Laugardagur, 24. febrúar 2007
Fréttalaust land.
Svona á ísland að vera, það er bara alsekkert fréttnæmt að gerast á landinu, fréttir í fjölmiðlum bera þess glögg merki, verið er að reina að teygja á hinum og þessum umræðum eins og td. Baugsmálinu (bréfið frá eingum) Klámráðstefnu málið, pólitíkinni þar sem ekkert er að gerast og öðrum gömlum fréttum, jafnvel afmælisfréttir fólks á forsíðum blaða.
Í Kastljósi var viðtal við Sigríði Andersen og Ævar Örn Jósepsson sem mér finnst svo sem ekkert fréttnæmt nema sú umræða að það sé útí hróa hött að tala um barnaklám í umræðunum um Klámráðstefnuna.
Ég verð að viðurkenna að ég hef þá skoðun þarna sé mikill skildleiki, en ég set nú kanski ekki hreint =samasem merki þar, en ég segi að þarna sé stutt á milli og mikill skildleiki, og að láta sér detta það í hug að í þessum hópi (sem ætlaði að koma hingað) hefðu ekki verið svartir sauðir.
Hverir eru það sem svívast einskis tilað láta bera á sér? klámauglýsingar og oft á tíðum sóða efni poppar upp á skjánum hjá þér þótt þú hafir einfaldlega ætlað að leit að dýralæknir á netinu, þeir svívast einskis til að tröða sér inn í tölvuna þína og segja sumir að við séum að brjóta á rétti þessa fólks, ég er svo aldeilis hlessssa.
Í öllum hópum, líka í þeim sem teljast vera á virðulegra plani finnast einstaklingar sem eru GRÓFARI en aðrir.
Setjum lög sem gera okkur það kleift að stoppa svona samkomur hingað án þess að við séum sek um að brjóta lög.
Kastljósþátturinn:: http://dagskra.ruv.is/streaming/clip/?file=4301736
SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 24. febrúar 2007
Skammast þú þín fyrir að vera íslendingur?
Ég get bara með nokkuð góðri samvisku sagt að nú á ég ekki til eitt einasta aukatekið orð, maður verður alveg KJAFTSTOPP.
Skammast þú þín fyrir að vera íslendingur?
Á mörgum síðum, aðalega blogg síðum má lesa skrif "fólks" þar sem það lýsir því yfir að það skammist sín fyrir að vera íslendingur!!!
Ég lýg því ekki að ég á bara ekki til eitt einasta orð yfir svona yfirlýsingar.
Vitnað í nokkrar síður hér fyrir neðan, og takið etir sumum skrifunum:
http://www.visir.is/article/20070207/SKODANIR03/102070098
http://tyra.blog.is/blog/tyra/entry/117089/
http://www.linuxzealot.net/?p=23
http://www.barnanet.is/spjall/?gluggi=spjall_postar&thradur=1615
http://plato.blog.is/blog/plato/
http://www.visir.is/forum_message/1t7g30137i/FORUM
http://www.visir.is/article/20070218/FRETTIR01/70218052
http://www.visir.is/forum_message/1t2g41001i/SKODANIR05
Og það er hægt að vitna í hundruðir ef ekki þúsundir svona ummæla, þar sem má lesa svona yfirlýsingu hjá fólki, hér er eingöngu bent á ummæli sem tengjast klámráðstefnunni, og bara orfá dæmi.
Og svo segi ég bara enn og aftur, marrrrbarrra kjaftstopp og á ekki til eitt einasta aukatekið orð.
SigfúsSig.
Ps. breytt 15 mín eftir innsetningu, en það var aðeins alvarlegar stafsetningarvillur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 04:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 24. febrúar 2007
Ruddalegt og andstyggilegt orðalag.
Það er nokkuð sem ég hef sérlega tekið eftir, eftir að ég byrjaði að Blogga, og það er að í mörgum skrifum finnst mikil ruddaskrif, svo ekki sé minnst á þegar þessir yfirleitt sömu einstaklingar eru að skrifa í Athugasemdir hjá einhverjum og er þá á móti því sem sá/sú er að tjá sig um.
Ég tek það að sjálfsögðu fram að þarna er greinilega um fáa einstaklinga að ræða, en þeir gera sig áberandi, og það er kannski tilgangur þeirra?
Hverju ætli það sæti að fólk þrusar illsku sinni inn á vefsíður þar sem fólk er jafnvel bara að viðra skoðanir sínar? ætli það sé ekki allt í lagi heima hjá þessum einstaklingum? er vanlíðan þeirra svona gífurleg? það eru til læknar sem vinna við að aðstoða fólk ef það á við andleg vandamál að stríða.
Svona skrif eru búin að sjást nokkuð oft að undanförnu og má sjá mikið svona lagað í umræðum um Klámráðstefnuna og einmitt Alcan umræðurnar.
Hef þetta væl ekki lengra að sinni, en gaman þætti mér að heyra álit annarra á þessu máli.
Kv. SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 24. febrúar 2007
EINKENNILEGT! Þeir vita EKKI af hverju.
Ég get alveg byrjað þessa grein á eftirfarandi orðum: Þeir vilja ekki stækkun Alcan þótt það sé umtalsverð búbót fyrir Hafnfirðinga, en þeir vita bara EKKI af hverju þeir vilja EKKI stækkun Alcan.
Ég átti dálítið samtal í fyrradag í síma við vinkonu mína og barst Alcan málið smá í tal, hún var alfarið á móti stækkuninni en gat bara ekki útskýrt það á neinn hátt af hverju, nema að hún þuldi eitthvað smá um það sem afturhaldseggir og öfundsjúkir pólitíkusar hafa verið að þusa í fjölmiðlunum, en ekki eitt orð um af hverju hún hefði þessa skoðun.
Nú nú, síðar um daginn kom upp aðstæður til að gera smá könnun.
Þannig var mál með vexti að ég var á fundi síðar um daginn þar sem voru einstaklingar úr þremur byggðalögum, 4 úr Reykjavík, 4 úr Kópavogi og 3 úr Hafnarfirði, (einkennilegt að segja úr Kóp, úr ---ætti maður ekki að segja frá) jaja, þessi fundur snérist um ákveðið málefni sem á engan hátt tengist Alcan eða öðrum umræðum sem hér á Blogginu fara fram.
Einhvern tíman á fundinum voru menn og konur að viðra skoðanir sýnar á hinu og þessu (Alcan og Klámr.) og datt mér þá í hug að biðja fólk, hvert um sig að tjá sig um HVERS VEGNA það vildi ekki Alcan, hvert þeirra væri á móti stækkuninni. Og það kom skringileg niðurstaða út úr þessu, eða það allavega fannst og finnst mér.
Niðurstaðan var eftirfarandi í því hverjir væru á móti stækkuninni: Allir Rvk. fannst þessi stækkun bara hið besta mál, sama gegndi með Hafnfirðingana, en allir Kópavogsbúarnir voru alfarið á móti stækkun og notuðu orðalag sem búið er að hamra á hér á Blogginu og í fjölmiðlum, að Hafnfirðingar væru að selja sig, og reyndar komu enn stærri yfirlýsingar fram.
Þá spurði ég Kópavogsbúana 4 um ástæðuna fyrir þessari skoðun þeirra, og viti menn (konur) eingin þeirra gat með nokkru móti komið með sýna ástæðu fyrir þessari skoðun þeirra, einn meyra segja sagði: Þú bara getur lesið um það í blöðunum, ?????? ????? ? ?? ?? ?
Hér á Blogginu má sjá marga skrifa um Alcan málið:
Ofl ofl.
Þolum við íslendingar alsekki að annað byggðarlag en við sjálf búum í njóti velgengni?
Ég er eins og styð stækkunina en viðurkenni jafnframt að ég er alsekki sá sem allt veit um þetta mál.
Kv. SigfúsSig.
(sem búsettur er í Hafnarfirði en telst varla Hafnfirðingur með aðeins 10 ára búsetu þar.)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 23. febrúar 2007
Hvað nú?
Í fréttum Glitnis kemur fram að það sé samdráttur í innflutningi á neysluvörum, þýðir það ekki bara góðæri hjá bændum hverskonar?
Í grein Glitnis segir: En hvað gera heimilin núna?
Það sem af er ári hefur gengi krónunnar hækkað um 8,4%. Gengi krónunnar er nú nálægt hæsta gildi sínu frá upphafi árs 2006. Heimilin hafa því endurunnið hluta af fyrri kaupmætti sínum á þennan mælikvarða og munu eflaust bregðast við því með aukinni gleði í neyslu á erlendri vöru og þjónustu. Merki þess munu sjást í innflutningstölum á næstunni sérstaklega ef gengið helst á þessum stað sem það er á nú eða hækkar en frekar.
SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Föstudagur, 23. febrúar 2007
Á einhver flokkur mig? á einhver flokkur þig?
Mig undrar OFT hvernig fólk skrifar um kjósendur, kosningar og flokka, og er þetta fólk yfirleitt með róttækar skoðanir en er ekki að starfa við slíkt (pólitíkina), ekki að beita kröftum sínum á borði, eingöngu í orði. "Þetta fólk" (ekki illa meint) talar um að þessi eða hinn flokkurinn hafi "stolið fólki" frá hinum eða þessum flokki, og oftast vegna þess flokkurinn hafi breytt einhverju í stefnu sinni eða áherslu atriðum gagnvart einhverju máli sem flokkurinn stendur eða stóð fyrir.
Það er á hreinu að ég mun ekki kjósa þann flokk sem ekki getur breytt einu né neinu, að sjálfsögðu breytast áherslur og "stefnur" og flokkur getur jafnvel þurft að falla frá að styðja eitthvað málefni, ef málefnið hefur breyst þá breytast að sjálfsögðu forsendur þess að styðja málið eða hvernig á að vinna með það.
Það er skárra að vera vitur eftir á en að vaða í villu og þvermóðsku.
Og að flokkur eða flokkar stela fólki með því að "breyta" einhverju til að ná til kjósenda finnst mér bara vera hið besta mál, en þeir sem tala um þetta í neikvæðum skilningi eru bara fúl/ir og með barnalegt tal og skringilegar þorskhausalegar hugsanir og tal..
Stundum gerist það að flokkur er með eitthvað málefni á sinni stefnuskrá og stefna flokksins er að fylgja því eftir með þessari eða hinni aðferðinni, síðan á einhverjum tímapunkti er komin upp einhver allt önnur áhersla, jafnvel vinnur flokkurinn þá gegn því tiltekna málefni, þetta er bara hið besta mál segi ég ef málefni hefur tekið einhverja allt aðra stefnu, grundvöllur upphaflegrar stefnu hefur þá breyst og flokkurinn á þá að breyta sínum áherslum.
Flokkar eiga EKKI að vera eins og strúturinn!! maður sér oft flokk/a haga sér þannig, og þá er jafnvel þetta sama fólk (í orði en ekki á borði fólkið) að ásaka þá fyrir það, skrítið? eða er þetta fólki bara þannig gert að það verður að vera að jagast? þótt EKKERT tilefni sé til þess.
Sem sagt, ég mun ALDREI kjósa þann flokk sem er eins þorskhaus í frystir og eða strúturinn.
SigfúsSig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fimmtudagur, 22. febrúar 2007
Hverjir haldi þið að hefðu verið fyrstir á þessa ráðstefnu?
Óskráður Sigurður Stefánsson skrifar athugasemd í Athugasemdir við greinina Gleðifréttir hjá mér, og eins og sést er hann alsendis EKKI sammála mér, en fyrir mér er þessu óvirðulega máli lokið og vill ég sem minnst búa til LEIÐINLEGAR umræður um lítt skemmtilega viðburð meyr, vill heldur að við vinnum að því að bæta skaða sem KLÁMHUNDAR hafa valdið íslenskum börnum, sem í ákveðnu og nýlegu máli er orðið fullorðið fólk í dag.
Ég bara SKIL ALSEKKI, HVORKI ÞIG SIGURÐUR NÉ AÐRA sem aðhillast að fá þetta lið hingað eftir alla þá umræðu sem nýlega hefur verið opinberað og á ég þá við börnin öll sem voru misnotuð hér í den, og ekki nóg með það, heldur er enn verið að grípa kynferðislega ruglaða einstaklinga.
Heldur þú virkilega Sigurður að þessi klámráðstefna sé bara í lagi? ég held að hún hefði verið bensín fyrir þetta kynferðislega ruglaða fólk.
Hverjir haldi þið að hefðu verið fyrstir á þessa ráðstefnu? jú ég held einmitt að það sé fólkið sem jafnvel gæti framið svona voðaverk eins og við íslendingar (sumir) erum búnir að vera uppvísir að, og hvað kom ekki í ljós? jú þetta var bara "venjulegt" fólk sem framdi ódæðin, fólkið sem varð fyrir ódæðunum er sko ábyggilega í sorg vegna þessa hroðalega verks sem íslendingar (sumir) eru búnir að gera af sé,
sem sagt bönnum klámráðstefnuna.
Ég held því líka fram ALLIR þeir sem heitast þrá þessa ráðstefnu séu eitthvað,,,,,,, já gettu nú.
Kv. SigfúsSig
Bloggar | Breytt 23.2.2007 kl. 11:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fimmtudagur, 22. febrúar 2007
Gleðifréttir.
Þetta finnst mér vera gleðitíðindi, í dag er ég stoltur af að vera íslendingur, er það reyndar alltaf en líður þannig meyra í dag en marga aðra daga.
![]() | Hætt við klámráðstefnu hér á landi |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Fimmtudagur, 22. febrúar 2007
Windows Vista???
Kunningi minn bloggara á einnu blogginu og segir þar:
Ég keipti mér windows wista meira í forvitni um hvort það væri tilbúið fyrir leikin WOW.jú, ég gat innstalað leiknum og spilað hann þangað til nýi patcin kom.þið sem eruð að lenda í vandræðum vegna win vista og wow þá er leiðbeinigar hér á ensku http://www.blizzard.com/support/wow/?id=aww02098p
Tilvitnun 1 lokið.
Ég skrifaði inn í Athugasendir hjá honum:
Sæll ---------.
Ég hef verið að spjalla við fólk um þetta eftir að við töluðum saman síðast og fæ frekar neikvæð svör.
Hitt er svo annað mál að svonalagað þarf tíma, fólk er mjög fastheldið í eitthvað sem það er búið að ná tökum á og gefur þess vegna bara SKÍT í þetta.
Kv. SigfúsSig.
Tilvitnun 2 lokið.
Öryggisgallar fundust strax í þessu nýa stýrikerfi, sjá frétt. og eiga eftir að uppgötvast áfram, og alveg þar til eitthvað annað stýrikerfi kemur, en það er líka aldeilis slatti af göllum í XP. og alltaf að finnast nýir og nýir
Gaman þætti mér að heyra frá einverjum sem hefur sett Windows Vista upp hjá sér og er til í að miðla sinni reynslu sem komin væri, og hvort þetta stýrikerfi sé það notendavænt og einfalt að fólk sem loksins kanski er búið að ná tökum á tölvunni sinni ætti að skifta út og fá sér þetta nýja.
Margir segja að það þurfi alveg king-size tölvu til að keyra stýrikerfið?????
Hverir eru kostirnir fyrir Jón og Stínu sem eiga tölvu og nota hana nánast eingöngu fyrir tölvupóstinn sinn og leiki???
Hverjir eru ókostirnir fyrir Jón og Stínu???
SigfúsSig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Miðvikudagur, 21. febrúar 2007
Ég segi nú bara VAAAAAÁÁÁÁ.
Árið 2000 fæddist nú mín yngsta hún Guðbjörg Sól 3 mánuði fyrir tíman, 4 merkur og 36 cm. og þótti kraftaverk að hún skildi lifa þar sem hún veiktist mikið á vökudeildinni og þurfti uppskurð á höfði afar veikburða barn þá eins og þið vitið sem þekkið til.
Mér hefur alltaf þótt hún vera kraftaverkabarn og þyikir það enn þann dag í dag og ef ekki enn meyra enn áður þar sem hún hefur dafnað og braggast eins og raun ber vitni ( Sjá www.gamanogalvara.com )
En nú segi ég bara VAAAAAÁÁÁÁ, þetta ogggulitla kríli. >>>>Sjá myndband<<<<
Hver heldur svo því fram að Guð sé ekki til?
SigfúsSig.
![]() |
Minnsta barn sögunnar dafnar vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 20. febrúar 2007
Ríkiskaup-Heiðmörk-Klámráðstefnan.
Góð þróun en mætti vera meyri. Gefum smærri fyrirtækjum tækifæri.
Góð þróun finnst mér vera að þróast í viðskiptum íslenskra fyrirtækja, en það þarf að gera enn meyra átak í að gefa smærri fyrirtækjum kleift að dafna.
Miðað við fréttir þá virðist þróunin vera sú að risarnir leita erlendis en aðrir leita eftir viðskiptum innanlands og finnst mér þetta vera ágæt þróun.
Ríkiskaup gerði samning nýlega við minnstu olíufélögin á íslandi vegna olíukaupa Ríkisskips fyrir hafrannsóknaskipa, ætli varðskipin séu enn að versla olíuna í færeyjum?
Það má svo sannarlega setja útá ýmislegt í innkaupum á vegum ríkisins.
Við síðan enn smærri neytendur fáum ÁBYGGILEGA að sjá gríðalega lækkun á eldsneyti.
Reyndar er olía farin að finnast uppúr ÞURRU hér og hvar, Olía fannst til að mynda útaf Reykjanesi. í gær, verst er að fuglarnir verða fyrir þessum olíufundi.
----------------------------------------------------------
Af fréttum að dæma þá virðist nú ekki hafið farið fram mjög ýtarleg könnun á því hvernig mætti framkvæma þessa vinnu þarna svo skaðinn yrði sem minnstur, ekki get ég séð að borun hefði verið dýrari leið miðað við í hvaða farveg þetta allt er komið.
Skipulagsráð Reykjavíkur var ekki búið að veita framkvæmdaleyfi fyrir framkvæmdinni.
En úr því sem komið er er mikilvægt að loka þessu sem allra allra fyrst og gróðursetja trén aftur.
----------------------------------------------
Mikið er búið að skrifa og segja um þessa djö$#%#$% klámráðstefnu og ætla ég ekki að vera að fara meyra útí það nema hvað að ég bara skil ekki að það skuli vera til fólk á íslandi sem vill fá þetta helv#$$%# inn í landið og það rétt á eftir allri þessari uppá komu sem er alveg nílega búið að uppgötva og á ég þá við barna níðingsverkin sem mikið er búið að fjalla um og seint verða fyrirgefin, hvað er eiginlega í gangi.
Banna klámráðstefnuna strax og setja alla beint í steininn sem koma hingað til landsins hennar vegna.
SigfúsSig.
Bloggar | Breytt 21.2.2007 kl. 19:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 19. febrúar 2007
Hlýt bara að vera eitthvað sljór.
Eitt er mér alveg gjörsamlega vonlaust að skilja og það er í sambandi við að bæta kjör öryrkja og ellilífeyrisþega, reyndar skil ég ekki heldur í þessari áherslu á ellilífeyrisþega frekar en einstæða móður eða faðir sem eru kannski með tekjur langt undir því að getað lifað sómasamlegu lífi, það er jú fólk sem er að baslast við að gera lífið bærilegra fyrir fleiri en sjálfan sig, þetta er allt fólk sem þarf nauðsinlega á leiðréttingu að halda.
En ok, allavega þá skil ég ekki að þessi umræða sem td. Samfylkingin (Tek það fram að ég er ekki í Samfylkingunni) er dálítið með á oddinum þessa dagana skuli aldrei ná lengra en að vera bara pólitískt tal.
Ég held að ALLIR flokkar hafi einhverntíman haft þetta á oddinum, að bæta kjör þeirra lægst launuðu,og þá hafa ellilífeyrisþegar oftast mest verið nefndir.
Mér er alveg slétt sama hvaða flokkur hefur þetta málefni sem oddamálefni, ég einfaldlega sé ekki að það sé til nein eins auðveld leið til að bæta hag þessa fólks (og á ég við ALLT láglaunafólk) eins og að lækka skattleysismörkin.
Og í guðanabænum (ekki Guðna bænum) hættið að láta eins og ellilífeyrisþegar hafi það verra en ALLIR aðrir, verra en td. afar margar einstæðar mæður eða feður sem eru að baslast við að búa og hlúa að börnum landsins, það er að sjálfsögðu einnig til fullt af öðru fólki sem aldrei er talað um, fólk sem RÉTT skrimtir og getur ALDREI veitt sér né sínum eitt né neitt.
Lækkum skattleysismörkin í snatri.
SigfúsSig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sunnudagur, 18. febrúar 2007
Án efa:
Mikið er feginn hvernig þessi úrslit enduðu.
Í mínum huga er eins Eiríkur hafi komið á elleftu stundu og allt blessaðist "að lokum"
Án efa rétti saungvarinn í Eurovision og vonandi rétta lagið.
Ég les úr lófa þínum fer í Eurovision keppnina.
Eiríkur Hauksson verður fulltrúi Íslands í Helsinki
Kv. SigfúsSig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 17. febrúar 2007
Auglýsingar og börn.
Í sjónvarpinu á stöð 1 allavega þá er auglýsing í gangi sem mér finnst EKKI vera hollt kennsluefni fyrir börn.
Auglýsingin er þannig að pósturinn (ungur drengur) setur bréf innum bréfalúgu á hurð, bréfið hinsvegar kemur til baka og er drengurinn beygir sig niður sér hann unga stúlku og hafði hún skrifað á bréfið áður en hún setti það útum lúguna aftur og þar var hún að bjóða honum inn til sín til að fá sér Kókómjól.
Geta börnin ekki tekið þetta til sín og fara að bjóða hverjum sem er inn til sín?
Allavega finnst mér þetta ekki viðeigandi og þá ekki síst í ljósi þess að ýmislegt er búið að vera að koma í ljós sem við hefðum ekki trúað að gæti gerst á íslandi.
Þetta er sem sagt Kókómjólkur auglýsing.
Kv.SigfúsSig.
Bloggar | Breytt 19.2.2007 kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 17. febrúar 2007
Vel og skemmtilega mælt.
Vilhjálmur Andri Kjartansson bloggari hér á Mbl.is er með að mér finnst skemmtilega tilvitnum við inngang sinn og ættum við öll að huga að þessu.>Bloggsíða Vilhjálms<
Við mynd hans segir: Ég ber ekki endilega virðingu fyrir skoðunum þínum en ég ber virðingu fyrir rétti þínum til að hafa þær.
Tek það fram að ég hef EKKERT SÉRSTAKT leyfi til að vitna í síðuna hans.Kv. SigfúsSig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Laugardagur, 17. febrúar 2007
Hvað er að ske? hvert stefnir íslensk tunga?
Í gærkvöldi og í nótt var ég ásamt öðru fólki útá lífinu sem er svo sem ekki frásögu færandi nema kvað að á þeim þremur skemmtistöðum sem við fórum inn á fannst varla afgreiðslumanneskja sem talaði íslensku, og á einum staðnum þar sem ég stóð við barborðið og var á spjalli við manneskju, at ég ekki annað en tekið eftir ungri konu sem greinilega kunni ekki stakt orð í ensku, en var að panta drykki, þessi kona var að reyna að fá uppgefið hjá þjóninum það einfalda mál hvað drykkurinn hennar kostaði, stagaðist hún á hvað þetta kostaði margar krónur Þjónninn gat einganveginn skilið veslings konuna sem farið var að fjúka í og á endanum reif hún uppúr veskinu sínuíslenska peningar veifaði þeim og pataði á glasið sitt.
Ekki dugði þetta svo að ég tók til enskukunnáttunnar minnar með miklum tilþrifum ooooooog ó nei, þetta var Pólverji sem talaði mjög lítið í ensku!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Á endanum tókst okkur saman, mér,dömunni og eins annars gests þarna að fá uppgefið verðið á per glasi hjá dömunni, en hún var jú með þrjú glös sem flækti þetta sjálfsagt enn meyr.
Eftir þessa viðureign lallaði ég mér upp á loft að kíkja eftir kunningja mínum sem þar var og skemmti sér gríðalega vel innanum fallegt og fjörugt fólk.Eftir smá stund ákvað ég að panta mér kaffi,og taldi mig heppinn að vera ekki niðri við þá iðju.
Ég stóð við skenkinn og beið, fljótlega kom ungur þjónn og spurði can i help you!!! Já ég hélt nú það og sagði bara one coffy,,,,,,, haaaaa sagði hann þá og kallaði í unga afgreiðsludömu sem reddaði þessu erfiða viðfangsefni, en svo vildi til þótt ótrúlegt sé að hún var íslensk, eða allavega skildi íslensku, jahérna, heppinn var ég.
Á öllum veitingastöðunum sem við komum við á varð ég var við eitthvað álíka og fékk að reyna persónulega sjálfur.
Annað sem ég lent í í 10-11 matvörubúð (klukkubúð)
Ég verslaði smávægilegt í matinn og var á hraðferð því dóttir mín var útí bíl (að hlusta á Latabæ)Afgreiðsludaman (erlend) skannaði vörurnar og að mér sýndist stimplaði hún inn 5 lítra af mjólk en ekki 4 eins og ég var með, spurði ég hana um það en þá bara kunni hún ekki stakt orð í íslensku,og þegar ég reyndi að fá uppgefið hvað lítrinn kostaði fórnaði hún bara höndum og ég gafst upp og labbaði út.
Ég tek það fram að hún stimplaði rétta lítrafjölda inn.
Hvað er eiginlega í gangi, hvernig verður þetta eftir 20, 40 eða 60 ár, jú það veit ég, það bara verður engin íslenska til.
Sem sagt íslendingar verða enskumælandi íslendingar sem hvorki munu skilja né tala íslensku um næstu aldamót, sem betur fer verð ég steindauður þá.
Kv. SigfúsSig.
Bloggar | Breytt 19.2.2007 kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 17. febrúar 2007
Af gefnu tilefni::
Af gefnu tilefni vill ég bæta við klausu varðandi DV sem ég skrifaði í gær.
Ég er EKKI að setja út á þennan Bloggara og fréttamann sem skrifar greinina um DV, var aðeins að benda á að saga DV er dálítið ruglingsleg svo ekki sé meyra sagt, en þetta er bara mitt álit og það breytist ekkert.
Kv. SigfúsSig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
-
Alfreð Símonarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
halkatla
-
Ari Guðmar Hallgrímsson
-
Baldvin Jónsson
-
Birgir Leifur Hafþórsson
-
Bjarni Harðarson
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyþór Jónsson
-
Fannar frá Rifi
-
Fararstjórinn
-
Friðjón R. Friðjónsson
-
Gestur Halldórsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðmundur Ragnar Björnsson
-
Svava frá Strandbergi
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Gylfi Björgvinsson
-
Hafsteinn Karlsson
-
Hallur Guðmundsson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Haukur Nikulásson
-
Hrannar Baldursson
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Jens Guð
-
Jón Axel Ólafsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kolgrima
-
Kristján Jónsson
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Ragnar Sigurðarson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigurjón Benediktsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Traustadóttir
-
gudni.is
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf Nordal
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Örvar Þór Kristjánsson
-
Þóra Hermannsdóttir Passauer
-
Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar