Þriðjudagur, 8. maí 2007
Það þarf nú að fara að gera skoðanakönnun á þessum skoðanakönnunum.
Það ríður ekki við einteyming hvað þessar skoðanakannanir eru óstapílar, ég vill láta fara aðfram skoðanakönnun á þessum skoðanakönnunum.
En er það þetta sem Framsókn á við með- Áfram og ekkert stopp, er núna loksins komið að Framsóknarflokknum? Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 9,9% en var 7,6% í könnuninni í gær.
Samkvæmt nýrri könnun, sem Capacent Gallup hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið, eykst fylgi Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar frá samskonar könnun, sem birt var í gær, en fylgi Sjálfstæðisflokks, Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs og Frjálslynda flokksins minnkar.
Samkvæmt könnuninni, sem gerð var 6. og 7. maí, segjast 38,4% ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk en í könnun gærdagsins var þetta hlutfall 41,9%. Samkvæmt þessu fengi flokkurinn 25 þingmenn en litlu munar á 26. þingmanni flokksins og 11. þingmanni VG.
27,1% segjast ætla að kjósa Samfylkinguna en í könnuninni í gær mældist fylgi flokksins 25,1%. Flokkurinn fengi 18 þingmenn samkvæmt þessu.
Fylgi VG mælist nú 16,5% en mældist 17,5% í könnuninni í gær. Flokkurinn fengi 11 þingmenn miðað við þessa niðurstöðu.
Fylgi Framsóknarflokksins mælist nú 9,9% en var 7,6% í könnuninni í gær. Flokkurinn fengi 6 þingmenn.
Fylgi Frjálslynda flokksins mælist 5,3% í könnuninni í dag en var 6% í könnun gærdagsins. Þingmenn flokksins yrðu 3 samkvæmt þessu.
Fylgi Íslandshreyfingarinnar mælist í dag 2,9% en var 2% í gær.
Í könnuninni var spurt um hvort viðkomandi styddu ríkisstjórnina og svöruðu 49,7% þeirri spurningu játandi en 50,3% neitandi. Talsverður munur er á afstöðu kynja til ríkisstjórnarinnar en 54,4% karla svöruðu þeirri spurningu játandi en 55,4% kvenna svöruðu neitandi.
Úrtakið í könnuninni var 1150 manns, 18 ára og eldri. Nettósvarhlutfall var 63,7%. Alls nefndu 86% flokk, 5,6% neituðu að svara, 5,4% sögðust óákveðin og 3,2% sögðust ætla að skila auðu.
Fylgistölur eru reiknaðar út frá svörum við þremur spurningum: Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista myndir þú kjósa? Þeir sem voru óákveðnir voru spurðir: En hvaða flokkur eða listi yrði líklegast fyrir valinu? Þeir sem enn voru óákveðnir voru spurðir: Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?
-
Og enn meyra af skoðanakönnunum, hér svo það sem er í morgunblaðinu í dag.:
Snögg niðursveifla hjá Framsóknarflokknum á lokasprettinum
Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin bæta við sig frá síðustu könnun.


NÝ könnun Capacent Gallup fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið sýnir að fylgi Framsóknarflokksins á landsvísu hrapar, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking bæta nokkru við sig en stuðningur við Vinstrihreyfinguna grænt framboð er á svipuðu róli og í síðustu könnun sem birt var 4. maí. Stjórnarflokkarnir halda naumum meirihluta, 32 sætum af 63.
Könnunin var gerð dagana 5.6. maí og var úrtakið 950 manns, 18 ára og eldri, nettósvarhlutfall var 62%. Sem fyrr var notuð sú aðferð að spyrja þriggja spurninga, fyrst hvaða flokk viðkomandi myndi kjósa, síðan, ef viðkomandi var óákveðinn, hvaða flokkur væri líklegastur til að verða fyrir valinu og loks voru þeir sem enn voru óákveðnir spurðir hvort líklegra væri að þeir kysu Sjálfstæðisflokkinn en einhvern hinna. Þá fer svarhlutfallið yfir 80% en eftir sem áður eru óákveðnir 6,2%, 9,1% neitar að svara og 3,8% ætla að skila auðu.
Sjálfstæðisflokkurinn er sem fyrr langt yfir kjörfylginu 2003, hann fær nú 27 þingsæti en Framsóknarflokkurinn aðeins fimm. Margir voru farnir að spá því að Framsókn myndi, eins og oft áður í aðdraganda kosninga, bæta mjög stöðuna á endasprettinum eftir erfiðan róður í könnunum síðustu mánuðina og teikn voru um að það væri að gerast. Flokkurinn var með 10% í tveimur könnunum í röð, að vísu langt undir kjörfylginu 2003 en samt með skárri stöðu en oft áður. Nú slær á ný í bakseglin og aðeins fáeinir dagar til kosninga.
Ekki er auðvelt að sjá hvað veldur þessari snöggu sveiflu niður á við. Hugsanlegt er samt að neikvæð umræða í fjölmiðlum um flokkinn í tengslum við veitingu ríkisborgararéttar til unnustu sonar umhverfisráðherra hafi þar áhrif.
Samfylkingin sækir í sig veðrið
Samfylkingin þokast enn upp á við, fær nú 16 þingsæti, var með 15 sæti 4. maí. Þróunin í síðustu könnun er staðfest með þessum tölum en flokkurinn á þó enn langt í land eigi hann að fá jafnmikið fylgi og í kosningunum 2003.Vinstrihreyfingin grænt framboð fær nú nær sama prósentufylgi og í könnuninni 4. maí en einu þingsæti færra, 11. Flokkurinn er langt yfir kosningafylginu 2003. Frjálslyndi flokkurinn þokast upp á við frá síðustu könnun og er nú spáð fjórum þingsætum en fékk þrjú í síðustu könnun. Fylgið er áfram langt undir því sem flokkurinn hlaut 2003. Íslandshreyfingin fær nú 2% fylgi og sem fyrr ekkert þingsæti.
Ef rýnt er í tölurnar kemur í ljós að sem fyrr eru konur hlutfallslega mun hallari undir vinstriflokkana tvo en aðra. Kvenhylli VG dvínar samt nokkuð hlutfallslega miðað við fyrri kannanir. Könnunin staðfestir á hinn bóginn þróun sem kom skýrt í ljós í síðustu könnun: Samfylkingin sækir fram meðal kvenna, 30% þeirra styðja flokkinn en 20% karla. Um hríð virtist Sjálfstæðisflokkurinn vera að laga stöðuna meðal kvenna en nú sækir aftur í sama farið, hann nýtur stuðnings 47,5% karla en um 36% kvenna.
Fáir yfir til Framsóknar
En hvað með hreyfingu á milli flokkanna miðað við síðustu kosningar? Sjálfstæðisflokkurinn missir lítið fylgi til annarra flokka, nær 83% þeirra sem völdu hann árið 2003 halda tryggð við flokkinn. Samfylkingunni helst einnig vel á gömlum kjósendum símum, 74% þeirra ætla að kjósa hana aftur. Nær 20% fyrrverandi Samfylkingarfólks fara yfir til VG en flokkurinn hefnir þeirra harma með því að lokka 11% af gömlum stuðningsmönnum VG til sín.VG heldur megninu af fylginu frá 2003, um 81% þess ætlar að kjósa flokkinn aftur. Framsókn missir liðlega helming fyrrverandi stuðningsmanna sinna til annarra flokka og enn hærra hlutfall af fylginu fer til Sjálfstæðisflokksins, 28%, en til stjórnarandstöðunnar, 20%. Um 6,1% þeirra sem kusu síðast Framsókn ætlar nú að styðja Frjálslynda. Athygli vekur að Framsóknarflokkurinn virðist ekki laða að sér neitt umtalsvert fylgi frá öðrum flokkum.
Það er alveg ljóst að ekki veitir af að láta fara aðfram skoðanakönnun á þessum skoðanakönnunum.
![]() |
Fylgi Samfylkingar og Framsóknarflokks eykst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Ha, er verið að fara að kjósa á íslandi!
Ég er alveg sammála bæði ungum og öldnum í þessu viðtali, enginn hasar, sáralítið þref og skotin á milli flokka ákaflega máttvana.
Hvar eru ræðu kallarnir og konurnar, sem jafnvel létu sér ekki muna um að halda þrumu ræðu uppá kassa hér og þar og alstaðar?
Hvar er áróðurinn og slagurinn á milli flokka sem telst vera á mörkum þess að vera saknæmur?
Núna bjóða flokkar bara upp á pulsur, kók og blöðrur, einnig í Húsdýragarðinn og ýmsar aðrar skemmtanir sem koma stjórnmálum hreinlega ekkert við. Er það þetta það sem ræður úrslitunum hvaða flokk fólk kýs? það allavega gerir það hjá mörgum, því annars væru flokkarnir ekki í þessu skemmtana brölti.
Flokkar keppast við að troða og stífla alla póstkassa hjá fólki af myndum af þeim sem í kjöri eru og fagurgala lesefni þar sem ekkert er til sparað, hvorki í pappír né pening.
Flokkarnir halda fundina en lítið ber á að einstaklingar flokkanna séu að þenja sig á almanna færi, stjórnmálamenn fara 3 og 4 saman á vinnustaði ef þeir þá standa nokkuð í svoleiðis veseni, eitthvað hefur verið samt um það.
Ég er svo sem ekki alstaðar og hef aldrei verið, og ætla því ekki að alhæfa allt þetta á allt og alla.
Þessi dauflegheit yfir kosningunum gerir það að verkum að ég er steinhissa á hve fáir sem ég tala við eru óákveðnir, flestir virðast vera búnir að ákveða sig, sem ekki er í takt við þessar sveiflur sem skoðanakannanir eru að sýna.
En sem sagt, ekki kæmi það mér neitt á óvart að einhver segði - Ha, er verið að fara að kjósa? hvenær?
![]() |
Dauf kosningabarátta að mati kjósenda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Þriðjudagur, 8. maí 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Loðin ekur lúxus vagni
lukku ungra vekur
Kom gutta einum að góðu gagni
grimma ketti hrekur.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum.
Dægurmál | Breytt 9.5.2007 kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (42)
Mánudagur, 7. maí 2007
Risessan mikla.
Þessu ætlum við prinsessan mín ekki að missa af eins ég sagði í færslu hér aftar:::: http://partners.blog.is/blog/partners/#entry-201289
Leiðir risessunnar og risans verða í stórum dráttum þessar dagana 11. og 12. maí:
Föstudagur 11. maí:
Kl. 10:30. Risessan vaknar við Hljómskálann og gengur af stað Fríkirkjuveg, Pósthússtræti, Tryggvagötu, Hafnarstræti, Lækjartorg, Skólavörðustíg og upp að Hallgrímskirkju. Þar leggur hún sig um kl. 13.
Kl. 15 heldur hún aftur af stað frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg, upp Laugaveg, Snorrabraut og gengur eftir Sæbrautinni að hafnarbakkanum en þar mun hún leggjast til svefns.
Laugardagur 12. maí:
Kl. 10:30 Risessan vaknar á hafnarbakkanum og fer í sturtu. Hún gengur inn á Ingólfstorg, Aðalstræti, Lækjargötu og Fríkirkjuveg þar sem hún hittir fyrir risann um kl. 11:30.
Kl. 15. Lokagangan hefst frá Lækjartorgi, upp Hverfisgötuna, Snorrabraut, Sæbraut og að hafnarbakkanum þar sem lokaatriðið hefst um kl. 17.
Auk Listahátíðar og frönsku menningarveislunnar Pourquoi Pas? - Franskt vor á Íslandi 2007 er verkefnið unnið í samvinnu við Reykjavíkurborg. Einnig koma fjölmargar stofnanir og fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar að undirbúningi og framkvæmd verkefnisins. Um 200 manns koma að sýningu götuleikhússins hér á landi.
Ferðaáætlun laugardagsmorgun | |
Ferðaáætlun föstudagsmorgun | |
Ferðaáætlun föstudagseftirmiðdag | |
Ferðaáætlun laugardagseftirmiðdag |
![]() |
Ferðir risessunnar um Reykjavík gefnar upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 7. maí 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Býr mér innan rifja ró,
reiði, hryggð og kæti.
Kurteisin og kári þó
koma mér úr sæti.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Vísbendingar koma á eftir svartilraunum.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Sunnudagur, 6. maí 2007
Spencer Tunick sýnir hér á landi þann 12 maí 2007
Verk Spencer Tunick hafa vakið mikla athygli undanfarin ár. Frá árinu 1992 hefur hann staðið fyrir gjörningum á opinberum vettvangi þar sem hann safnar saman fjölda sjálfboðaliða í einn hóp, raðar nöktum líkömunum þeirra saman og ljósmyndar undir berum himni. Hann hefur ferðast víðsvegar um Bandaríkin, Ástralíu, Suður Ameríku og Evrópu og staðið fyrir slíkum gjörningum. Hvarvetna flykkist fólk að til þess að taka þátt, en þó hefur þetta ekki alltaf gengið vandkvæðalaust fyrir sig því Tunick hefur oftar en ekki verið handtekinn fyrir þessa iðju sína. Hann hefur þó aldrei verið lögsóttur, því fyrirsæturnar taka allar þátt af fúsum og frjálsum vilja. Segir í kynningu um Tunick.
Sjá meira pdf. - Sjá meira - Sjá mera
![]() |
20 þúsund naktar manneskjur í Mexíkóborg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Laugardagur, 5. maí 2007
Vísna gáta dagsins
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Ferðast er til og farið er frá
farið helst ef að hýtt er
sífelt úr viði og talin smá
skokkað um kring og tínd ber.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið.
Bækur | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Föstudagur, 4. maí 2007
Ellý Ármannsdóttir lang lang flottust.
Ellý segist bara ekkert skilja í þessu, en þetta er auðskilið, hún segir sögur af því sem fólk vill hlusta á, segir krassandi sögur af lífi annarra með skemmtilegum stíl, svo er spurning hvers vegna fólk er svona sjúkt í að lesa þessar sögur hennar um einkahagi vina sinna, hvort þessir svokölluðu vinir séu raunverulegir eða ekki skiptir ekki neinu máli finnst mér, og það er bara allt annar handleggur, sem jú alveg er pælandi í. Eins er hægt að velta sér uppúr því hvernig fólk það er sem lifir og hrærist í svona sögum. Allavega, þetta er frábært hjá kasóléttri stelpunni.
Fréttin:
Ellý Ármannsdóttir, þula í Sjónvarpinu, segir miklar vinsældir bloggsins hennar koma sér mjög á óvart. Hún er langvinsælasti bloggari landsins um þessar mundir, og eru daglegar heimsóknir á bloggsíðuna hennar vel yfir tíu þúsund á dag.
Ellý segist ekki hafa neina sérstaka fyrirmynd að skrifunum, þau séu fyrst og fremst til þess gerð að hafa gaman að þeim.
![]() |
Ellý segist hissa á hvað bloggið hennar er vinsælt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Föstudagur, 4. maí 2007
Framsóknarlagið.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Föstudagur, 4. maí 2007
Hvað nú? hvað á ég nú að kjósa?
Nú er sá flokkur hættur við að bjóða fram í kosningunum eftir aðeins eina viku, það var búið að telja mér trú um að eina vitið væri að kjósa Baráttusamtökin og var ég bara alveg að kaupa þá ráðleggingu "vina" minna.
Svo kemur þessi frétt eins og skrattinn úr sauðalæknum, hvað er eiginlega í gangi? Hvað gera vinir mínir nú?
Fimmtudaginn 3. maí, 2007 - Innlendar fréttir Baráttusamtök hætt við framboð
BARÁTTUSAMTÖK aldraðra og öryrkja eru hætt við að bjóða sig fram fyrir alþingiskosningar, sem fara fram eftir rúma viku. Þetta staðfesti María Óskarsdóttir, í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í gær.

Þetta staðfesti María Óskarsdóttir, í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í gær. María situr í efsta sæti framboðslista samtakanna í Norðausturkjördæmi en Baráttusamtökin skiluðu aðeins lista til yfirkjörstjórnar í því kjördæmi í tæka tíð. Hún segir meginástæðuna fyrir ákvörðuninni vera fjárskort.
Arndís Óskarsdóttir, formaður Baráttusamtaka aldraðra og öryrkja, sagði í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins að það sé mun meira en vonbrigði að samtökin hafi ekki getað boðið fram á landsvísu, listar hafi verið fullmannaðir.
Hún telur að gróflega hafi verið brotið á samtökunum, meðal annars af fulltrúum yfirkjörstjórnar sem að hennar sögn gáfu ekki samtökunum nauðsynlegar upplýsingar.
"Mér finnst líka ansi einkennilegt að yfirkjörstjórn sé öll skipuð sjálfstæðismönnum" segir Arndís sem segir að það væri engu líkara en að fyrirfram hafi verið ákveðið að gera baráttusamtökunum lífið leitt. Þar hafi fjölmiðlar líka spilað stórt hlutverk og segir Arndís suma fjölmiðla varla hafa gefið samtökunum neitt vægi í umfjöllun sinni og nefnir þar Morgunblaðið sérstaklega. Tilv. lokið.
Nú er ég hræddur um að maður verði að bretta upp ermarnar og skoða hvað er næst best, eða hvað?
Þessi ríkistjórn sem hefur verið síðustu kjörtímabilin hefur máské ekki verið alvond, eitthvað hefur hún gert rétt, en þá er það spurningin hvað það er? og hvar hefur henni mistekist?
Nú verð ég bara að finna nýja vini, fá nýjar vísindalegar ráðleggingar, ekki þýðir að taka ákvörðun í svona viðamiklum málum bara eitthvað útí bláinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Föstudagur, 4. maí 2007
Vísna gáta dagsins.
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Margvís - legur er liturinn,
læst komi óboðinn gestur,
veggina vill svo maðurinn,
vitna um hver er mestur.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið.
Ljóð | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
Fimmtudagur, 3. maí 2007
Þetta er sko ekkert grín, nú er karl greyið syrgjandi ekkill.
Það hefði nú ekki þótt réttlátur dómur í okkar dómskerfi, að sú sem nýðst var á fékk sama dóm og sá sem framkvæmdi nýðingsverkið, eða, kanski hefur verknaðurinn verið samantekin ráð hjá þeim skötuhjúum á sínum tíma.
Rósa, þekktasta geitin í Súdan, er farin á vit áa sinna, að því er kemur fram á fréttavef breska ríkisútvarpsins BBC. Um er að ræða geit, sem komst í fréttirnar á síðasta þegar eigandi hennar var neyddur til að giftast" henni.
BBC skýrði frá því í febrúar á síðasta ári, að eigandi geitarinnar hafi verið staðinn að því að eiga við hana mök. Öldungar í þorpinu ákváðu að veita eigandanum ráðningu og neyddu hann til að giftast geitinni.
Frétt, sem birtist á sínum tíma á fréttavef BBC, vakti mikla athygli og BBC segir að hún sé enn að birtast á ýmsum vefjum víða um heim og á spjallsíðum. Hefur hún verið opnuð milljón sinnum á vef BBC og leit með Google leiðir í ljós, að fréttina er að finna í ýmsum útgáfum á um milljón öðrum vefsíðum.
Samfélagið í suðurhluta Súdan er afar íhaldssamt. Ef karlmaður verður uppvís að því að sofa hjá stúlku er honum skipað að giftast henni strax til að vernda heiður stúlkunnar og fjölskyldu hennar. Þessi siðfræði lá að baki refsingunni, sem geitareigandinn hlaut. Öldungarnir skipuðu manninum einnig að greiða geitinni heimanmund, jafnvirði 6000 króna.
BBC segir að banamein Rósu sé talið vera, að hún hafi kafnað eftir að hafa gleypt plastpoka þegar hún var að gæða sér á rusli á götum bæjarins Juba.
Ætli kallgreyið fái einhverjar bætur, svo sem dánarbætur?
Allavega er blessuð geitin laus úr þessum viðjum og frá þessum niðurlægjandi atburði sem hún lenti í þegar bóndi hennar var dæmdur til að giftast henni, og það í viðurvist allra bæjarbúa, þvílík hneikslan, sko fyrir geitina.
![]() |
Geitabrúðurin öll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 3. maí 2007
Einn alsherjar skrípaleikur.
Kasti þeir svo steinum sem saklausir eru í þessu landi.
Baugsmálið neikvætt fyrir viðskiptalífið
Jón Ásgeir og Tryggvi sætta sig ekki við sakfellingu að neinu leyti
Stjórn Baugs lýsir eindregnum stuðningi við Jón Ásgeir
![]() |
Jón Ásgeir og Tryggvi dæmdir í skilorðsbundið fangelsi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimmtudagur, 3. maí 2007
Vísna gáta dagsins
Vísnagáturnar og gátur sem birtast á þessari bloggsíðu eru eftir hina og þessa höfunda, óskað er eftir svari og eins höfundanafni, Svar telst hinsvegar rétt þótt höfundarnafn vanti, enda getur komið hjá Bloggara vísnagáta eða gáta sem Bloggari hefur ekki höfundarnafnið á. Ekki er neinn sérstakur tímarammi á innsetningu á gátum..
-
Gáta dagsins er svohljóðandi:
Margur harður meiddi mig,
manna skiptir fæði,
síðan fer í sjálfan sig,
og sinni léttir mæði.
Svar óskast (og helst höfundarnafn)
Öllum eru velkomið að þreyta gátur þær sem birtast hér á www.partners.blog.is
Svar mun verða staðfest þegar rétt svar er komið.
Bækur | Breytt s.d. kl. 10:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
Miðvikudagur, 2. maí 2007
Þetta verður sko skemmtilegur viðburður, og aldeilis ekki síst fyrir börnin.
Myndbönd:
![]() | |
Fréttin á Mbl. um komu hópsins:
Átta metra risafígúra, Risessan, kemur til Reykjavíkur með skemmtileg ævintýr dagana 10. til 12. maí. Hér er um að ræða sýningu franska götuleikhússins Royal de Luxe. Verkefnið er unnið í samstarfi Listahátíðar og Fransks vors á Íslandi.
Þar sem um risavaxinn viðburð er að ræða koma fjölmargar stofnanir og fyrirtæki í eigu Reykjavíkurborgar að undirbúningi og framkvæmd verkefnisins eins og Framkvæmdasvið, Faxaflóahafnir, Orkuveitan, Strætó b.s .o.fl, ásamt slökkviliði og lögreglu sem bæði taka þátt og hafa gætur á gangi mála.
Royal de Luxe hefur ferðast um allan heim með sýningar sínar og leyft fólki að njóta ævintýranna sem þau skapa á hverjum stað fyrir sig. Hópurinn sló m.a. í gegn í Lundúnum í maí í fyrra með söguna um soldáninn á fílnum og ennfremur vakti hópurinn mikla hrifningu í Santiago í Chile í janúar á þessu ári. Royal de Luxe hefur ferðast um nær alla Evrópu, Afríku og Asíu en fyrsta sýning þeirra á Norðulöndum verður á Íslandi.
>BBC London< >The Sultans Elephant< >Myndir<
Þetta verður meyriháttar gaman og skemmtilegur viðburður, risa list svo ekki sé meira sagt.
Þetta hlakkar mig til að sjá með þeirri yngstu minni.
![]() |
Risessan arkar um Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Menning og listir | Breytt 3.5.2007 kl. 09:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Miðvikudagur, 2. maí 2007
Það rigndi líka viðurkenningum á ráðherrana/ráðfrúrnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Miðvikudagur, 2. maí 2007
Alstaðar vekur drykkjuskapurinn athygli.
Manni finnst það einkennilegt að fólk þurfi að berjast fyrir að það sé viðurkennt að brjóstamjólkin sé best, en sum framleiðslu fyrirtæki svífast akkvurat einskis.
Í 60 ár hefur Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna eða UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í 156 löndum og svæðum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára segir inn á íslenska UNICEF vefnum.
Fréttin á Mbl: Heimsmet í brjóstagjöf
Mörg þúsund filippískar mæður gáfu í morgun börnum sínum brjóst til að stemma stigu við auglýsingum sem telja mæðrum trú um að barnamatur sé hollari en brjóstamjólkin. Það voru meðal annars starfsmenn UNICEF sem skipulögðu brjóstagjöfina og vonast þeir til að komast í heimsmetabók Guinness vegna fjölda mæðra sem gáfu brjóst samtímis.
Óopinberar tölur segja að í það minnsta 3,608 mæður tóku þátt á landsvísu. Þær komu saman í íþróttahúsum, félagsheimilum og á barnaheimilum til að gefa börnum sínum brjóst.
Ríkjandi heimsmet settu konur í Berkley í Kaliforníu er 1,130 mæður mótmæltu reglum um brjóstagjöf á almannafæri í ágúst 2002.
![]() |
Heimsmet í brjóstagjöf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
-
Alfreð Símonarson
-
Anna Benkovic Mikaelsdóttir
-
halkatla
-
Ari Guðmar Hallgrímsson
-
Baldvin Jónsson
-
Birgir Leifur Hafþórsson
-
Bjarni Harðarson
-
Elsa Rut Jóhönnudóttir
-
Eygló Þóra Harðardóttir
-
Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
-
Eysteinn Skarphéðinsson
-
Eyþór Laxdal Arnalds
-
Eyþór Jónsson
-
Fannar frá Rifi
-
Fararstjórinn
-
Friðjón R. Friðjónsson
-
Gestur Halldórsson
-
Guðfríður Lilja
-
Guðmundur Jónas Kristjánsson
-
Guðmundur Ragnar Björnsson
-
Svava frá Strandbergi
-
Guðrún Magnea Helgadóttir
-
Gylfi Björgvinsson
-
Hafsteinn Karlsson
-
Hallur Guðmundsson
-
Hannes Sigurbjörn Jónsson
-
Haraldur Haraldsson
-
Haukur Nikulásson
-
Hrannar Baldursson
-
Hrönn Sigurðardóttir
-
Jens Guð
-
Jón Axel Ólafsson
-
Jónína Benediktsdóttir
-
Kolbrún Baldursdóttir
-
Kolgrima
-
Kristján Jónsson
-
Kristín Katla Árnadóttir
-
Margrét Elín Arnarsdóttir
-
Brosveitan - Pétur Reynisson
-
Páll Vilhjálmsson
-
Ragnar Sigurðarson
-
Sigmar Guðmundsson
-
Sigurjón Benediktsson
-
Sigurður Sigurðsson
-
Stefán Friðrik Stefánsson
-
Viggó H. Viggósson
-
Vilborg Traustadóttir
-
gudni.is
-
Ása Hildur Guðjónsdóttir
-
Ólaf de Fleur Jóhannesson
-
Ólafur Ragnarsson
-
Ólafur fannberg
-
Ólöf Nordal
-
Óskar Þ. G. Eiríksson
-
Örvar Þór Kristjánsson
-
Þóra Hermannsdóttir Passauer
-
Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar