Hvaða líkamspart má bjóða þér?

Nú gengur yfir afhausanir og aflimana alda í Japan og nóg framboð.

Sautján ára gamall japanskur piltur kom inn á lögreglustöð í borginni Aizuwakamatsu, norður af Tókýó, og sagðist hafa orðið móður sinni að bana. Var hann með höfuð móður sinnar meðferðis í íþróttatösku. Lík konunnar fannst síðar á heimili hennar, að sögn japanskra fjölmiðla.

Pilturinn mun hafa sagt lögreglu, að hann hafi verið einn að verki en hann gaf engar sérstakar skýringar á verknaðinum.

Nokkur óhugnanleg morð hafa verið framin í Japan að undanförnu. Í gær fannst mannsfótur á floti í á í miðborg Tókýó. Í janúar var kona handtekin eftir að hún viðurkenndi að hafa myrt eiginmann sinn og sagað líkið sundur og skilið líkamspartana eftir á víð og dreif um Tókýó.

Þessi gæi hefur nú eitthvað átt bágt.

Skildi vera stutt í að ástandið verður svona á íslandinu saklausa.


mbl.is Kom inn á lögreglustöð með höfuð móður sinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ester Júlía

Oj hvar fannstu þessa mynd!  Ekki geðsleg með morgunkaffinu .  En þessi frétt sem þú vitnar í er hræðileg, hvað er að gerast?  Einhver sagði þegar fólk býr í of þéttum samfélögum þá gerist svona lagað því manneskjan sé ekki gerð til þess og verði á endanum geðveik.  Hvort sem það er satt eða logið.  Óhugnarleg frétt engu að síður. 

Ester Júlía, 15.5.2007 kl. 10:57

2 Smámynd: halkatla

halkatla, 15.5.2007 kl. 14:02

3 identicon

Það er reyndar staðreynd að það eru auknar líkur á þunglyndi, kvíða og félagsfælni í stórborgum, ef ég man rétt var eitthvað fjallað um það í Fél 103. Hinsvegar eigum við að fara í varlega í að fullyrða eitthvað mikið meira. Nú býr meirihluti mannkyns í borgum og því einnig eðlilegt að meirihluti morða gerist í þeim, svo eru fjölmiðlaveldin fyrst og fremst í borgunum og það hlýtur að hafa áhrif á umfjöllun.

Geiri 15.5.2007 kl. 16:44

4 Smámynd: Sigfús Sigurþórsson.

Alveg rétt, engar fullyrðingar - þessi gæi bjó einhverstaðar norður af Tókýó, sem getur svo sem verið í borg þar, en ansi mikið er búið að vera að koma í fréttum um alskonar svona ófögnuð úr sveitum, utan stórborga útí hinum stóra heimi.

Sigfús Sigurþórsson., 15.5.2007 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 158962

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

234 dagar til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband