Laugardagur, 2. júní 2007
Búið er að skáka Dauðanum útaf taflborði daglegrar tilveru og inná þar til gerðar stofnanir.
Hvað veist þú um dauðann? Getur verið að "dauðinn" hafi breyst?
Á síðustu 100-150 árum gjörbreyttist tilvera íslensku þjóðarinnar. Hún yfirgaf torfbæjamenningu liðinna alda og stökk inní tæknivæddan nútímann á ljótri prjónabrók. Þjóð lagðist til svefns í daunillri, myrkri baðstofu en vaknaði í uppljómuðu raðhúsi á Seltjarnarnesi og týndi fortíð sinni á leiðinni. Hún stóð skyndilega alsköpuð og tæknivædd í morgunsári nýrrar dögunar án tengsla við nóttina eða frumstætt bændasamfélag 19du aldar. Gríska goðafræðin segir að Pallas Aþena hafi stokkið á þennan veg fullsköpuð útúr höfði Seifs með skjöld og sverð.
Nútímamaðurinn skildi eftir vandamál eins og hungur, farsóttir og einangrun á vegferð sinni og á fullt í fangi með að gera sér veruleika liðinna alda í hugarlund. Í basli liðinna alda hefði allsnægtasamfélag þeirrar 21stu verið sem útilegumannabyggð í yfirbyggðum dal. Landpóstar og jeppamenn nútímans gætu aldrei skilið veruleika hvers annars.
Þetta risastökk inní draumkennda, óvissa framtíð án allra tengsla við sögu, siðprýði, siðleysi og reynslu forfeðranna hefur skilið Íslendinga eftir í tilvistarlegu tómarúmi. Saga annarra þjóða er ekki eins öfgakennd enda fóru þær inní nútímann í áföngum en ekki á öfugu heljarstökki.
Samskipti við Dauðann hafa einnig gjörbreyst á þessu tímaskeiði. Hann er ekki lengur eins og hver annar heimilismaður eða hluti daglegrar tilveru. Hrikalegur ungbarnadauði liðinnar aldar heyrir sögunni til og árvissar, mannskæðar farandpestir eru hættar að leggja leið sína um landið. Veruleiki Dauðans hefur flust útaf heimilum og tilveru venjulegs fólks og inná sjúkrahús og elliheimili. Hann hefur helgað sér eldri kynslóðina en lætur venjulega aðra í friði enda kemur í ljós þegar dánarauglýsingar Moggans eru skoðaðar að flestir sem deyja eru nokkuð við aldur. Sem betur fer heyrir til undantekninga að börn eða ungmenni deyi á tímum nútímasamfélagshátta og lækninga.
Þjóð og ríkisstjórn hafa gert um það þegjandi samkomulag við Dauðann að sjúkrahús og elliheimili séu eðlilegur starfsvettvangur hans en ekki leikvellir lífsins, heimili, vinnustaðir, samgöngutæki, skólar eða dansstaðir. Dauðinn hefur haldið samkomulagið að mestu leyti. Stöku sinnum gleymir hann sér og sveiflar ljánum úti í samfélaginu, en venjulega heldur hann sér innan fyrirfram ákveðinna marka og lætur ekki sjá sig á götum úti. Dauðinn í veruleika daglegs lífs er eins og tímavilltur jólasveinn í fullum skrúða um hásumar.
Dauðinn er alls staðar fjarlægur nema í fjölmiðlum. Þegar batnandi heilsufar og breyttir samfélagshættir ýttu honum útúr raunverulegri tilveru fólks fékk hann sér vinnu í afþreyingariðnaðinum. Í öllum fréttum, spennuþáttum og mörgum skemmtidagskrám gegnir Dauðinn mikilvægu hlutverki sem er eins og dauft bergmál af Dauðaþrá miðalda. Þrátt fyrir þrúgandi nærveru sína er hann svo óraunverulegur að enginn tekur mark á honum. Hann er eins og farandpredikari í texta eftir Gylfa Ægisson. Fólk horfir áhugalaust yfir kvöldmatnum á fréttir um stórfengleg flugslys, náttúruhamfarir, mannfrek styrjaldarátök eða skyndidauða frægra einstaklinga. Að loknum auglýsingum er glápt á spennumynd þar sem menn eru skotnir og stungnir til bana á hundrað mismunandi vegu. Dagblöð og vikurit birta stöðugt átakanlegar myndir af brostnum augum dáinna eða biðjandi ásýn þeirra deyjandi. Fjöldagrafir opnast á síðum blaða þar sem limlest lík karla, kvenna og barna liggja í himinhrópandi umkomuleysi og prentsvertu.
En þessi ósköp hreyfa við fæstum. Innst inni eru allir sér þess fullvissir að ekkert þessu líkt komi fyrir þá. Líkur á því að deyja í flugslysi eða fyrir morðingjahendi eru mun minni en vinningslíkur í lottói. Enginn bíleigandi gerir nokkru sinni ráð fyrir því að glæsibíllinn hans muni breytast í líkkistu utan um hann sjálfan. Fæstir búast við því að lenda í snjóflóði eða eldgosi eða hitta blóðþyrsta vígamenn á förnum vegi.
Búið er að skáka Dauðanum útaf taflborði daglegrar tilveru og inná þar til gerðar stofnanir.
Sé þetta borið saman við nálægð Dauðans á liðnum öldum, verða umskiptin ótrúleg. Þegar flett er gömlum kirkjubókum kemur í ljós að Dauðinn var sjálfsagður sambýlingur í tilverunni og gerði sig heimakominn eins og köttur á baðstofufleti. Árið 1850 voru skráð liðlega 20 dauðsföll í kirkjubók Útskálakirkju á Suðurnesjum, þar af dóu 13 börn undir fimm ára aldri. Þetta fólk gaf upp öndina heima hjá sér að þeim undanskildum sem drukknuðu í sjó eða urðu úti. Menn lágu banaleguna og skildu við í fleti sínu í baðstofunni innan um annað heimilisfólk.
Þegar síðustu andvörpin höfðu verið tekin veitti einhver á heimilinu hinum látna nábjargir, oftast húsbóndi eða húsfreyja. Ljósmæður voru fengnar til að aðstoða heimilisfólk við þvott og frágang á líkinu eða aðrar konur sem ekki voru líkhræddar. Karlmennirnir á heimilinu sáu um að hefja líkið úr rúminu á fleka eða kistu ef hún var til. Líkið var svo klætt í lín eða nærföt og sokka og stóð uppi í nokkra daga í kaldri skemmu, framhýsi eða úthýsi eftir aðstæðum hverju sinni.
Á meðan lík stóð uppi í heimahúsi var ílát með líkvatni haft undir kistunni til að koma í veg fyrir nálykt. Skipt var um vatn daglega og skyldi því hellt fjarri bænum, þar sem menn trúðu að það drægi í sig óholla dampa eða uppgufun frá líkinu. Víða á Norðurlöndum höfðu menn tröllatrú á lækningamætti líkvatns og auk þess á því vatni sem notað hafði verið til að þvo lík. Heimilisfólkið signdi náinn kvölds og morgna og oftast vakti einhver yfir líkinu á nóttum. Ljós var haft hjá hinum látna þegar myrkt var. Börnum var kennt að umgangast Dauðann af tilhlýðilegri virðingu eins og hvern annan virðulegan heimilisgest. Í þessu viðamikla leikriti gegndu líkin þýðingamiklum hlutverkum sínum af stakri prýði.
Þegar einhver hafði látist á 18du og 19du öld var venjulega haldin svokölluð nábrenna sem líka var kallað að brenna nágrasið. Heydýna úr fleti hins látna var tekin og brennd ásamt fatnaði, bókum og öðru dóti úr fórum hins dána. Allt sem á bálið fór varð að brenna til ösku, annars var hætta á reimleikum. Það var talið ills viti þegar reyk af af brennunni lagði yfir bæjarhúsin. Sennilega hefur stór hluti af skáldskap íslenskra utangarðsskálda farið með dótinu þeirra á þetta bál enda segir að mikið hafi verið brennt af leirburði í nábrennum.
Allir þessir lokaþættir í ævisögu hvers heimilismanns, banalega, dauðastríð, síðustu andvörpin, kistulagning og jarðarför fóru fram fyrir opnum tjöldum að viðstöddu heimilisfólki, gestum og nágrönnum. Dauðinn kom og fór að eigin geðþótta, ófeiminn og hnarreistur og skeytti engu um áhorfendur eða meðleikara í lokaþætti lífsins. Eftirlifandi heimilismenn voru þátttakendur í dauðastríði og andláti hvort heldur þeim líkaði betur eða verr.
Í samanburði við þennan veruleika Dauðans á liðnum öldum er nútímadauðinn nánast kominn í felur. Hvar sem hann drepur niður fæti eru læknar, útfararstjórar og líksnyrtar önnum kafnir við að moka í slóðina svo að hún sjáist ekki. Flestir deyja inni á lokaðri sjúkradeild innan um ókunnuga hjúkrunarfræðinga og lækna eða ættingja. Kveðjustund, kistulagning og jarðarför fara fram á sérstökum stofnunum. Lík standa ekki lengur uppi í heimahúsum heldur í líkhúsum við hentugt kuldastig. Þegar aðstandendur sjá hinn látna í kistunni hefur starfsfólk útfararstofnunar farið svo vel um hann höndum að því er líkast að hann hafi fengið sér smáblund í dagsins önn. Engum dettur í hug að nota líkvatn sér til heilsubótar og nábrennur með munum úr eigu hins látna eru ekki haldnar lengur. Skáldskapur utangarðsskálda tilheyrir jólabókaflóðinu. Einu tengsl mikils hluta þjóðarinnar við raunverulegan ekki-fjölmiðla Dauða eru minningagreinar, dánarauglýsingar og slysafréttir dagblaða.
Einhver sjónvarpsandstæðingur reiknaði það út að venjulegt íslenskt sjónvarpsbarn hefði um fermingu séð margfalt fleiri dauðsföll en hermenn á átakasvæðum heimsstyrjaldarinnar síðari. Öll börn hafa séð óteljandi sjónvarpslík bæði leikin og raunveruleg í fréttum og kvikmyndum. Tölvuleikir gefa barninu enn frekari tækifæri til að komast í snertingu við Dauðann með því að drepa grúa af missaklausum tölvuverum með tölvugikk. En nálægð þykjustudauðans gerir hann enn framandlegri. Hægt er að slökkva á tölvuleik, byrja uppá nýtt og hinir dauðu rísa upp. Fréttamyndir af líkum á hörmungarsvæðum náttúruhamfara eða styrjalda líða hjá á skjánum eins og draumur, hverfa og víkja fyrir skemmtiefni.
Stór hluti nútímafólks hefur aldrei séð lík nema á sjónvarpsskjá.
En þrátt fyrir meinta fjarveru Dauðans hefur hann aldrei vakið jafn mikinn áhuga. Upp eru komin sérstök Dauðafræði sem fjalla um veruleika og tjáningarform Dauðans. Þessi fræði eru á erlendum málum kennd við sjálfan Thanatos, persónugerving Dauðans í grískri goðafræði, og kölluð thanatológía. Mikill fjöldi bóka kemur út á hverju ári um fyrirbærið og fræðimenn hittast á stórum ráðstefnum til að varpa ljósi inní skuggalendur Dauðans. Við marga háskóla eru haldin regluleg námskeið þar sem veruleiki og aðferðarfræði Dauðans er krufin til mergjar. Dauðinn fer hamförum á internetinu þar sem ótrúlegur fjöldi slóða leiða lysthafendur inn í ríki hans.
Margir vonast til þess að raunvísindin muni afhjúpa um síðir, mysterium mortis. Leyndardómar Dauðans eru í hugum margra óþolandi á tímum stórfenglegra tækniframfara. Maðurinn kannar í sífellu æ stærri svið eigin tilvistar. Mannslíkaminn er eiginlega fullkannaður og vísindin hafa þrengt sér inní minnstu frumur og afhjúpað leyndarmál þeirra. Geimfarar hafa stigið fæti á tunglið og náð myndum af yfirborði Marz. Skip á hafsbotni fá engan frið í gröf sinni fyrir alsjáandi augum dvergkafbáta. Ríki Dauðans hlýtur að vera næsta takmark landkönnuða vísindanna.
En nútímamaðurinn veit eiginlega jafn lítið um sjálfan Dauðann og allir forverar hans því að hann gætir enn vel og vandlega landamæra sinna. og þríhöfða hundurinn Kerberus sér til þess að enginn fái að snúa þaðan aftur til lifanda lífs. En þrátt fyrir þessa óvissu tjá dauðafræðingar sig um Dauðann og skrá staðarlýsingar og leiðbeiningar fyrir væntanlega ferðalanga. Það sætir engum undrum að maðurinn tapi áttum í þeim hafsjó kenninga og hugmynda sem umlykja Dauðann. Þrátt fyrir trú á Guð og/eða vísindi, óttast flestir Dauðann og flýja inn í eril daglegs lífs til að komast undan endanleik sjálfs síns. Allar tilgátur um líf eftir Dauðann hafa ekki breytt þessu að neinu marki, hann hrífur og hræðir, heillar, ógnar og vekur aðdáun sem aldrei fyrr. En fyrir flesta er þó þessi áhugi tengdur Dauða allra hinna. Það er auðvelt að ímynda sér heiminn án eiginlega allra annarra en einmitt manns sjálfs. En fyrr eða síðar verður hver manneskja að horfast í augu við omnis homo moriturus endi eigin tilvistar, hvort sem henni líkar það betur eða verr.
Dauðinn er eitthvert merkilegasta viðfangsefni allra hugsandi manna. Birtingarform hans eru óteljandi; hann er óumflýjanlegur og dularfullur eins og fjarlægur ættingi sem allir þekkja af afspurn en engan langar til að kynnast nánar.
Í bók minni Listin að lifa, listin að deyja, reyndi ég að gera dauðanum skil sem heimspekilegu, sögulegu, trúarlegu og læknisfræðilegu fyrirbæri. Þegar ég kynnti bókina víða um land kom mér á óvart hversu margir það voru sem höfðu fyrst og fremst áhuga á dauðanum útfrá sjónarhorni andatrúar og endurfunda. Þessi afstaða er um margt ólík skoðunum grannþjóðanna þar sem umræðan er opnari og umfansgmeiri.
Endalausar minningagreinar Morgunblaðsins bera þessari tilhneigingu gott vitni. Flestar greinarnar fjalla um dauðann sem einhvers konar breytingu á tilverustigi þar sem allir muni á endanum finnast aftur. Menn heita líkinu að hittast síðar í góðu tómi og ræða um allt það sem gleymdist að gera skil í dagsins önn. Þessar greinar bera vitni um barnalega þrá eftir óumbreytanleika og eilífri æsku handan við landamæri lífs og dauða.
Dauðinn hefur vikið um set í nútímaþjóðfélagi, en fjarlægðin gerir hann ekki skiljanlegri eða ásættanlegri, heldur dularfyllri og leyndardómsfyllri. Fólk áttar sig ekki á endanleika hans sem gerir allt daður við dauðann algengara og eðlilegra. Fólk hótar með sjálfsvígi af minnsta tilefni án þess að gera sér grein fyrir þeim leiðarlokum sem dauðinn er.
Stundum er sagt að Dauðinn sé skelfilegasta og fyrsta vísindalega uppgötvun mannsins. Eigin dauðlegleiki var eins og lost sem knúði manninn inn í heim heimspeki, dulvísinda, trúarbragða og lista. Með því að viðurkenna eigin dauðleika minnkaði þörf og áhugi mannsins að flýja Dauðann og afneita honum. Maðurinn fór að skapa eða eyðileggja til að gefa lífi sínu tilgang. Framtíðin á eftir að leiða í ljós hvaða áhrif fjarvera Dauðans úr venjulegu lífi á eftir að hafa á listir, trúarbrögð og heimspeki komandi áratuga. Missir maðurinn hluta af sköpunarkrafti sínum þegar Dauðinn er ekki eins nálægur og áður og þörfin til að skapa ekki eins brýn?
Næstu áratugir munu leiða í ljós hvaða áhrif meint fjarvera dauðans kemur til með að hafa á allt samfélagið.
Þessi grein er eftir Óttar Guðmundsson lækni og finnst mér hann engum líkur, finnst mér þessi skrif vera hrein og bein snilld.
ATH: Myndum eru bætt inn í mér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 2. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Með óhljóði og væli hendist hann hjá
H2O hann geymir í búri
múgurinn sækist í verk hans að sjá
sóttur sé brandur í skúri.
.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Breytt s.d. kl. 09:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (56)
Föstudagur, 1. júní 2007
ALDREI er of oft minnst á öryggi barnanna.
Flestir foreldrar ferðast með börn sín í bíl strax á fyrsta ævidegi þeirra. Upp frá þeim degi verða börnin að vera fullkomlega örugg í bílnum. Þar koma bílstólar til sögunnar.
Bílstóll
Samkvæmt lögum á barnið að vera vandlega fest í bílsætið svo best er að kaupa bílstól áður en farið er með barnið heim af fæðingardeildinni. Barnið á því að vera í bílstól frá fyrsta degi þegar ferðast er með barnið í bíl. Þó svo að hægt sé að festa burðarrúm í aftursætinu veitir það barninu ekki nærri því eins mikið öryggi og bílstóllinn. Sumir foreldrar gæta þess ekki heldur að festa barnið í burðarrúminu heldur halda að það sé nóg að festa burðarrúmið niður. Þetta er mikill misskilningur og óþarfa áhætta þegar börnin okkar eru annars vegar.
Hægt er að fá bílstóla fyrir nýfædd börn en þeir eru yfirleitt festir í framsætið við hlið ökumannsins. Andlit barnsins snýr þá baki í akstursstefnu. Þessir stólar eru mjög þægilegir í notkun og auðvelt er að taka barnið inn og út úr bílnum í þessum stólum. Hönnun þeirra auðveldar ökumanninum einnig að annast barnið meðan á akstri stendur, sé hann einn með barninu í bílnum. Það skal tekið fram að það má alls ekki nota þessa bílstóla í bílum sem hafa loftpúða/líknarbelgi.
Í nýjustu bílunum er hægt að aftengja loftpúðann í farþegasætinu fram í svo hægt sé að ferðast með barnið þar. Að lokum viljum við benda á að ekki er ráðlegt að kaupa notaðan bílstól en sé það gert þarf að gæta þess að hann standist öryggisreglur um slíka stóla og að allar festingar séu í lagi. Einnig bendum við á að sum tryggingafélög bjóða viðskiptavinum sínum að leigja bílstóla og er rétt að kynna sér þann möguleika.
Þetta kemur fram inn á barnalandi og er óhætt að segja að aldrei er of oft minnst á hversu mikils virði er að hafa þessa hluti í lagi, ekki sýst í ljósi alvarlegra umferðarslysa nú að undanförnu, réttu græjurnar og rétt uppsettar gétað hreinlega skipt sköpum.
Dægurmál | Breytt 2.6.2007 kl. 09:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 1. júní 2007
Leinilegt ástarævintýri, vaaaaá.
Video með Robbie Williams
Feel, Advertising Space, She s Madonna, Rock DJ, Angels,
Fréttin á Mbl.: Robbie Williams er sagður vera kominn með nýja kærustu upp á arminn, bandarísku leikkonuna Ayda Field. Talið er að Williams og Field hafi átt í leynilegu ástarsambandi síðastliðna tvo mánuði, en þau kynntust í veislu í Los Angeles. Að sögn vina þeirra er sambandið orðið nokkuð alvarlegt.
Hann hefur ekki verið svona hrifinn af stelpu mjög lengi og þau gera allt sem venjuleg pör gera, til dæmis að fara í bíó eða horfa á DVD," sagði vinur Williams í samtali við breska dagblaðið Daily Mirror. Field hefur m.a. leikið í Will og Grace.
Þetta er afar rómó allt hjá þessum elskum.
Robbie með nýja kærustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Föstudagur, 1. júní 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Ég er á gangi alla tíð
engar fanga hvíldir,
er á hangi höfð hjá lýð,
höggin ganga mörg og tíð.
.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
Fimmtudagur, 31. maí 2007
Bjeviðans dýrið át hundinn!
Breski listamaðurinn Mark McGowan lagði sér corgi smáhund til munns til að mótmæla meintu refadrápi bresku konungsfjölskyldunnar. Corgi hundar eru í miklu uppáhaldi hjá Elísabetu II Englandsdrottningar en McGowan setti upp borð á götu í London og snæddi kjötbollur lagaðar úr hundakjöti til að vekja athygli á fréttum af því að Filippus eiginmaður drottningar barði ref til bana á refaveiðum.
Yoko Ono var einnig viðstödd hundaátið sem fjölmiðlar fylgdust vandlega með og fékk sér einnig bita.
Við erum þjóð sem elskar dýr, hvers vegna leyfum við fólki sem er hluti af ímynd okkar útávið að sýna dýrum svo litla virðingu, sagði McGowan við fjölmiðla.
Buckinghamhöll gaf enga yfirlýsingu um málið og helstu dýraverndunarstamtök landsins sögðu að það væru ekkert sem benti til þess að prins Philip hefði banað refnum með þessum hætti.
Hundabollurnar sem McGowan snæddi voru blanda af eplum, lauk og kryddum og voru þær bornar fram með salati.
Að sögn McGowans hafði hundurinn sem hann snæddi nýlega drepist hjá hundaræktanda og hafði honum ekki verið slátrað fyrir mótmælin en hann vildi ekki segja hvert banamein hundsins hafði verið. McGowan fékk sér einungis einn og hálfan bita af hundinum.
Drottningin er sérlega hrifin af Corgi-hundum og fá þeir að valsa um höllina að vild jafnvel þegar formlegar móttökur standa yfir.
Át hund í mótmælaskyni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 1.6.2007 kl. 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 31. maí 2007
Sturla er bara alsekki að fatta trixið.
Sturla sagði það vera þrálátt viðhorf, að sterk stjórnarandstaða fæli það í sér halda margar og langar ræður í þingsalnum. Alþingi væri meginvettvangur stjórnarandstöðunnar og hún þyrfti á því að halda, að þingið hafi sterka stöðu þannig að málflutningur og aðhald stjórnarandstöðunnar fái þann styrk sem nauðsynlegt er. Sturla sagðist ekki vera að kalla eftir styttri ræðum heldur markvissara starfi og betri skipulagningu og stjórnarmeirihlutinn þyrfti einnig að sjá til þess að nefndir þingsins fái nauðsynlegt svigrúm til starfa svo hægt sé að vanda til verka.
Sturla bara fattar ekki hvað langar og leiðinlegar ræður gera mikið gagn fyrir stjórnarandstöðuna.
Það komast að sjálfsögðu færri mál að ef stjórnarliðar komast aldrei að, svo einfallt er þetta bara.
Sturla kjörinn forseti Alþingis | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 1.6.2007 kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 31. maí 2007
Má ekki reykja reyklausar á veitingastöðum?
Reyklausar sígarettur væntanlegar í Danmörku
Danskur uppfinningamaður ætlar að hefja framleiðslu á reyklausri sígarettu í haust. Sígarettan sem Anders Leonhard Jensen hefur fundið upp inniheldur nikótín og gefur frá sér tóbaksbragð, en enginn reykur kemur frá henni. Þetta kemur fram á fréttavef Berlingske Tidende.
Að sögn uppfinningamannsins, sem er sjálfur stórreykingamaður að sögn Berlingske, hefur hann unnið í sjö ár að uppfinningunni og hefur fyrirtæki hans fjárfest um 10 milljónum danskra króna.
Ætlunin er að fólk fái svipaða upplifun og þegar það reykir sígarettur og sama bragð í munninn, en án heilsuspillandi efna sem sígarettur annars innihalda að öllu jöfnu.
Reykingabann á skemmtistöðum gæti skilið milli feigs og ófeigs | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 1.6.2007 kl. 13:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 31. maí 2007
17 ára og bjargaði tveggja ára stúlku barni, glæsilegt hjá drengnum.
Þessi drengur á að fá fálkaorðuna, barn endurlífgað af tæplega 18 ára pilti, Jóhanni Inga Guðbergssini.
"Ég var að þrífa í karlaklefanum og varð litið út um gluggann," segir hann. Það fyrsta sem ég gerði var að henda frá mér sköfunni og hlaupa af stað. Sundlaugargestur hafði þá komið stúlkunni upp á bakkann. Hún var byrjuð að blána þegar ég kom að þannig að ég hóf hjartahnoð og blástur. Stúlkan sýndi engar hreyfingar og ég hélt að hún væri dáin og sama héldu allir í kringum mig.
En ég gafst ekki upp og hélt áfram þangað til hún rankaði við sér. Ég sneri henni þá á hliðina og þá gusaðist vatn upp úr henni og hún byrjaði að anda eðlilega. Um einni og hálfri mínútu síðar byrjaði hún að gráta og í því kom sjúkraliðið. Ef ég hefði komið seinna veit ég ekki hvað hefði gerst."
Til hamingju kæri Jóhann Ingi Guðbergsson.
Einnig hamingju óskir til þeirra sem náðu barninu uppúr lauginni.
Sautján ára sundlaugarvörður bjargaði tveggja ára barni frá drukknun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt 1.6.2007 kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Fimmtudagur, 31. maí 2007
Ég var nýlega send á mjög niðurlægjandi stað!
Það er nú ekkert skríðið að þessi ljóska sé alltaf í fréttunum.
Og ekki láta grínararnir sitt eftir liggja:
Smelltu á video.
>Heilalausa Spears< >Crazy-Hvergi friður< >Þetta á að vera Britney örlítið í glasi<
En enginn getur tekið af henni sönghæfileikana, já og jafnvel leikara.
Þetta er náttúrulega bara grín, hún segi í fréttinni: Ég var nýlega send á mjög niðurlægjandi stað sem er kallaður meðferð. Ég var virkilega á botninum. Fram til þessa sags tel ég þó ekki að ég hafi átt við áfengisvandamál eða þunglyndi að stríða. Ég var eins og óþekkt barn með athyglisbrest sem lét öllum illum látum segir hún. Ég fékk umboðsmann minn frá því fyrir langa löngu til að koma inn í myndina til að reyna að vísa mér veginn eftir skilnaðinn. Þetta var allt svo yfirþyrmandi og ég held ég hafi ég vissi ekki hvað ég átti af mér að gera. Ég gerði mér grein fyrir því hversu mikla orku og ást ég hafði lagt í sambandið þegar því var lokið því ég vissi hreinlega ekki hvað ég átti að gera við sjálfa mig og það gerði mig svo dapra. Ég verð að viðurkenna að ég var algerlega týnd í tilverunni.
Það er alveg á hreinu að það er ekkert auðvelt að standa í frægðar ljómanum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 31. maí 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Úti stendur einn og sér
stendur, og ei getur annað
áður ávallt nutum vér
ákaft, sem nú er víst bannað.
.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (52)
Miðvikudagur, 30. maí 2007
Svona byrjuðu boðin og bönnin í Kína.
Allt byrjaði þetta í Kína með léttum umræðum sem svo skiluðu engu, og á endanum tóku kínversk stjórnvöld neteftirlitið í sínar hendur, og ekki leið á löngu þar til þúsundir manns voru komnir í að fylgjast með vefsíðum landsmanna, nú er svo komið að stjórnvöld eru afar umdeild í þessum "árásum" sínum á einka hagi fólks, því stjórnvöld loka og læsa vefum eins og þeim sýnist, og eru nú afar miklar gagnrýnis raddir í gangi, fólk ræður akkvurat engu.
Kannski er það þetta sem fólk vill, hef ég nú samt meyri trú á að almenningur á íslandi vilji taka þetta í sínar hendur, eeeen hvernig skal það framkvæmt? hver á að fylgjast með að þetta og hitt heimilið sinni sínum skildum?
En ósóminn er til staðar á netiu og eitthvað verður að gera, spurningin er bara HVAÐ Á AÐ GERA?
Netið er eins og stórborg án lögreglu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Miðvikudagur, 30. maí 2007
Það er alveg með eindæmum, að núna hittir maður engan Hafnfirðing sem hafnaði stækkun álversins!
Getur einhver bent mér á eitt sveitarfélag utan höfuðborgarinnar/Hafnarfjarðar sem ekki vill fá Álverið.
Mig grunar að það sveitarfélag sé hreinlega ekki til sem ekki mundi þiggja álverið með þökkum væri því boðið álver í sveitarfélagið sitt.
Mikið gekk á þegar Hafnfirðingar köstuðu þessu einstaka tækifæri frá sér og sennilega öllu álverinu þar með.
Það er alveg með eindæmum, að núna hittir maður engan Hafnfirðing sem hafnaði stækkun álversins, hvað varð eiginlega um þennan meirihluta sem ekki vildi stækkun, meyra segja hittir maður nú aðila sem héldu þrusu ræður gegn stækkun, en nú þykjast þeir ekki kannast við nokkurn skapaðan hlut.
Mikið var bloggað um stækkun álversins í vor og var ég engin undantekning á því, hér er "smá" sýnishorn af því.
Af hverju vill ég stækkun ÁLVERSINS?
Hógværir og kurteisir hjá Alcan.
Hvaða heilvita manneskju dettur í hug að kalla það hræsni
Hver má kjósa og hvar er hægt að kjósa?
Framsókn á aðeins 300 atkvæði.
Sjáfstæðismenn gefa afdráttalaust svar, en Samfylkingin-
Hreyfimynd af stækkuðu álveri.
Alcan á Íslandi skoðar möguleika á að færa álverið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Miðvikudagur, 30. maí 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Ein er sú sem sefur ekki
stundum þrálát líka
setur stundum sumí sekki
suma gerir ríka.
.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Höldum í okkar hvalaveiðirétt.
En veiðum bara engan hvalinn, hvernig fer okkar sjávarútvegur ef aðrar þjóðir fá að ráða hvað við gerum í okkar eigin landhelgi? Hvenar missum við ráðin á veiðum annarra sjávarategunda?
Alþjóðahvalveiðiráðið endurnýjar heimildir til frumbyggjaveiða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. maí 2007
En hvað með Vodka styrktaraðilann???
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 29. maí 2007
Þjófar og ræningjar stálu senunni.
Ég er ekkert hissa á að sjóræningjarnir hafi haft betur, og sigrað asna og grænt skrímsli.
Sjóræningja sögur hafa verið sagðar við afar mikla og góða hlustun í margar aldir um allan heim.
Ævintýri um sjóræningja voru með þeim allra fyrstu ævintýrum sem voru kvikmyndaðar í heiminum og hafa alltaf hlotið mikla hilli og góða, alveg frá upphafi, og svona næstum án undantekninga.
Ég hef alltaf haft gaman af asnalega asnanum og þusandi græna slepjuga tröllinu Shrek (Skrekk) en þeir vinirnir komast þó ekki nærri sjóræningja ævintýra myndunum að mínu mati, þó er möguleiki á að ég gefi drauga ævintýrum á Harry Potter sjens.
Ekki er því að neita að Steven Spielberg og álíka kumpánar komu ævintýramyndunum á æðra og skemmtilegra plan.
Fréttin á Mbl.: Þriðja myndin um sjóræningjana í Karíbahafi fékk langmesta aðsókn í norður-amerískum kvikmyndahúsum um helgina þótt hún sé næstum þriggja tíma löng. Áætlað er að tekjur af sýningu myndarinnar hafi numið 126,5 milljónum dala, sem er 9 milljónum minna en önnur myndin í röðinni aflaði þegar hún var frumsýnd fyrir tveimur árum.
Þriðja teiknimyndin um Skrekk, sem var í efsta sæti um síðustu helgi, fór niður í 2. sætið og þriðja myndin um Köngulóarmanninn fór niður í þriðja sæti.
Ný mynd, Bug, með Ashely Judd í aðalhlutverki, fór beint í 4. sætið og önnur ný mynd, Waitress, með Keri Russell í aðalhlutverki, fór í 5. sætið.
Sjóræningjarnir stálu senunni í Norður-Ameríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bækur | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- halkatla
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Baldvin Jónsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Bjarni Harðarson
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyþór Jónsson
- Fannar frá Rifi
- Fararstjórinn
- Friðjón R. Friðjónsson
- Gestur Halldórsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Svava frá Strandbergi
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gylfi Björgvinsson
- Hafsteinn Karlsson
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Baldursson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Jens Guð
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolgrima
- Kristján Jónsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Sigurðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurður Sigurðsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Traustadóttir
- gudni.is
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur fannberg
- Ólöf Nordal
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Örvar Þór Kristjánsson
- Þóra Hermannsdóttir Passauer
- Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 159233
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar