Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007

Einginn minnist á Krónikan!

Litlu munað að ég skellti uppúr er ég sá auglýsinga bannerinn allra efst og Mbl. blogginu, þar stendur lrisa stórum stöfum: Skoðaðu blaðið sem allir eru að tala um. Tilvitnun lokið.Sleeping

Bros mitt kom til vegna þess að ég hef aðeins séð örfáar manneskjur blogga á Krónikan og það var þegar Krónikan kom út, og aðeins hef ég hitt eina manneskju sem mintist aðeins á þetta blað við mig.

Sem sagt, þetta er alsekki blaðið sem ALLIR eru að tala um að mínu mati og ekki á mínum bæ.

En þínum?

SigfúsSig.


Klámráðstefnustuðningsliðið horfið!

Hefur einhver tekið eftir því að flestir sem blogguðu sem harðast og stóðu með klámráðstefninni forðum hafa hreinlega ekki bloggað síðan, ertu ÞÚ virkilega völd/valdur því að búið sé að niðurbrjóta heiðarlegt klám stuðningsfólk á íslandi, og segi bara eins og góður maður hér á blogginu endar alloft færslur sínar,,, Ég bara spyr?

Tengist ALSEKKI stjórmálum

Sjálfsstæðisflokkurinn er gulur og grænn
af gerjun þú veist hvað ég meina
Davíð er æstur og umhverfisvænn
og ætlar að við Sollu að reyna.

 

Ef það kemur vinstra vor
varla kætast gumar.
Víst mun þurfa seiglu og þor
því aldrei kemur sumar.

 

Á Alþingi er eins og fyr
ekki mikil glæta.
Mundi ekki meira skyr
mega úr þessu bæta.

 

Andskotinn við einteyming
alþinginu ríður.
Úrslit þess er afdæming
allur sér það lýður.

 

Á því ríður öllum lýð,
allar tíðir fyrr og síð:
Hafna kvíða, stöðva stríð,
stunda blíðu, forðast níð.

 

Að sjá þig núna Bingi minn
að sönnu verð ég feginn
en eins ert þú og Andskotinn
upp úr hlandfor dreginn.

 

Útlit Björns er orðið sjúklegt
og af honum mesti völlurinn.
Á endanum verður ekkert brúklegt
á honum nema böllurinn.

 

Klækjafjandi er konan mín,
kjaftar, lýgur, stelur.
Femenista faldalín,
flesta lesti elur.

 

Framsókn, Grýla. tuddi, tröll
til að hræða börnin,
þannig birtist illskan öll
og engin finnist þá vörnin

 

 

Ingibjörg vill eiga mann,
enginn henni banna kann,
ungan, frískan, fjörugan,
í frekara lagi kvensaman.

Hann fær þykir í sínu fagi
frakkur með kjaftinn í lagi
Nú Steingrímur J.
inni á kaffiboð
og vill samstarf af ýmsu tagi.

Hann biðlar til (Ingi)Bjargar
brosir til Guðjóns og argar
Við skulum vera eitt "tím"
"and sjer ðí seim drím"
svo plötuna sömu hann sargar.

 

-------------------

 

Hann biðlar til (Ingi)Bjargar
brosir til Guðjóns og argar
Hann áfram þau teymir
um völd þau öll dreymir
Til vinstri snú hann gargar.
 

 

Segist vilja til vinstri snúa
velferð á segist trúa
En við vitum það öll
að hvorki hróp eða köll
betri hag munu þjóðinni búa.

 

Á því kenna íhaldsmenn,
orðstír grenna svikin.
Rofnir brenna eiðar enn,
orð og pennastrikin.

 

Að lokahríð nú líður senn,
lífinu flestir hrósa.
En gleymið þá ei, góðir menn,
G-listann að kjósa.

 

Það er vandi að velja leið
og vinna fjöldans hylli.
Láttu alltaf skríða skeið
skers og báru milli.

 

Utanveltan angur jók,
aldrei var hann glaður,
vatt sér því í vinstri brók
valdastreitumaður.

 

Sigfússon rauði sá er kauði ljótur.

og kannski er hann lóka þrjótur
Sífellt blauður betlar um
að bjarga sauðum horuðum.

 

 


Hvurn andskotanns kemur okkur það við? segir Baggalútur

 (Færslan klikkaði eitthvað, sett inn aftur)

Það er alveg stórkostulegt hversu margir Bloggarar eru góðir pennar, ég lenti óvart inn á síðu Baggalúts og gleymdi mér gjörsamlega.

Kíktu á. Launakjör forstjóra Kaupþings


Sneddí.

Er þetta ráðstafanalausn.


Eins gott að vera ekkert með neitt joke.

Manngreyið var með smá grín í gangi og fær jafnvel 75 ára fangelsisdóm fyrir, hvar eru mannréttindin núna?

SigfúsSig.

Ps. Breytt: stafsetningavilla löuð og færslan endurnýjuð.


Getur þú ekki hælt bílstjóra en hallmælt bílnum? og öfugt?

Ég átta afar skemmtilegt samtal í dag (í síma) við kunningja minn sem einnig er bloggari hér þótt ág hafi ekki haft grun um það, hefur meyra að segja fylgst með ruglinu í mér frá byrjun.

Margt bar á góma eins og vera ber, tvennt var það sem ég undraðist dálítið, annarsvegar var það að þrátt fyrir að vera hér á blogginu og lesa ruglið í mér, hafði hann hvorki skrifað í Athugasemdir né sagt mér frá að hann væri að blogga hér þótt ég hitti eða heyra í honum alltaf annað veifið.

Hitt vakti kannski enn meyra undrun mína og það var að hann minntist á ófagmannlega skrifaða færslu á blogginu eftir mig þar sem ég setti link um Jakop Frímann inn, við spjölluðum um þetta fram og til baka og margt tengt skoðunarkönnunum bar líka á góma, við minntumst á þó nokkra stjóramálamenn, í hinum og þessum flokkum og marga þeirra ber ég mikla virðingu fyrir, þetta fannst honum alveg furðulegt, að ég skildi hæla hinum og þessum stjórnmálamönnum þótt þeir væru ekki einusinni í flokknum sem ég sennilega muni kjósa.

Hann sagði að lokum að ég væri ekki trúr mínum flokki né flokksvali.

Ég veit þú lest þetta xxxxx, en mín skoðun á þessum mönnum og konum hefur ekkert breyst.

Það eru snillingar í FLESTUM flokkum, verst að geta ekki sameinað allt þetta frábæra stjórnmálafólk í einn samheldin hóp/flokk.

SigfúsSig.

Ps. leiðrétting á orðum vinar míns og færslan sett inn aftur, rétt skal vera rétt.


Mig langar að benda Femínistum/konum á bloggfærslu.

Er Femínistum (konum og konum kannski almennt) virkilega alveg sama ef hallar á karlmanninn?  er það eina sem skiptir máli, réttur konunnar.

Þessi færsla beinist alsekki einvörðungu að Femíniskum konum.

Ég er mjög meðvitaður um að það vantar þónokkuð á jafnréttið, en er þetta í réttum farvegi? Ég sem einstæður faðir til margra ára hef marg MARG oft lent á dyrum í kerfinu þar sem ég á EKKI greiða leið eða greiðan aðgang, sem konum (einstæðum mæðrum) standa galopnar, þetta hafa konur (einstæðar mæður) sagt mér sjálfar, oft hefi ég lent í því að fólk (konur) líta á mig þegar verið er að ræða þessi mál eins og ég sé að skipta mér að einhverju sem ég hafi ekki hundsvit á vegna þess að ég er karlamaður.

Auðvitað má segja: Þið getið bara barist fyrir ykkar rétti sjálfir, þetta er bara ykkar mál.

Mig langar að benda á blogg færslu hér á blogginu  hjá bloggaranum Óskar.

SigfúsSig.


Skoðanakannair lítt spennandi!

Svo virðist sem ákveðið munstur sé orðið hvernig komandi kosningar fara, málin eiga bara eftir að þróast enn meyra í þá átt sem síðustu skoðanakannanir hafa verið að sína, nánast engar breytingar eru á skoðanakönnunum nema jú maður staldrar aðeins við á meðan maður les um framsókn, og meyra að seigja í mínum augum og flestra sem ég hef talað við undanfarna daga er er ekki einusinni spenningur um það hvaða flokkar fara saman í stjórn

Er það? er það ljóst hvernig næst ríkisstjórn verður skipuð?

Allavega get ég ekki ímyndað mér að framsókn verði og hef trú á að margur Framsóknarmaðurinn sé því bara feginn, þeir þurfa núna bara að einbeita sér að því að stokka eitthvað upp spili, það er að segja ef þau finnast.

SigfúsSig.


mbl.is Samfylkingin með 19,2% fylgi samkvæmt könnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Partners.blog.is

Sigfús Sigurþórsson.
Sigfús Sigurþórsson.

 

 

Nýjustu myndir

  • ...s8000652
  • ...s7000479
  • ...s7000525
  • ...s7000530
  • ...s7000558
  • ...s7000463
  • ...s6000810
  • ...s7000409
  • ...s7000389
  • ...s7000347

Nýjustu myndböndin

Severum_ad_kissast

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

31 dagur til jóla

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband