Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2007
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Grófar aðgerðir!
Er þetta nú ekki of langt gengið, eða þetta kannski var bara óvart, ekki hefndaraðgerðir.
Rafmagn komið á í Kópavogi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Hætta að reykja, drekka meyra!
Þetta er klárlega góð lausn fyrir reykingarfólk, það þarf ekki að vera að taka neina reykingarpásur, bara fá sér einn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Skondið.
Rúnar Júl og María ganga í eina sæng í dag.
Rúnar og María hafa aldrei gifst í öll þessi ár en fyrir um tveimur árum síðan gaf Rúnar út þá yfirlýsingu á Fjörukránni í Hafnarfirði að hann ætlaði að biðja Maríu að giftast sér þegar hún yrði sextug.
Og viti menn og konur, María er sextug í dag og brúðkaup verður eins og Rúnar hafði tilkynnt þarna um árið.
Brúðkaup þeirra fer fram í Keflavíkur kirkju.
Skondið.
SigfúsSig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Hver er mesta ástæða svifriksins?
Ég var að tala við skólabílstjóra dóttur minnar og spurði ég svona í gríni hvort svifrikið væri mikið í
dag, hló hann þá dátt þessi bílstjóri sem hefur verið í akstri í marga tugi ára og sagði; Þessir andsk#"$$%%& salta og sanda göturnar eins og þeir eigi lífið að leysa, við hverju búast þeir eginlega? tilvitnun lokið.Mér er spurn, var þetta aðalega mold, sandur og saltmengun? og er verið að hræða fólk frá naglanotkun?
SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Rykmaurar friðaðir?
Kristinn Petursson skrifar frábæra grein á blogginu 27/2 07 Svo fæ ég engan botn í að fólk vilji ekki almennilegan veg yfir Kjöl með slitlagi! Penan veg - lítið upp byggðan - svona rétt eins hann hafi "dottið ofan úr loftinu" - óvart!
SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 28. febrúar 2007
Flokkar fyrir ALLA hagsmunahópa?
Ég var aðlesa grein morgunblaðsins Stefnt að stofnun nýs stjórnmálaafls: og varð hugsað til þess með hryllingi ef ALLIR hópar sem telja sínum málum ekki borgið fari í sérframboð.
Ég tek það skírt fram að ég tel mikið ávanta að öryrkjum, fötluðum og öldruðum séu við sama borð og "aðrir" og eins og vinir mínir og kunningjar vita hef ég alloft ljáð máls á því síðustu misserin, en er þetta rétta leiðin?
Margir hagsmunahópar munu skoða þetta ef fram fer sem horfir.
Af hverju geta þeir ekki eignast forsvarsmenn í einhverju flokknum sem fyrir er? gæti það ekki verið sterkara? hvað er því til fyrirstöðu?
Það sem ég er að velta fyrir mér líka er að ef allir hópar sem telja sig beitta misrétti eða eru ekki ánægðir með kjör sín stofna nýjan stjórnmálaflokk, hvernig í ósköpunum verða kosningar á íslandi þá? 6 eða 8 flokka stjórn?
Ég er hrifin af flestu sem stendur í fréttinni en spyr þig, er þetta rétta leiðin og er þetta eina leiðin?
SigfúsSig.
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Ljótleika aðgerðir!
Á meðan þú leitar að aðferð til að ná því fegursta fram í andliti þínu og líkama þá: >Smella hér<
SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 27. febrúar 2007
Ræður atkvæðafjöldinn bak við vandana úrslitum?
Verkefni til úrlausnar á vanda fatlaðra barna hafa ávalt verið mörg og margvísleg og er einmitt góð grein um einn slíkan vanda á forsíðu Fréttblaðsins í dag, þetta óásættanlega vandamál er alsekki bara að koma upp núna, foreldrar eru bara orðnir þreyttir á hægagangi einhverra lausna.
Á síðastliðnu ári og eins á því sem nú er byrjað hefur þó nokkuð verið talað um að það sé veriðað taka á þessum vanda, ekki efast ég nú um það, en af hverju gengur það svona óskaplega hægt?
Talað er um að stefnt sé að því að þessi vandi verði komin í lag næsta haust, ég spyr nú bara AF HVERJU EKKI FYRR EN NÆSTA HAUST.
Hvað er það sem þarf að tefja lausn þessa máls?
Hvað í ósköpunum gerir þessa úrlausn svona erfiða?
Þarf að ráð fólk? já að sjálfsögðu.
Þarf húsnæði? já að sjálfsögðu og húsnæði eins og til dæmis hjá sveitarfélögunum á höfðuborgarsvæðinu upp á tugi ef ekki hundruð milljarða stendur ónotað, kostnaður fylgir þessum kofum þar sem kynda þarf húsin og tryggja, af hverju ekki að nýta þessa steypuhauga?
Ég held að aðalástæða fyrir hægagangi á ýmsum málum fatlaðra og þá þá sérílagi fatlaðra barna sé að það eru svo FÁ ATKVÆÐ á bak við þessi börn.
Flokkar eru ekkert spenntir fyrir að gera þetta mál að einhverju baráttu máli, sumir eru jú með SUM þessara mála á stefnuskrá sinni, en smærri hópar í fötlunarmálum eru ávallt látin dragast, liggja á hakanum.
Ég er sem sagt forvitinn um það hvað það er sem er svona mikið mál að lausnin á dagvistun ALLRA fatlaðra barna þurfi að dragast þangað til þangað til þangað til osfrv., hvað er það sem stendur í vegi fyrir því að málið sé leyst einn tveir og snell.
Tekið skal fram að margt í þessum málum er í góðum farvegi að mínu mati, en hér erum við að tala um einstakt mál sem er vistanir veikra barna svo foreldri eða foreldrar geti til dæmis stunda vinnu og meyra lifað eins og "venjulegt fólk", einnig skal tekið fram að ég er enginn sérfræðingur á þessu sviði en tel mig hafa vit á því einfaldlega vegna þess að ég hef verið þessari aðstöðu.
Pólitíkusar og ráðamenn sýnið fordæmi og þrýstið þessu máli í lag, STRAX.
SigfúsSig.
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Rómeo og Júlíus
Það er svo sem ekki frásögu færandi að fara í leikhús, en frá þessu langar mig að segja.
Við Guðbjörg Sól (dóttir mín 7 ára) fórum í gær (sunnudag) á leikritið Rómeo og Júlíus byggt á sögu Arnþórs Sigurðssonar í leikstjórn Sigurjóns Kjartanssonar í Loftkastalanum sem Menntaskólinn við Sund er með til sýningar þessa dagana.
Alveg magnað hvað þessir "krakkar" geta gert úr algerri steypu, samt var söguþráðurinn alveg skiljanlegur og þar að auki bráskemmtilegur að mínu mati, og 7 ára prinsessan mín fannst þetta æðislegt en hávaðinn kannski heldur mikill.
Þarna eru kringum 30 manna hópur sem leikur leikrit um strák sem lendir í draumaheimi, (eftir að hann er rotaður) mikið rugl fer af stað í þessum draumaheimi og lendir hann á einhverjum stað sem að ég held enginn hafi áttað sig á hvar var, pilturinn er að sjálfsögðu hræddur og vill komast útúr þessu rugli, heim til pabba, mömmu og systkina, hittir marga sem hann reynir að fá til að hjálpa sér út úr þessum ósköpum, hittir meyra að segja anda, sem að vísu er einhver sá kjánalegasti andi sem ég og Guðbjörg Sól höfum "augum litið" en andinn getur ekki komið drengnum heim, en bendir á að það sé einn maður sem gæti mögulega hjálpað, eftir mikinn hasar, söng og vesen kemur í ljós að þessi maður er enginn annar en ÁRNI JOHNSEN. og hvað haldi þið? jú Árni Johnsen birtist í lokin í eigin persónu, eeeen gat ekki hjálpað.
Mér fannst krakkarnir, hver og einn einasti fara á kostum í þessu leikriti og gef þeim 10. hljómsveit spilaði lögin og það vantaði ekki að meðlimir þeirrar hljómsveitar kunni sitt fag og skilaði sínu hlutverki frá sér með sóma.
Var að gera smá stafsetninga leiðréttingu í færslunni og hvarf þá öll færslan án þess að ég hafi skýringu, sennilega einhver andi á ferðinni, bloggfærslan sett inn aftur 26 febr. 07
SigfúsSig.
Mánudagur, 26. febrúar 2007
Gengdarlaus hagnaður fyrirtækja!
Það er alveg með eindæmum hvað íslenskum fyrirtækjum gengur vel, og er það bara hið besta mál.
Á hverjum degi heyrir maður eða les eitthvað eins og:
Hagnaður Íslandspósts 240 milljónir króna
Sjóvá hagnaðist um 12 milljarða
Hagnaður AXA jókst um 18% árið 2006
Rúmlega 2,6 milljarða hagnaður af rekstri Icelandair
Hagnaður Tryggingamiðstöðvarinnar nam 696 milljónum króna á síðasta ári
Hagnaður Marels 159 þúsundir evra
Hagnaður Exista 37,4 milljarðar á síðasta ári
Hagnaður Icebank tæpir 5,7 milljarðar króna
Hagnaður Sparisjóðsins í Keflavík fjórfaldaðist
Hagnaður FL Group 44,6 milljarðar króna
Hagnaður Bakkavarar 9,5 milljarðar króna
45,2 milljarða hagnaður Straums-Burðaráss
Samanlagður hagnaður viðskiptabankanna 163,7 milljarðar
Hagnaður Glitnis 38,2 milljarðar króna
Hagnaður Kaupþings 85,3 milljarðar króna
Hagnaður Nýherja nærri fjórfaldast milli ára
Og meyra að segja það sem ég hélt að væri nú bara á hausnum og haldið uppi af ríki og sveitarfélagi Hagnaður Sorpu 10 milljónir
Auðvitað er misjafn gangur í velgenginni og sum hver fyrirtæki eru í mínus, en það breytir því ekki að obbinn af stærri fyrirtækjunum BLÓMSTRA.
Vangaveltur og ábyggilega öfundsjúkur:
SigfúsSig.
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- halkatla
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Baldvin Jónsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Bjarni Harðarson
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyþór Jónsson
- Fannar frá Rifi
- Fararstjórinn
- Friðjón R. Friðjónsson
- Gestur Halldórsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Svava frá Strandbergi
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gylfi Björgvinsson
- Hafsteinn Karlsson
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Baldursson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Jens Guð
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolgrima
- Kristján Jónsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Sigurðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurður Sigurðsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Traustadóttir
- gudni.is
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur fannberg
- Ólöf Nordal
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Örvar Þór Kristjánsson
- Þóra Hermannsdóttir Passauer
- Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar