömul gáta, samt finn ég ekki hver er höfundurinn að henni, svo ef þú, eða einhver annar hvefur höfundarnafnið væri vel þegið að fá það.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 20 er: Steinar

Rétt svar barst kl.: 20.26

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Höf. gátu: Ókunnur

 

.

Ps. Gunnar Þór, ATH, ávísun til þín í Athugasemdum í fyrradag.

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 21:38

16 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

 

TeningurGatur

 

Kaldur, harður og mýkist hratt

hefur hann nafna í fjöllum

oft er í lit og rís nokkuð bratt

orðið er frægt á þeim öllum.

 

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 21:52

17 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Þú ert meistari Málfríður gátubrjótur.

Rétt svar við vísnagátu í ATHS 24 er: Ís

Rétt svar barst kl.: 22.08

Rétt svar gaf: Máfríður Hafdís Ægisdóttir. 

Höf. gátu: SigfúsSig.

 

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 23:10

18 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Leitð var eftir orði,,,,, orðið jökull er hvorki meyra né minna en JÖKULL - orðið ís er ís

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 23:37

19 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

 

 

TeningurGatur

 

Karl einn stundum sýnist mér

svakalega feiminn

sýnir hann stundum hliðina á sér

hefur samt séð allan heiminn.

 

Sigfús Sigurþórsson., 7.9.2007 kl. 23:54

20 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Jæja kappi, er erfitt að sjá að Málfríður var greinilega með réttara svar, ég allavega er ekki í nokkrum vandræðum með það.

Sigfús Sigurþórsson., 8.9.2007 kl. 01:22

21 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Sniðugar vísnagáturnar þínar, en mér hefur aldrei tekist að ráða þær.

Svava frá Strandbergi , 8.9.2007 kl. 11:00

22 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, ekki örvænta með það, ef fylgst er með gátum og svörum í dálítinn tíma lærist þetta og æfist, þannig er það hjá öllum, þótt sumir hafa þetta meira í sér en aðrir, þá geta þetta allir.

Og þar sem þú ert nú mjög skemmtilegt skáld og mikill listamaður tel ég að þetta kæmi fljótt hjá þér Guðný.

Sigfús Sigurþórsson., 8.9.2007 kl. 11:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 101
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

221 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband