Fimmtudagur, 21. júní 2007
Ég er búinn að henda fullt af bloggvinum út - Ég er búin að hreinsa til í bloggvina skránni minni.
Þetta eru fyrirsagnir sem maður hefur séð hér á blogginu.
Er dónaskapur að henda bloggvinum út?
Hér á þessu ágæta blog.is er margt skemmtilegt fólkið, ég hef þá trú að hver manneskja hér hafi og eigi eitthvað sérstakt í sér sem enginn annar hefur eða á.
Öðru hverju sér maður færslur þar sem síðustjóri er að hóta og eða henda út bloggvinum!
En ég hefi lengi velt fyrir mér af hverju þetta fólk er að henda út fólki sem það á annað borð gerði að bloggvini, annað hvort að ósk hins aðilans eða eins og maður hefur orðið vitni að, að það er að henda út fólki sem það sjálft óskaði eftir að gerðist bolggvinur.
Þetta bara skil ég einganveginn, jú jú, sumir eru með hótanir til að fá fleiri heimsóknir og commennt, en er það siðferðislega rétt að óska eftir að einhver gerist bloggvinur, og svo ef sá þóknast viðkomandi ekki, þá er bloggvininum hent út eins og einhverju rusli, þessi bloggvinur hafði akkvurat ekki gert neitt af sér nema að samþykkja viðkomandi sem bloggvin, að hans ósk, þetta finnst mér argasta ósvífni og á þetta fólk að skammast sín sem svoleiðis hagar sér.
Að sjálfsögðu getur komið upp að einhver bloggvinur hefur í frammi dónaskap og óvirðingu jafnvel við bloggvin, og er þá að sjálfsögðu eðlilegt að henda þeim bloggÓvin út.
Svo koma sumir með þá afsökun að þeir þurfi að taka til, svo auðveldara sé að heimsækja bloggvini, þetta er akkvurat eingin afsökun, ef búið er að óska eftir að einhver verði bloggvinur eða einhver hefur verið samþykktur sem bloggvinur, á hann fullan rétt á að vera inni, það er mín skoðun, annað er dónaskapur, þeir sem vilja sortera bloggvini, geta gert það á ákaflega einfaldan hátt, og það er að setja viðkomandi GÓÐA fólkið í sér möppu, eins og jú sumir gera hér.
Ég mundi skammast mín ákaflega, að koma fram við fólk hér eins og ég hafi einhvern rétt á því hvort það commenti hjá mér eða ekki, og ekki kemur til greina að ég hendi út bloggvini sem EKKERT hefur gert af sér, EKKI EINUSINNI commentað hjá mér, hvað þá sýnt mér dónaskap eða óvirðingu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Fimmtudagur, 21. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi: | ||
Fullir á landi en lög-legir lufsast þá þungir oft á sér versna vilja okkar far-vegir vont ef þeir lenda þá á þér
|
| |
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn) Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
|
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 20. júní 2007
Það borgar sig greinilega að vera alltaf fullur.
Íslendingurinn var fullur, eins og vera bar, og það bara bjargaði lífi hanns.
Hvað er svo eiginlega verið að predika edrúmennsku?
Fréttin á Mbl.: Réttarhöld hófust í gær í Danmörku yfir 26 ára gömlum Dana, sem ákærður er fyrir manndrápstilraun með því að hrinda íslenskum jafnaldra sínum fyrir lest á Nørreport lestarstöðinni í Kaupmannahöfn í ágúst í fyrra. Íslendingurinn slapp með skrámur og þótti það ganga kraftaverki næst.
Að sögn Ekstra Bladet viðurkenndi Daninn, sem heitir Jonatan Falk, fyrir Eystra landsrétti í gær að hafa ýtt Íslendingnum fyrir lestina en neitaði að hann hefði ætlað að ráða honum bana.
Vitni, leigubílstjóri og farþegi hans, bera hins vegar að Falk hafi komið hlaupandi inn í bílinn og boðið bílstjóranum hass fyrir að aka sér á brott. Segja vitnin, að Falk hafi sagt að hann hefði lent í slagsmálum og óskaði þess að sá sem hann var að slást við væri dauður.
Bæði Falk og Íslendingurinn voru heimilislausir í Kaupmannahöfn þegar þessi atburður gerðist. Ekstra Bladet segir, að áfengismagn í blóði Íslendingsins hafi verið 3,9 þegar þessir atburðir gerðust og það kunni að skýra hvers vegna hann slapp jafn vel og raun bar vitni.
Réttað yfir Dana sem hrinti Íslendingi fyrir lest | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 21.6.2007 kl. 11:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 20. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi: | ||
Hún er geymd á ská slánni sem reddar málunum oft gripurinn gripinn af ránni gripin ef að vantar loft.
|
| |
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn) Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
|
Bækur | Breytt s.d. kl. 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þriðjudagur, 19. júní 2007
Mynda sería.
Það vantaði ekki veðurblíðuna sem var í dag á 50 ára afmælishátíð Hringsins.
Það var þó nokkuð um manninn og ekki vantaði blessuð börnin þarna, og nutu þau skemmtananna þarna alveg í botn, eins jú fullorðnir gerðu einnig.
Skemmtikraftarnir voru nú ekki af verri endanum eins myndirnar sýna, andlitsmálanir, söngur, galdrar, grín og gaman.
Þarna hitti maður fólk sem lagt hafði leið sína langa leið utanað landi, yfirleitt var það fólk sem átti börn senm einhverntíman hafði þurft að dvelja á spítalanum.
>Hér má sjá myndir sem ég tók í dag.<
Til hamingju með 50 ára afmælið Barnaspítali Hringsins, starfsfólk og sjúklingar.
Mikilvægt að eiga saman góðar stundir á spítalanum" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 19. júní 2007
Ábyggilega í landi þar sem þúsundir og jafnvel hundruðir þúsunda svelta í hel árlega.
Kaupandinn af þessu flykki er ábyggilega einhver prins eða þjóðarleiðtogi.
Það er greinileg leind yfir því hver kaupandinn er, en það fyrsta sem kemur upp í minn huga er að kaupandinn sé búsettur í einhverju landi þar sem þúsundir og jafnvel hundruðir þúsunda landsmanna eru að svelta í hel árlega.
Kanski kemur þessi hugsun bara af öfund, hvað veit ég?
Kaupandinn hvorkiu evrópskur né bandarískur, svo spennandi verðu að vita hvaða milljarðamæringur kaupir 800 manna einkaþotu undir rassgatið á sjálfum sér.
A380 sem einkaþota | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 19. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Sneiða má með kuta á
má ekkert útaf bera
heldur fast og ýtir frá
förin eiga að vera.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 18. júní 2007
17 júní myndir.
Bloggar | Breytt 19.6.2007 kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Mánudagur, 18. júní 2007
Hvaaa? var og er þetta ekki hótel nú þegar.
Ekki get ég ímyndað mér að þurfi meyra að gera en að sygla þessu fleyi á þurt þarna útí Dubai, þetta hefur alltaf verið hótel, svo litlu þarf nú ábyggilega að breyta.
Skemmtiferðaskipinu Queen Elizabeth 2 breytt í hótel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 18. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Lætur maður falla í far
liprir fingurnir bestir
er hann þvínæst hafður þar
þar til koma gestir
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Sunnudagur, 17. júní 2007
Hún á nú eftir að verða hjólbeinótt þessi dama.
Það verður nú ærið verkefni hjá þessari elsku ef hún ætlar að sofa hjá öllum á hinum stóra markaði.
Vinir hennar segja eftir fréttinni að dæma að hún sé bara að kanna markaðinn.
Nei ég segi bara svona, auðvitað meina ég ekkert með þessu.
Vangaveltur um nýjan kærasta Aniston | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Sunnudagur, 17. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Borið er á brúnleit borð
bljúgur og ilmandi mjöður
sést þá hvorki í haus né sporð
sest getur í mjöðinn fjöður.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
Laugardagur, 16. júní 2007
Þetta eru glæsilegar stelpur.
Ásthildur Helgadóttir: Erum besta íþróttalið á landinu eins og er" | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Laugardagur, 16. júní 2007
Þú þarna, ert þú vinstri kanta ökumaður ?
Ég er hreinlega orðin bit á að sumir ökumenn skuli fá að hafa ökuskírteini, já eða fá að vera akandi um götur borgar og bæja.
Sko, það er í hinu besta lagi að vera vinstri sinnuð/sinnaður í pólitík, og meyra að segja bráðnauðsinlegt að hafa slíkt fólk, en pólitík og bifreiða akstur er hreint og beint ekkert líkt.
Núna er ég búinn að keyra milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar í áratug, og gott betur, já og líka frá Hafnarfirði til Reykjavíkur, svona svo það sé á hreinu.
Allatíð hafa verið á ferðinni einn og einn hundleiðinlegur ökumaður sem ekur á ábyggilega óleyfilega hægt og hangir á vinstri vegarhelmingi, þar sem tvíbreytt er, en nú er þetta fyrst orðið alvarlegt, í hverri einustu ferð minni á milli þessara "bæjarhluta" þá er hægt að telja einn til tvo tugi ökumanna sem hanga á vinstri helmingnum og skilja ekkert í hvað er í gangi ef þeim er gefið "blikk" eða einhver ábending um að færa sig, bara verða grút fúl/ir útí þann sem vill komast fram úr, þessir ökumenn/konur grípa bara enn fastar um stýrið og hugsa: ÉG ER HÉR OG ENGIN SKAL HREKJA MIG AF MÍNUM VEGI OG AF MINNI STEFNU, OG ÉG KEYRI BARA EINS HÆGT OG MÉR SÝNIST.
Ef þetta er ekki fólkið sem skapar hætturnar, þá veit ég ekki hvað.
Ó jú, hér áður fyrr þekktist þetta líka, en í litlum mæli, og var alveg hægt að ganga útfrá því vísu að þar voru á ferðinni eldgamlir karlfuskar eða kerlingar.
Nú er þetta orðið alvarlegra, bæst hefur í þennan hóp þessara sjón og skilningslausu gamlingja og síðan er ekki minna hlutfall af ungu fólki, hvort það er bæði sjón og skilningslaust veit ég ekki, en trúi að svo sé, og ekki nóg með það, því að ég held að það sé heyrnarlaust líka.
Ætli þetta fólk hafi aldrei lært umferðareglurnar? það er nú bara ekki víst að það hafi einu sinni heyrt talað um þær, er ekki bannað að úthluta ökuskírteinum án próftöku?
Ef ástæðan er að viðkomandi veit ekki hvort er vinstri og hvort hægri, eru hér leiðbeiningar
Þetta er vinstri hönd> og þetta er hægri hönd>
Vaknið vaknið, hundleiðinlegu vinstrikanta ökumenn, takið tillit til annarra ökumanna og virðið lög um bifreiðaakstur í landinu, lærið umferðarreglurnar STRAX.
Dægurmál | Breytt 19.6.2007 kl. 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 16. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Liðugur látinn fela krók
líka bleyttur í vatni
gjarnan ert í gúmmí brók
gefur með mikilli natni.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Föstudagur, 15. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Röndóttir, eru báðir hlutar
hafðir á sitt hvorum enda
fjórir ásamt fjörtíu utar
fermingarbörnum oft lenda
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Breytt s.d. kl. 16:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
Fimmtudagur, 14. júní 2007
Það á ekki af henni að ganga kerlingar greyinu.
Þetta ætlar engan enda að taka með þennan ræfil.
Fyrst er henni bannað aka um götur borgarinar, já og marg oft bannað það, síðan er hún hún dæmt fyrir þennan sjálfsagða hlut í fangelsi.
Ekki dugar það til, því hún greyið er rekin þaðan út eftir að hafa aðeins fengið að njóta hótelsins í örfáar klukkustundir, síðan inn í hótelsteininn aftur, og svo núna er trillað með ræfilinn á sjúkraborðið.
Það verður nú að segjast eins og er að þetta fer nú að verða sjúklegt, svo ekki sé nú dýpra í árina tekið.
Eða var hún að leika sjúkling, hún er jú "skemmtikraftur", og geðlæknar eru ekki sagðir hafa botnað neitt í því hvers vegna andlegt ástand hennar snarversnaði.
Það vonandi að hún lifi þessa örfáu daga af í jelinu, já og njóti þess betur en horfir.
Það á ekki af henni að ganga kerlingar greyinu.
París flutt af sjúkradeild fangelsisins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- halkatla
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Baldvin Jónsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Bjarni Harðarson
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyþór Jónsson
- Fannar frá Rifi
- Fararstjórinn
- Friðjón R. Friðjónsson
- Gestur Halldórsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Svava frá Strandbergi
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gylfi Björgvinsson
- Hafsteinn Karlsson
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Baldursson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Jens Guð
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolgrima
- Kristján Jónsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Sigurðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurður Sigurðsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Traustadóttir
- gudni.is
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur fannberg
- Ólöf Nordal
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Örvar Þór Kristjánsson
- Þóra Hermannsdóttir Passauer
- Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar