Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007
Föstudagur, 13. apríl 2007
Ánægjan getur sko kostað sitt, og ekki bara í peningum.
Kaup og sala frjáls á þessari annars svo ágætu íþrótt og má búast við að sjá mikla aukningu núna á næstu mánuðum og árum, og einmitt eins og er komið í ljós að upptök smits er nú hérlendis en var áður erlendis,
Fram kemur að svo virðist sem meirihluti smitaðra hafi smitast á Íslandi og er það nýmæli miðað við fyrri ár þegar nánast allt lekandasmit átti uppruna sinn erlendis.
Ég spái því að sýkingum muni fjölga um mörg hundruð prósent á næstu 5 árum.
Lekandatilfellum fjölgar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Föstudagur, 13. apríl 2007
Gáta dagsins.
Vísnagáta dagsins er eftirfarandi.
Er með köntum mest um kring,
mikið skemmtir börnum.
Geymir í vatni gras og lyng,
gnægtir af lifandi kvörnum.
Rétt svar barst kl.16.06
Rétt svar er: Fiskabúr (og höfundurinn er Sigfús Sigurþórsson)
Rétt svar gaf bloggarinn: Dúa Dásamlega (Sigþrúður Þorfinnsdóttir.)
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.
Bækur | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Hvaða flokk á ég eiginlega að kjósa?
Nú þarf maður að fara að ákveða sig, hvaða flokk maður á að kjósa?
Ég hef verið með ýmiskonar þreifingar hér á blogginu, sett inn færslur um hina og þessa flokka sem mislítið vit var í, einhverskonar þreifingar.
Ég er búinn að liggja að undanförnu, en þó mest síðustu daga yfir stefnumálum flokkana (nema nýja flokksins, Baráttu-eitthvað) og er alsekki sáttur, alsekki sannfærður. Allir flokkarnir kynna eitthvað frábært í stefnuskrá sinni bæði í blöðum og sjónvarpi. Með miklum tilþrifum og röggsemi útskýra stjórnmálamenn það sem flokkurinn ætlar að standa fyrir, síðan benda hinir og þessir stjórnmálamenn á að ekkert sé að marka það sem þessi eða hinn stjórnmálamaðurinn segir, og svo vel gera þeir það að maður veit ekki hvort maður á að trúa þessum eða hinum stjórnmálamanninum.
Hvað er það sem ég vil að "minn" flokkur framkvæmi, eða standi fyrir, fyrir utan utanríkismálin? (skipti þessu aðeins niður)
Hér stikla ég á stóru og fer ekki ítarlega í hvern lið, enda eru stundum margir flokkar með jafnvel sama lið en þá er bara að sjá á hverja mér lýst best..
Hvað og hverju vill ég að "minn" flokkur standi fyrir:
Laga launakjör þeirra lægst launuðu.
Leifa öldruðum að vinna fyrir tekjum án tekjuskerðingar ellilífeyris.
Gjörbreyta sjávarútvegsstefnunni.
Skóla og leikskólamál, jafnvel frýja leikskóla (ekki hinn almenn skóla)
Átak svo um munar í stuðningi við fötluð og langveik börn.
Menntunarmálin endurskipulögð, gefa öllum landsmönnum jafnan rétt og getu til að stunda nám.
Vera "vilhallur" virkjunum-stóriðjum, ríkisstjórn gæti haft flokk vísindamanna sem mundi rannsaka kosti og galla hvers verkefnis fyrir sig hvar sem er á landinu virkjunar hugmynd væri í gangi.
Gjörbreyta landbúnaðarstefnunni, allavega gera miklar breytingar á mörgum sviðum.
Kanna möguleika á hátekjuskatti.
Setja sérstakar reglur um innflytjendur inn í landið, ekki hefta, heldur að strangt sé metinn bakgrunnur viðkomandi einstaklings.
Umtalsvert átak/herferð gert í fíkniefnamálum.
Endurskoða tolla löggjöfina.
Niðurgreiðslur margra tolla afnumdir.
Halda áfram niðurgreiðslu skulda ríkisins.
Hækka skattleysismörkin.
Meyra aðhald í ríkisrekstri.
Átak í umhverfismálum og skírari stefnu.
Ekki er ég nú að tíunda það sem ég tel að sé í góðum eða þokkalegum farvegi nú þegar og klárlega gleymi ég einhverju hér, en hér er heldur ekki neinn ítarlegur list.
Jæja og hvað flokk á ég þá að kjósa?, þegar stórt er spurt verður oft fátt um svör.
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Þá eru rall niðurstöðurnar komnar frá Hafró.
ÞAð var alveg viðbúið þrátt fyrir allt sem á undan er gengið að Hafró/LÍÚ niðurstöðurnar yrðu einhvernveginn á þennan veg, "Stofnvísitala þorsks lækkar um 17% á milli ára", þetta eru gjörólíkar niðurstöður þeim sem sjómenn eru að sjá hjá sér.
Fínt að blogga þessa frétt hér og tengja hana við bloggfærsluna hér fyrir neðan sem ber fyrirsögnina Fiskveiðiheimildir á Vestfjörðum ofl.
Mig grunar að margur verði hálf ef ekki alruglaður á að lesa hversu ruglingslegar þessar fréttir eru.
Stofnvísitala þorsks lækkar um 17% á milli ára | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Þetta er í algjörum ólestri.
Þessi lagning bifreiða er í algjörum ólestri og tillitsleysið ófyrirgefanlegt.
Hér þarf átak, STRAX, upplýsingaátak og nota þessa frétt og fleiri í það mál.
Fyrir þónokkurum árum var gert átak í þessu, og minnist ég þess vel hvað ég og margur borgarbúinn var meðvitaður um að slökktulið og sjúkrabílar þyrftu að komast að ef eitthvað bæri útaf, þetta var mér löngu gleymt og býst ég við að eins sé hjá öðrum.
Ekki má heldur gleyma td. hjólastólafólki sem þarf að komast um gangstéttir, ég hef séð meira segja stúlku í hjólastól þurfa að far útá götuna til að komast fram hjá bíl sem lagt var svo kyrfilega við hús upp á gangstettinni að hún varð að fara aftur fyrir bifreiðina.
Ég mæli með að svona herferð, kynningar og auglýsingar verði aftur settar í gang, það er alveg ófyrirgefanlegt að þessi neyðartæki komist ekki að vegna ólöglega lögðum farartækjum.
Slökkviliðið segir aðgengi í miðborginni vera ábótavant | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 13.4.2007 kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Gáta dagsins.
Vísnagáturnar sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á.
Vísnagáta dagsins er eftirfarandi.
Ég er vörður um bændanna ræktaða reit
og rósirnar fóstra ég víða.
Á suð-vestur Íslandi útkjálkasveit,
ég er óðalið stóra og fríða.
Ég æði úr norðri og ýfi upp dröfn,
ég er eldgömul stofnun í Kaupmannahöfn
Rétt svar barst kl.09.39
Rétt svar er: Garður (og höfundurinn er Eysteinn Gíslason Skáleyjum í Breiðafirði)
Rétt svar gaf bloggarinn: Dúa Dásamlega (Sigþrúður Þorfinnsdóttir.)
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið, ef ekki kemur rétt svar fyrir klukkan 22.00 sama dag mun bloggari birta svarið í færslunni.
Ljóð | Breytt 13.4.2007 kl. 00:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Fiskveiðiheimildir á Vestfjörðum ofl.
Fiskveiðiheimildir á Vestfjörðum hafa nær tvöfaldast í tonnum talið síðan um aldamótin.
Þó sé hæpið að tala um að kvótinn sé aftur kominn vestur því hlutirnir geti breyst á skömmum tíma.
Fiskveiðiheimildir á Vestfjörðum hafa nær tvöfaldast í tonnum talið síðan um aldamótin. Þá höfðu þær lækkað um rúman helming frá árinu 1991, þegar lög um kaup og sölu á kvóta gengu í gildi. Samkvæmt upplýsingum um veiðiheimildir, sem Landssamband íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) hefur tekið saman, var Vestfirðingum heimilt að veiða um 54 þúsund þorskígildistonn árið 1991. Það voru tæp 15,5 prósent af heildarafla fiskveiðiflotans. Þetta og fleira kemur fram í frétt í Fréttablaðinu 11 apríl 07.
Agnar Ebenesersson, framkvæmdastjóri útgerðarinnar Bakkavíkur hf. í Bolungarvík, segist vissulega hafa tekið eftir því að fyrirtæki á svæðinu hafi verið að kaupa til sín kvóta. Þó sé hæpið að tala um að kvótinn sé aftur kominn vestur því hlutirnir geti breyst á skömmum tíma. Það er margt sem veldur þessari aukningu undanfarin ár. Menn koma inn á markaðinn og reyna að byggja sig upp, en svo gengur það kannski ekki og þeir koma sér út aftur. Þetta er sveiflukennt.
Meir er svo um sjávarútvegsmálin.
Neðar á síðunni er svo viðtal við Sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins:
Fiskveiðieftirliti er enn ábótavant
Eftirliti með fiskveiðum í lögsögu Evrópusambandsríkjanna er enn ábótavant og það á sinn þátt í ofveiði fiskistofnanna. Þetta sagði Joe Borg, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, í gær. Virkara fiskveiðieftirlit krefst meiri ákveðni og elju, sagði Borg. Vegna ófullnægjandi eftirlits væru þess of mörg dæmi að notuð væru óleyfileg veiðarfæri og að skip stælust til að veiða á miðum sem hefur verið lokað í verndarskyni við hætt komna fiskistofna.
Fréttablaðið og Visir.is er nokk dugleg með sjávarútvegsmála fréttir.
Íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið kemur í veg fyrir ofveiði helstu nytjastofna sjávar, að því er fram kemur í nýjasta hefti hins virta tímarits National Geographic. Í ítarlegri úttekt tímaritsins um ástand fiskistofna í heiminum eru fiskimið Íslands tiltekin sem undantekning frá bágri stöðu helstu fiskimiða heims þar sem fiskgengd sé aðeins brot af því sem áður var.
Heimshöfin eru aðeins skugginn af því sem áður var. Með fáum undantekningum, til dæmis vel heppnuðum fiskveiðistjórnunum í Alaska, á Íslandi og Nýja-Sjálandi, er fiskgengd aðeins brot af því sem var fyrir um öld síðan", segir í grein National Geographic þar sem álits er leitað hjá fjölda sérfræðinga auk manna sem koma að veiðum og rannsóknum á margvíslegum sviðum. Ástæðan fyrir góðu ástandi íslenskra fiskistofna er sögð vera takmörkun á fjölda þeirra skipa sem leyft er að veiða á hverjum tíma. Meginástæða ofveiði sé of mörg skip, sem stundi veiðar á ofveiddum fiskistofnum.
Framtíðarsýnin sem dregin er upp í greininni er dökk og þar er kallað eftir hugarfarsbreytingu í heiminum. Þar segir að lausnin á ofveiði felist ekki í lagasetningu heldur því að heimsbyggðin taki að líta á dýrastofna sjávar sömu augum og landdýr sem eru í hættu vegna veiða.
Fréttablaðið 12 apríl:
Tímaritið National Geographic segir fiskveiðistjórnun íslendinga árangursríka:
Veiðar Íslands til fyrirmyndar.
Íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið kemur í veg fyrir ofveiði helstu nytjastofna sjávar, að því er fram kemur í nýjasta hefti hins virta tímarits National Geographic.
Í ítarlegri úttekt tímaritsins um ástand fiskistofna í heiminum eru fiskimið Íslands tiltekin sem undantekning frá bágri stöðu helstu fiskimiða heims þar sem fiskgengd sé aðeins brot af því sem áður var. Heimshöfin eru aðeins skugginn af því sem áður var.
Með fáum undantekningum, til dæmis vel heppnuðum fiskveiðistjórnunum í Alaska, á Íslandi og Nýja- Sjálandi, er fiskgengd aðeins brot af því sem var fyrir um öld síðan, segir í grein National Geographic þar sem álits er leitað hjá fjölda sérfræðinga auk manna sem koma að veiðum og rannsóknum á margvíslegum sviðum.
Ástæðan fyrir góðu ástandi íslenskra fiskistofna er sögð vera takmörkun á fjölda þeirra skipa sem leyft er að veiða á hverjum tíma. Meginástæða ofveiði sé of mörg skip, sem stundi veiðar á ofveiddum fiskistofnum.
Framtíðarsýnin sem dregin er upp í greininni er dökk og þar er kallað eftir hugarfarsbreytingu í heiminum. Þar segir að lausnin á ofveiði felist ekki í lagasetningu heldur því að heimsbyggðin taki að líta á dýrastofna sjávar sömu augum og landdýr sem eru í hættu vegna veiða. -shá
Eldri fréttir:
Mokveiði í veðurblíðunni
Nú er skollið á mokfiskirí hjá bátum á vertíðarsvæðinu sunnan og vestanlands og allt til Vestfjarða. Að sögn hafnarvarða í Grindavík, Sandgerði og Bolungarvík hefur veturinn verið smábátum erfiður og því kominn tími til að vel viðri til veiða.
Sverrir Vilbergsson hafnarvörður í Grindavík sagði í samtali við Skip.is að veiðin hefði verið góð síðustu þrjá daga enda veður gott til róðra. ,,Það hefur verið mokveiði og minni bátarnir að gera það mjög gott. Fimmtán tonna bátar hafa verið að koma með allt upp í 17 tonn í land eftir túrinn. Veiðin hefur verið jöfn en mest hjá Gísla Súrssyni GK og Auði Vésteins GK og uppistaðan í aflanum er vænn og góður þorskur, segir Sverrir Vilbergsson. Svipaða sögu er að segja frá Sandgerði. Björn Arason hafnarstjóri sagði að fiskiríið hafi verið prýðilegt síðustu daga. ,,Aflabrögð hafa verið góð bæði hjá línu- og snurvoðarbátunum. Línu- og handfærabáturinn Muggur GK kom í land með 8 tonn og snurvoðarbáturinn Margrét HF fékk um 15 tonn fyrr í vikunni. Aflinn er blanda af þorski, ufsa og ýsu og ágætur fiskur, segir Björn Arason. Ólafur Svanur Gestsson yfirhafnarvörður á Bolungarvík sagði að steinbítsfiskiríið hafi verið mjög gott undanfarið. ,,Veðrið hefur verið gott og steinbíturinn er vanur að gefa sig á þessum tíma. Þeir sem mest hafa fengið hafa komist upp í 17 tonn af mjög góðum steinbít. Guðmundur Einarsson ÍS, Sirrý ÍS og Hrólfur Einarsson ÍS eru allir á svipuðum nótum hvað veiðar varðar og hafa landað mest, segir Ólafur Svanur Gestsson.
Stöð 2, 28. mar. 2007 13:15 Visir.is
Mokveiði í Grindavík
Mokveiði hefur verið hjá línubátum í Grindavík og hefur rúmum fimm hundruð tonnum af fiski verið landað síðustu tvo daga. Mest veiðist af þorski og segjast menn aldrei hafa veitt svona vel
Hátt í 20 Línubátar komu drekkhlaðnir eftir veiðar fyrir sunnan og suðaustan af Grindavík í gær. Mikil bræla hefur verið undanfarnar vikur en síðustu daga hafa menn mokveitt. Rafn Arnarson skipstjóri á línubátnum Óla á stað kom til hafnar í gær með hátt í 16 tonn. Hann segist aldrei hafa veitt yfir 15 tonn.
Um kvöldmatarleytið í gærkvöld höfðu sextán línubátar landað og nokkrir biðu í röðum eftir að komast að. Sverrir Vilbergsson hafnarstjóri í Grindavík segir þessa miklu veiði síðustu daga heldur óvenjulega. Það hljóti að vera mikill fiskur á miðunum því ekki sé algengt að línubátar veiði svona mikið í einum túr. Sumir hafi fengið fullfermi og þurft að snúa á miðin aftur til að ná í allan aflann.
Þorskstofninn í Barentshafi 70% stærri en talið hefur verið?
Nýjar mælingar rússneskra fiskifræðinga við VNIRO hafrannsóknastofnunina í Rússlandi benda til þess að þorskstofninn í Barentshafi sé einni milljón tonnum stærri en fiskifræðingar hafa hingað til haldið. Sé það rétt er stofninn 70% stærri en Alþjóðahafrannsóknaráðið (ICES) hefur haldið fram.
Þetta kemur fram í frétt Fishing News International en þar segir að fiskifræðingar við stofnunina hafi þróað nýjar og óhefðbundnar aðferðir við mat á stofnstærðinni.
Dimitri Klochkov hjá VNIRO segir í samtali við blaðið að niðurstöður hans og félaga hans hafi gert þá varkárari gagnvart hefðbundnari rannsóknum og varúðarnálgunum sem ekki taki mið af ýmsum vistfræðilegum þáttum í hafinu. Aðferð VNIRO byggi hins vegar á því að fylgst sé með fiskiskipunum með hjálp gervitungla og lagt sé mat á gögn sem fáist úr einstaka togum skipanna, yfirborðshita og ástand sjávar hverju sinni. Rannsóknirnar, sem byggt sé á við umrætt mat, nái til tímabilsins maí til nóvember í fyrra og því hafi verið skipt í 15 daga skeið sem sýni stofnstærðina á hafsvæðum sem hvert um sig sé 10 fermílur að stærð. Tekið sé tillit til þess hvernig skip hafi verið á veiðum á hverjum stað, gerðar togveiðarfæra, toghraða og afla á togtíma. Niðurstaða mælinganna gefi til kynna að stofnstærð þorsksins í Barentshafi sé 2,56 milljónir tonna. Á þeim og mati fiskifræðinga Alþjóðahafrannsóknaráðsins (ICES) sé gríðarlegur munur því ICES hafi metið hámarksstofnstærðina á 1,50 milljónir tonna.
Sem sagt allt í tómu tjóni þótt þoskurinn sé nógur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Þetta þurfum við að nýta okkur útí æsar.
Það er ekki ónýtt að fá fjármagn og landkynningu með þessari leið, sem sagt að laða til okkar kvikmyndagerðarfólk frá öllum heimsálfum.
Nýtum okkur landið sem ekki fer undir virkjanir og álver í þetta, svo gera þeir ábyggilega einhverja glæpamynd sem gerist í álveri og hasarleikur á virkjanabrúnum, þá kemur þetta sér allt helv#"$$# vel.
Bandaríska kvikmyndablaðið Variety fjallar í dag um Ísland sem kvikmyndaland og bendir á að nokkrar af vinsælustu kvikmyndum síðustu ára, svo sem Batman Begins, Flags of Our Fathers, Hostel og Die Another Day hafi að hluta til verið teknar upp hér á landi.
Segir blaðið að Íslendingar nýti sér m.a. hrjóstrugt landslagið til að höfða til kvikmyndagerðarmanna.
Landslag Íslands laðar til sín kvikmyndagerðarmenn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Fimmtudagur, 12. apríl 2007
Er Nýbúa útvarp jákvætt eða neikvætt?
Sumir halda því fram að ekki ætti að styðja við þetta útvarp og að það ætti hreinlega að leggja það niður.
Til stuðnings máli sínu segja þeir að þetta komi í veg fyrir að nýbúinn læri tungumálið og samlagist síður menningu okkar.
Aðrir vilja meina þver öfugt, að það einmitt fræði Nýbúa um ísland og íslenska menningu.
Hvað finnst þér?
Í fréttinni segir:
Hafnarfjarðarbær hyggst stækka útsendingarsvæði nýbúaútvarps og mun það framvegis nást á öllu höfuðborgarsvæðinu.
Nýbúaútvarp hefur verið starfrækt í Hafnarfirði frá því í nóvember 2006 með útsendingarstyrk sem nær einungis Hafnarfirði.
Hafnarfjarðarbær hefur átt í viðræðum við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu með mögulegt samstarf í huga vegna þessa verkefnis.
Nýbúaútvarpið hefur sent út á FM 96,2 frá fjölmiðladeild Flensborgarskóla en að svo stöddu er ekki ljóst hvort sú tíðni mun haldast óbreytt né heldur hvenær útsendingasvæðið mun stækka. Nýbúaútvarpið sendir út á fjórum tungumálum, pólsku, rússnesku, ensku og tagalog sem er tungumálið sem talað er á Filipseyjum.
Lítil umræða hefur farið fram um þessi mál og nánast ekkert hér á blogginu, eða lítil allavega.
Nýbúaútvarp mun nást á öllu höfuðborgarsvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Miðvikudagur, 11. apríl 2007
Dýr rass.
Þetta kemur ekkert við veskið hjá Gerrard, það er nefnilega allt öðruvísi í þessari grein en öðrum, þarna er manni skipað að sitja á rassgatinu og hirða launin sín.
Sæir þú það í anda að vinnuveitandinn þinn skipaði þér að sitja á rassinum og horfa á aðra vinn (já eða vinna ekki) og fá greitt dágóða upphæð fyrir? ég er ansi hræddur um að tékkinn yrði lægri umnæstu mánaðarmót, og þar að auki er ansi mikill munur á tékkanum þínum og hans Gerrard.
Bara svona smá öfundsverðar vangaveltur.
AC Milan í undanúrslit | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- halkatla
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Baldvin Jónsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Bjarni Harðarson
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyþór Jónsson
- Fannar frá Rifi
- Fararstjórinn
- Friðjón R. Friðjónsson
- Gestur Halldórsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Svava frá Strandbergi
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gylfi Björgvinsson
- Hafsteinn Karlsson
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Baldursson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Jens Guð
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolgrima
- Kristján Jónsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Sigurðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurður Sigurðsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Traustadóttir
- gudni.is
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur fannberg
- Ólöf Nordal
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Örvar Þór Kristjánsson
- Þóra Hermannsdóttir Passauer
- Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar