Skemmtileg gáta.

Ég er án upphafs, þó fæðist ég, líka er ég endalaus. samt dey ég, ég hefi hvorki augu né eyru, þó sé ég og heyri, ég sést ekki, þó sjást verk mín, ég yfirvinnst lengi, ég yfirvinnst  ekki, samt sigrast ég, ætíð erfiða ég, en þreytist aldrei, skynsamur er ég, en bý meðal þeirra skynlausu, forsjónarelskari er ég, samt kann mér sýnast að hún hati mig. Oft dey ég áður en ég fæðist, samt er ég ódauðlegur; oft kem ég óvörum, án minnar vitundar. Hjá kristnum byggi ég, hjá heiðnum er ég, hjá fordæmdum í helvíti fordæmist ég, í dýrðinni ríki ég -

 

-

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Trúin

Ester Sveinbjarnardóttir, 28.4.2007 kl. 09:38

2 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Neeeei Ester, þótt margt eigi bara ágætlega við, þá kemur fyrsta setningin í veg fyrir að það sé rétta orðið, þar sem þar segir: Ég er án upphafs - en trúin held ég hljóti ávallt að hafa upphaf. Góð tilraun samt.

Sigfús Sigurþórsson., 28.4.2007 kl. 09:48

3 Smámynd: Davíð Geirsson

Tíminn?

Davíð Geirsson, 28.4.2007 kl. 10:00

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Tíminn er það Davíð.

Svarið er: Tíminn

Sigfús Sigurþórsson., 28.4.2007 kl. 10:20

5 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Rétt svar við

þessari annars skemmtilegu gátu er: Tíminn

 

 

Rétt svar

gaf: Davíð Geirsson 

Sigfús Sigurþórsson., 28.4.2007 kl. 10:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 107
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 107
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

222 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband