Vísna gáta dagsins.

 
Gáta dagsins er svohljóðandi:

 

 

Fullir á landi en lög-legir

lufsast þá þungir oft á sér

versna vilja okkar far-vegir

vont ef þeir lenda þá á þér

 

 

 

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir mig og hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Er þetta flutningarbíll? Olíuflutningarbíll eða einhver slíkur fararskjóti sem flytur vörur um landið?

Fannar frá Rifi, 21.6.2007 kl. 14:40

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og að sjálfsögðu brást Fannar snögg við og kom með rétta svarið.

Rétt svar barst við gátu dagsin kl.14,40

Rétt svar er:  Flutningabifreið.

Rétt svar gaf: Fannar frá Rifi. 

Sigfús Sigurþórsson., 21.6.2007 kl. 14:48

3 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Henti saman einni í snatri og skelli inn óyfirfarinni.

-

Trúir og treystir, á hann hér

treystir ekki á hann einan

helst eiga allir tvo hjá sér

helst bæði hreinan og beinan

Sigfús Sigurþórsson., 21.6.2007 kl. 14:57

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Hahaha, þetta var mér ekki búið að detta í hug, en þetta er príðis ágeiskun þótt ekki sé það svarið sem ég leitaði eftir.

Þetta er hlutur/hlutir og bráðnauðsineg verkfæri, talin í dag, og eru.

Sigfús Sigurþórsson., 21.6.2007 kl. 20:22

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Stafir?

og ertu þá að meina göngustafar? en allavega stafir er ekki rétta orðið.

-

Trúir og treystir, á hann hér

treystir ekki á hann einan

helst eiga allir tvo hjá sér

helst bæði hreinan og beinan

 

.

Lífstíll fólks er af sumum metin eftir þessari eign, eða eignum.

Sigfús Sigurþórsson., 21.6.2007 kl. 20:51

6 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Og það var rétt kappi.

Vísnagáta í ATHS 3

Höfundur gátu: SigfúsSig.

Rétt svar er : Heimilisbíll/Heimilisbílar.

Rétt svar barst klukkan: 09:54

Rétt svar gaf: Gunnar Þór Jónsson. 

Sigfús Sigurþórsson., 22.6.2007 kl. 13:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 158984

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

228 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband