Hann fékk þó að liggja í friði kall anginn.

Maður fannst látinn í rúmi sínu þar sem rotnandi lík hans hafði legið undanfarin sjö ár, að því er lögreglan í Essen í Þýskalandi greindi frá í síðustu viku.

Í tilkynningu lögreglunnar segir að maðurinn hafi verið 59 ára og atvinnulaus er hann lést, að öllum líkindum 30. nóvember 2000, en þann dag hafði honum borist bréf frá almannatryggingum, er fannst í íbúð hans.

Við hlið líksins fannst sígarettupakki og opið sjónvarpsdagskrárblað, ásamt nokkrum þýskum mörkum, en þau féllu úr gildi þegar evran var tekin upp árið 2002.

Íbúð mannsins er í byggingu sem hýsir skrifstofur og íbúðir, sem margar standa nú auðar.

„Það saknaði hans enginn. Hvarf hans var aldrei tilkynnt,“ sagði lögreglan.

Allt getur nú skeð útí hinum stóra heimi.


mbl.is „Það saknaði hans enginn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísnagáta dagsins.

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

-

Gáta dagsins er svohljóðandi:

 

Búið er þessu býli á.
Besta traustið er hann.
Allir vilja hann ólmir fá.
Öllu færri bera hann.

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.


Það er skítalikt af þessari keppni og við eigum ekki að koma nálægt þessu meir . basta.

Fréttamynd 428045Serbneska söngkonan Marija Serifovic vann Eurovision söngvakeppnina með yfirburðum í kvöld. Hvíta-Rússland var í öðru sæti og Tyrkir í þriðja sæti. Íslendingar gáfu Finnum 12 stig, Svíum 10. stig og Ungverjum 8 stig. Eiríkur Hauksson hafnaði í 13. sæti í undankeppninni með 77 stig og varð Ísland efst af Norðurlöndunum í undankeppninni. 14 stigum munaði að Eiríkur kæmist í úrslit.

Serbar fengu 376 stig, Hvíta-Rússland 297 stig, Tyrkland 207 stig, Úkraína 195 stig og Rússland 138.

Í undankeppninni fengu Íslendingar 46 stig frá hinum Norðurlöndunum, þar af 12 stig frá Finnlandi, Noregi og Svíþjóð og 10 stig frá Danmörku.


mbl.is Serbía vann Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Oft leynist flagð undir fögru skinni.

Kykie væri nú ekki líkleg til að viðurkenna framhjáhald, hvernig getur það talist eðlilegt að kona/karl eigi rómantísk kvöld útum hvioppinn iog hvappinn með einhverjum öðrum en maka sínum, ég bara spyr?

Söngkonan Kylie Minogue neitar því alfarið að eiga í ástarsambandi við kvæntan mann, Alexander Dahm kvikmyndaleikstjóra.

Minogue og Dahm hafa sést að snæðingi saman, við hanastéladrykkju og fengu sér einnig bátsferð. Minogue segist aldrei hafa haldið fram hjá og að hún myndi aldrei eiga vingott við kvæntan mann.


mbl.is Minogue ekki með kvæntum manni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvurslags fréttamennska er þetta

Er það bara komið í tísku að vælandi milljónamæringar hvarti yfir hvað þeir eiga bágt?

Þetta er nú meiri endemis vitlaysan.

Leikkonan Cameron Diaz hefur sagt opinberlega að seinustu ár hafi verið helvíti fyrir hana.

Hún viðurkennir að hún hafi átt erfitt með líf sitt stundum. „Seinustu ár hafa verið erfið fyrir mig, ég vissi ekki hvernig ég átti að taka á hlutunum en ég tel að ég sé á betri stað í dag vegna þess að ég bakkaði frá öllu um tíma og andaði djúpt," sagði Diaz. „Hollywood er skemmtilegur staður, hann býður upp á svo mikið en getur einnig tekið svo mikið frá þér."

Leikkonan fagra sagði einnig að hún væri orðin þreytt á því að fólk héldi að hún væri aðeins farsæl leikkona vegna þess hvernig hún lítur út, ekki vegna leikhæfileika. „Ef farsæl leikkona er ófríð segir enginn að hún hafi komist svona langt vegna þess hversu ófríð hún er. Þeir sem líta vel út og gengur vel verða oft fyrir fordómum."

Diaz er nú á fullu að kynna þriðju Shrek teiknimyndina sem hún talar inn á.


mbl.is Diaz átti erfitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju hélt stjórnin velli?.

 Þetta var klukkan 23.17 í gær - núna 13/5 kl. 01.08 hefur blaðið snúist við (sjá neðra grafíkið.)

Síðan fallinn klukkan 02.00,  og svo klukkan 03,21 og 03.47 = lokatölur 08.49

 

Stjórnin fellur 

Atkvæði
     

%

Breyt.
Kjörd.
sæti
Jöfn.
sæti
Sæti
alls

Breyt.

Á þingi
B
11.733 10,0 -7,7527-5Þingmenn
D
43.043 36,8 +3,123124+2Þingmenn
F
7.528 6,4 -1,01340Þingmenn
I
4.285 3,7 +3,70000 
S
33.216 28,4 -2,617219-1Þingmenn
V
17.090 14,6 +5,8819+4Þingmenn

Á kjörskrá: 221.368
Kjörsókn: 221.368 (100,0%)

Talin atkvæði: 117.545 (53,1%)
Uppfært 13.5. kl. 00:16

 

  --------------------------------------------------------------   

Myndband

  --------------------------------------

 

 

Stjórnin heldur

 


Atkvæði


%


Breyt.

Kjörd.
sæti

Jöfn.
sæti

Sæti
alls


Breyt.


Á þingi

 

B

12.570

 9,9

 -7,8

4

3

7

-5

Þingmenn

 

D

47.179

 37,2

 +3,5

25

0

25

+3

Þingmenn

 

F

8.457

 6,7

 -0,7

1

3

4

0

Þingmenn

 

I

4.615

 3,6

 +3,6

0

0

0

0

 

 

S

35.754

 28,2

 -2,8

16

2

18

-2

Þingmenn

 

V

18.240

 14,4

 +5,6

8

1

9

+4

Þingmenn

Á kjörskrá: 221.368
Kjörsókn: 221.368 (100,0%)

Talin atkvæði: 127.477 (57,6%)
Uppfært 13.5. kl. 01:08

 

               

 
Stjórnin fellur 

Atkvæði

%

Breyt.
Kjörd.
sæti
Jöfn.
sæti
Sæti
alls

Breyt.

Á þingi
B
13.198 9,9 -7,8437-5Þingmenn
D
49.233 37,1 +3,424024+2Þingmenn
F
8.905 6,7 -0,71340Þingmenn
I
4.916 3,7 +3,70000 
S
37.423 28,2 -2,817219-1Þingmenn
V
19.019 14,3 +5,5819+4Þingmenn
Á kjörskrá: 221.368
Kjörsókn: 207.979 (94,0%)
Talin atkvæði: 133.681 (64,3%)
Uppfært 13.5. kl. 02:02

        

 
Stjórnin heldur 

Atkvæði

%

Breyt.
Kjörd.
sæti
Jöfn.
sæti
Sæti
alls

Breyt.

Á þingi
B
15.525 10,2 -7,5538-4Þingmenn
D
57.655 37,7 +4,024024+2Þingmenn
F
10.349 6,8 -0,61340Þingmenn
I
5.532 3,6 +3,60000 
S
41.834 27,4 -3,616218-2Þingmenn
V
22.058 14,4 +5,6819+4Þingmenn
Á kjörskrá: 221.368
Kjörsókn: 192.277 (86,9%)
Talin atkvæði: 155.360 (80,8%)
Uppfært 13.5. kl. 03:21

 

 

 
Stjórnin heldur 

Atkvæði

%

Breyt.
Kjörd.
sæti
Jöfn.
sæti
Sæti
alls

Breyt.

Á þingi
B
16.854 10,5 -7,2628-4Þingmenn
D
59.996 37,3 +3,623124+2Þingmenn
F
10.926 6,8 -0,61340Þingmenn
I
5.629 3,5 +3,50000 
S
44.629 27,8 -3,216218-2Þingmenn
V
22.713 14,1 +5,3819+4Þingmenn
Á kjörskrá: 221.368
Kjörsókn: 192.608 (87,0%)
Talin atkvæði: 163.287 (84,8%)
Uppfært 13.5. kl. 03:37

 

-

 
Stjórnin heldur 

Atkvæði

%

Breyt.
Kjörd.
sæti
Jöfn.
sæti
Sæti
alls

Breyt.

Á þingi
B
21.349 11,7 -6,0617-5Þingmenn
D
66.749 36,6 +2,924125+3Þingmenn
F
13.233 7,3 -0,11340Þingmenn
I
5.953 3,3 +3,30000 
S
48.742 26,8 -4,215318-2Þingmenn
V
26.136 14,3 +5,5819+4Þingmenn
Á kjörskrá: 221.368
Kjörsókn: 185.071 (83,6%)
Talin atkvæði: 185.071 (100,0%)
Uppfært 13.5. kl. 08:49


mbl.is Fréttaskýring: Samfylking kemur á óvart – Framsókn í sögulegu lágmarki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meiriháttar góð stemmning, margmennt, skítakuldi og ekki tími til að pissa.

Fréttamynd 427885Þrátt fyrir skítakulda í rokraskati létum við feðginin ekki þetta íslenska sumarveður á okkur fá og nutum Risessunar í botn, best fannst henni þó þegar hausinn á risanum fékk að fljúga í höfnina með tilheyrandi reyk og fýlu.

Allan tíman var prinsessan mín alvega að pissa í sig, en að fara og gefa sér tíma til að pissa kom sko alsekki til greina, en klóið fékk að finna fyrir því þegar heim var komið.

 

Finnst mér í góðu lagi að hæla lögreglu og öllum sem komu að þessu hvað allt gekk snurðulaust þrátt fyrir mannfjöldann og ekki síst umferð á meðan á þessu stóð.


mbl.is Margmenni í miðbæ Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vísnagáta dagsins.

Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..

-

Gáta dagsins er svohljóðandi:

 

Heitir mætur horfið stríð
hlynur vætu ljóma.
Fuglasæti fjalls í hlíð.
Frjálsan læt ég róa lýð.

 

 

Svar óskast (og helst höfundarnafn)

Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is

Vísbendingar koma á eftir svartilraunum eins fljótt og auðið er.


París Hilton fær að hafa sér snyrtiborð og meira að segja stól með.

París Hilton í síðasta mánuði.<br><em>Reuters</em>Hugsanlegt að Hilton stoppi stutt við í steininum

Talsmaður lögreglustjórans í Los Angeles tilkynnti í dag að góð hegðun og skortur á fangelsisrými gæti þýtt að París Hilton þurfi ekki að vera nema þrjár vikur í fangelsi fyrir að virða ekki skilorð. Sem er tæpur helmingur af 45 daga dóm sem hún hlaut.

Hilton var tekin tvisvar fyrir að aka bíl án leyfis eftir að hafa hlotið skilorðsbundinn dóm fyrir að aka undir áhrifum áfengis.

Dómari tilkynnti að afplánun hennar hæfist 5. júní.

Fréttavefur Sky segir að Hilton hafi sagst vera undir það búin að taka út refsingu sína.

 Hér gefur að líta mynd af venjulegum fangaklefa í Century Regional fangelsinu í Lynwood, sem er úthverfi Los Angeles, sem búast má við að Hilton muni dvelja í þegar hún hefur afplánun. <br><em>AP</em>

Hér gefur að líta mynd af venjulegum fangaklefa í Century Regional fangelsinu í Lynwood, sem er úthverfi Los Angeles, sem búast má við að Hilton muni dvelja í þegar hún hefur afplánun. AP

Hvaaaa, það er nú ekki mikið að þessu, hún fær meira að segja sér snyrtiborð og stól við, ég held að svona luxus sé ekki í boði í íslensum gesta herbergjum lögreglunnar.


mbl.is Hugsanlegt að Hilton stoppi stutt við í steininum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einhver grautur hefur nú verið undir þessum kofa.

Talið er að húsið hafi ekki borið auglýsingaskiltið.<br><em>AP</em>Ekki kaupi ég það svo létt að kofa skríflið hafi lagst til hvíldar vegna skiltanna, kofinn hefði þolað að vera hæðinni hærri ef bara undirlag byggingarinnar hefði verið í lagi.

kofinn hefur ábyggilega verið reistur á mold og sandi fyrir 35 árum síðan.

Húsið hrundi með miklu braki.<br><em>AP</em>

 


mbl.is Húsið fauk um koll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

íslendingar hafa ekki efni á að keppa við útlendinga um íslenskar laxveiðiár.

Það er nú fokið í flest skjól er íslendingar þurfa að leita erlendis til að komast í veiði, íslendingar hafa ekki efni á að keppa við útlendingana um íslensku laxveiðiárnar.

 

Frétta myndbandið


mbl.is Íslenskir stangveiðimenn reyna fyrir sér í Indlandshafi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta svo sannarlega gerir góða lukku, og morgundagurinn mikill dagur hjá okkur báðum feðginunum.

Dóttir mín sá þetta í gær og er núna alveg viðþolslaus, og ætlaði alsekki að sofn í kvöld fyrir spenningi fyrir morgundeginum.

Þetta er svo sem fínt, nú verður morgundagurinn mikill dagur hjá okkur báðum, hún fær að sjá meira að Risessunni og ég fæ að sjá flokkinn minn sigurvegara kosninganna.

Þetta er flott.

Frétta myndbandið


mbl.is Þúsundir fylgdust með risabrúðu á gönguför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hreinskilni barnanna.

siggi og gudny bustad 05 17.jpgMargt skemmtilegt og merkilegt dettur uppúr börnunum okkar, skemmtilegt og merkilegt vegna hreinskilningslegra spurninga eða svara.

Hér ætla ég að skrifa það sem dettur uppúr mínum og eða hefur einhvern tíman gert, svona eins og eina á dag helst.

Oft eru svona uppákomur kannski eingöngu skemmtilegar fyrir þá sem þekkja eða eiga það barn sem um ræðir hverju sinni, og þó, mér finnst alltaf gaman að heyra svona gullkorn.

 

 

Einn sonur minn (Sigurþór Guðni) fyrir allmörgum árum var svo vægt sé til orða tekið sparsamur.

Við bjuggum í sjáfarplássi þá þegar þetta var og var hann ca. 6 ára, drengurinn átti einn nokkuð stóran peninga bauk, sem safnaðist nokkuð vel í.

Snáðinn var sniðugur, keypti aldrei fyrir meyra en helming af því sem hann fékk til að kaupa sér nammi fyrir.

Snjall strákur hann Sigurþór Guðni Sigfússon, enda átti hann um 33000 krónur í banka sem komu úr svona sparsemi á 3 eða 4 árum.

 

Eitt sinn er ég gaf honum pening til að fara í sjoppuna og kaupa sér ís og eitthvað nammi, stráksi þáði peninginn en sagði að ég yrði að koma með, sem var nokkuð óskiljanlegt því við vorum niður á bryggju sem var bara spölkorn frá.

Eftir smá þóf lét ég undan og fór með honum, en þegar við komum að sjoppunni hittum við kunningja minn sem var og er skipstjóri á bát þarna og við tókum tal, drengurinn fór ekki inn í sjoppuna eins hann alla jafna hefði gert, hann beið, og beið, og hnippti svo í mig og sagði mér að koma inn með sér, ég lauk spjallinu og spurði svo drenginn hvað væri að, af hverju hann færi ekki inn að kaupa sér ísinn sem hann ætlaði að kaupa.

Jú þá kom útskýringin.

 

Þú átt líka að fá þér ís, sagði hann, því að þá borgar þú fyrir mig líka.

 

 

 


Munaði 23 þúsundustu úr sekúndu.

Lewis Hamilton hjá McLaren setti besta tíma fyrstu æfingarinnar í Barcelona sem er nýlokið. Næst fljótast ók liðsfélagi hans Fernando Alonso. Voru silfurörvar McLaren fetinu framar Ferraribílunum æfinguna út í gegn.

Kimi Räikkönen á Ferrari setti þriðja besta tímann og munaði að lokum litlu á þeim Alonso, eða 23 þúsundustu úr sekúndu. Alonso ók hraðast í morgun á fyrsta tímakafla brautarinnar en Hamilton á hinum tveimur.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

RöðÖkuþórBíllTímiBilHri.
1.Hamilton McLaren1:21.88022
2.Alonso McLaren1:22.268+0.38821
3.RäikkönenFerrari1:22.291+0.41119
4.Kubica BMW 1:22.446+0.56621
5.Massa Ferrari1:22.565+0.68515
6.Davidson Super Aguri1:22.665+0.78521
7.Trulli Toyota 1:22.740+0.86028
8.R.SchumacherToyota 1:22.843+0.96323
9.Rosberg Williams1:23.048+1.16828
10. Button Honda 1:23.114+1.23422
11. Wurz Williams1:23.131+1.25123
12. Heidfeld BMW 1:23.170+1.29026
13. Sato Super Aguri1:23.316+1.43622
14. KovalainenRenault1:23.322+1.44224
15. FisichellaRenault1:23.397+1.51721
16. Coulthard Red Bull1:23.428+1.54821
17. Webber Red Bull1:23.444+1.56421
18. BarrichelloHonda 1:23.479+1.59923
19. Sutil Spyker1:23.954+2.07425
20. Liuzzi Toro Rosso1:24.104+2.22424
21. Speed Toro Rosso1:24.179+2.29919
22. Albers Spyker1:24.396+2.51625

mbl.is McLarenbílarnir fremstir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki eltast við hamingjuna.

Hamingjan er ekki til sölu:
 fljúgið of heim allan
 gangið búð úr búð
 – engin hamingja
 
 Hamingjan er það ódýrasta sem til er:
 kostar ekkert
 – það dýrasta:
 kostar allt.
 
 Bíðið ekki hamingjunnar:
 hún kemur ekki af sjálfu sér
 – eltið hana ekki:
 hún flýr.
 
 Hamingjan er alstaðar og hvergi:
 í ofurlítilli tó undir norðurásnum
 á hafi úti
 við þitt brjóst.
 
 Þetta er hamingjan:
 að yrkja jörðina
 að yrkja ljóðið
 og elska jörðina og ljóðið.


Sjödægra eftir Jóhannes úr Kötlum, 1955.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

31 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband