Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Föstudagur, 23. mars 2007
Okur á barnabókum.
Hefur fólk ekkert að segja um verð á barnabókum á íslandi?
Ég keypti bókina Fugl og fiskur eftir Vilborgu Dagbjartsdóttir handa Guðbjörgu Sól (7 ára dóttir minni) um jólin sem er ekki frásögu færandi, nema að henni finnst bara ekkert gaman að henni, því miður (einn spældur) þessi bók kostaði eitthvað um 3000 krónurnar, en þessi bók inniheldur þó nokkurn texta, og er 145 bls. nettar myndir og því meyri texti.
Af hverju keypti ég þessa bók? nú það var auðvitað vegna þess að afgreyðslumaðurinn sagði að hún væri ætluð börnum á svipuðu reki og hnátan mín sem var með mér, og svo náttúrulega líka vegna þess að ég yrði nokkur kvöld að fara í gegnum hana, ég nefnilega les ávalt stutta sögu fyrir hana á kvöldin þegar hún fer að sofa, og reyndar segi líka sögur sem ég bara skálda uppúr gömlum ævintýrum, og blanda gjarnan einhverjum ævintýrum saman, það finnst henni ekki síðra.
Síðan er ég búin að vera að kíkja í kringum mig eftir "skemmtilegri bók og bókum fyrir hana því það er hundleiðinlegt að sofna útfrá snarruglingslegri bók sem er eins og hafi verið skrifuð árið sautánhundruðogsúrkál, með alskonar gamaldags orðum sem enginn undir 75 ára skilur.
Þunnar og fallegar bækur fást í massavís, verðið á þessum "mynda" og sögu "bæklingum" er til skammar, smá kiljur sem eru ca. 30 til 100 blaðsíður (1 blað taldar 2 síður, hli1 og hlið 2) kosta algengt frá tæpar 1000 krónum upp í ca.3000 krónur 1/2 til 1 1/2 sentimetrar á þykkt ca.
Það finnst sjálfsagt mörgum ekki mikið verð 2 til 3000 kall, en hvað ef þú þarft að kaupa svona 3 í mánuði? (fljót lesnar) þíðir það ekki 70.000 til 108.000 krónur á ári? ég hugsa að mörgum þyki það mikið og sumir hreinlega hafa ekki efni á slíku.
Hér set ég nokkur verðdæmi á bókum sem eru í svipuðum stærðar flokki og ég greini frá hér að ofan:
Muna að blaðsíða er aðeins önnur hliðin á einu blaði, og því er eitt blað taldar sem 2 blaðsíður.
Abdí og hálsmen drottningar |
Höfundur: Madonna |
Þýðandi: Silja Aðalsteinsdóttir |
Myndefni: Andrej Dugin, Olga Dugina |
Verð: 1.868 kr. |
Blaðsíður: 44 |
Útgefandi: Mál og menning |
Amma fer í sumarfrí Höfundur: Björk Bjarkadóttir Verð: 2.149 kr. Útgefandi: Mál og menning |
Amma og þjófurinn í Safninu Höfundur: Björk Bjarkadóttir Verð: 1.868 kr. Blaðsíður: 26 Útgefandi: Mál og menning |
Bakkabræður Höfundur: Jóhannes úr Kötlum Myndefni: Tryggvi Magnússon Verð: 741 kr. Blaðsíður: 36 Útgefandi: Mál og menning |
Beint í mark Þýðandi: Bjarni Guðmarsson Verð: 2.149 kr. Ekki gefið upp bls. fjöldi. Útgefandi: Mál og menning |
Benedikt búálfur - Svarta norn Höfundur: Ólafur Gunnar Guðlaugsson Verð: 2.525 kr. Ekki gefið upp bls. fjöldi. Útgefandi: Mál og menning |
Einar Áskell og stríðspabbinn Höfundur: Gunilla Bergström Þýðandi: Sigrún Árnadóttir Verð: 2.149 kr. Ekki gefið upp bls. fjöldi. Útgefandi: Mál og menning |
Emil í Kattholti - allar sögurnar Höfundur: Astrid Lindgren Þýðandi: Vilborg Dagbjartsdóttir Myndefni: Björn Berg Verð: 2.806 kr. Blaðsíður: 409 Útgefandi: Mál og menning |
Gáfnaljós: Gaman að læra Verð: 835 kr. Afar þunn bók. Útgefandi: Vaka-Helgafell |
Auðvelt er að finna dýrari barnabækur, en ekki auðvelt að finna ódýrari.
Ég nenni nú ekki að vera með fleiri dæmi hér, en þetta er þó ágætis sýnishorn.
Er ekki hægt að láta einhvern flokkinn lofa uppí ermina á sér með niðurgeyðslur á barnabókum?
En þetta er sjálfsagt nokkuð sem enginn hefur áhuga á í okkar velferðar og tölvu þjóðfélagi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Teflir djarft með þjóð sína.
Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans segist ekki vera að gera neitt rangt, afstaða Bandaríkjanna og Breta í öryggisráðinu eru hinsvegar ólögmætar.
Ahmadiejad vill enga samninga, og það virðist sem að þeir hópar sem vilja ganga til samninga þori ekki að láta heyra í sér, við eitthvað eru þeir hræddir, hvernig ætlar maðurinn að verja aðgerðir sínar ef Öryggisráðir samþykkir innrás? og af henni verður.
Ahmadinejad hefur ekki áhyggjur af því að Bandaríkin geri árás á Íran | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.3.2007 kl. 00:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Grín á Alþingi?
Íslandshreyfingin mun klárlega ná ágætis kosningu þrátt fyrir stuttan aðdraganda eða allavega miðað við stuttan aðdraganda, en hvaðan koma kjósendur Íslandshreyfingarinnar? Ég spái því að þeir muni mest taka frá Framsóknarflokknum, slatta frá VG og kannski eitthvað álíka frá Samfylkingunni, hef ekki trú á að þeir taki mikið frá Sjálfstæðisflokknum.
Er svo bara ekki afar eftirsóknavert að fá flokkinn inn á þing? Ekki get ég ímyndað mér að Ómar geti setið á sér þar með grínið frekar en annarstaðar.
Allavega gerir þetta framboð kosningarnar mun meira spennandi.
Ps. fékk ádrepu fyrir stafsetningavillur (með barn í fanginu að pikka), svo breyting er af þeim sökum gerð.
Ómar formaður og Margrét varaformaður Íslandshreyfingarinnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Alstaðar hafa Femínistar áhrif.
Ég fæ mér sko ekki Hyundai Elentra aftur ef þeir ætla að haga sér svona þessir bílaframleiðendur.
Fáklæddum fyrirsætum fækkað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Fimmtudagur, 22. mars 2007
Vinsælt að fá sér í nös!
Notkun ólöglegra fíkniefna er sem fyrr alvarlegt vandamál víðast hvar í heiminum. Í skýrslum koma meðal annars fram að framleiðsla ópíums í Afganistan hafi náð nýjum hæðum á síðasta ári. Enn fremur kemur fram að misnotkun ópíumefna sé hvergi meiri en í Íran.
Þrátt fyrir að stórir farmar af kókaíni og öðrum eiturlyfjum náist virðist alstaðar vera nóg til af þessu, kúnnahópurinn er stór sem sækist eftir þessum fjanda, það er víst.
Her eru nokkrir frétta linkar, bara af Mbl.
http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1253529
http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1209396
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1232400
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1244173
http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1212388
Það væri auðvelt að fylla margar blaðsíður af fréttum fíkniefnafundum og samt komast hundruðir tonna ef þessum óþvera til neytenda, svo þessi fundur á 20.000 kg af kókaíninu er bara upp í nös á ketti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Miðvikudagur, 21. mars 2007
Þetta er snarvitlaust fólk.
Klerkur, er það ekkii eitthvað svipað og prestur? trúarleiðtogi? og gefandi út stríðsyfirlýsingar, SAMA HVAÐ ÞAÐ KOSTAR.
Í sjónvarpsávarpi sem var sjónvarpað um gjörvallt Íran sagði Khamenei að Íranar væru staðráðnir í því að standa fast á sínu, hvað varðar kjarnorkuáætlun landsins. Sama til hvaða aðgerða alþjóðasamfélagið mun grípa til.
Er þetta ekki eitthvað í svipuðum dúr og færslurnar hjá mér sem fór fyrir brjóstið á sumum?
Æðsti klerkur Írans: Íranar reiðubúnir að grípa til ólögmætra aðgerða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Miðvikudagur, 21. mars 2007
Jákvætt viðhorf við virkjunum!
Ég var að lesa umsögn um Hooverstífluna og þar er sko ekki neikvæðar lýsingar í gangi og virkjunin gleðimál.
Hlutverk Hooverstíflunnar er margþætt: *Hún dregur úr flóðahættu; *hún geymir á bak við sig vatnsforða til *áveitna, *neyzlu, *iðnaðarþarfa og framleiðslu *rafmagns; *hún myndaði risastórt lón, þar sem lifir mikið af fiski og ýmiss konar dýralíf þrífst á bökkum þess auk þess sem svæðið umhverfis er mjög vinsælt til útivistar.
Í vorleysingum flæddi áin víða um sléttur, olli manntjóni og eyðilagði uppskeru. Á haustin varð áin oft kornlítil, of lítil til áveitna. Áður en hægt var að virkja ána, urðu fulltrúar hinna 7 fylkja í BNA og Mexíkó, sem að ánni liggja, að hittast og komast að samkomulagi um nýtinguna. Þeir hittust árið 1922 og niðurstaðan varð Coloradosamningurinn, sem var undirritaður í nóvember. Samkvæmt samningnum var ársvæðinu skipt í efri og neðri hluta og helmingur meðalrennslis árinna tilheyrði hvorum. Hooverstíflan var ekki sízt byggð til að koma í veg fyrir flóð og stuðla að jafnri dreifingu vatns allt árið um kring.
Virkjunin kostaði $165 milljónir, er henni var lokið, og stofnkostnaðurinn hefur verið endurgreiddur með vöxtum með orkusölu. Fimmtán stórir kaupendur í Nevada, Arizona og Kaliforníu kaupa orku samkvæmt samningum, sem renna út árið 2017. Mestur hluti þessarar orku, 56%, fer til kaupenda í Suður-Kaliforníu, 19% til Arizona og 25% til Nevada. Hagnaður af orku-sölunni fer til reksturs og viðhalds virkjunarinnar. Hagnaðurinn var líka notaður til að auka afkasta-getuna á árunum 1986-1993.
Höggmyndirnar: Flestar myndastytturnar, sem prýða mannvirki orkuversins, eru eftir norskættaða myndhöggvarann Óskar J.W. Hansen. Hann var oft spurður um merkingu listaverka sinna. Hann sagði, að Hooverorkuverið bæri byggingarsnilld Bandaríkjamanna vitni, þannig að verk hans væru minnisvarðar um hana. Hann líkti stíflunni við pýramídana í Egyptalandi og sagði, að þeir, sem berðu hana augum, spyrðu: Hvers konar menn reistu þetta stórkostlega mannvirki? Hann sagðist hafa reynt að svara þessari spurningu í víðri merkingu með höggmyndum sínum, þannig að það megi færa lofgjörð þeirra yfir á snilldargáfur mannkyns alls.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 21. mars 2007
Þetta fólk er snarbrjálað.
Er þetta ekki fólkið sem trúir á Kóraninn?
Bendi fólki sem er eins og ég að hafa aldrei lesið trúar bókina þeirra á að lesa Ahugasemdir Skúla Skúlasonar við þessari færslu:: http://partners.blog.is/blog/partners/entry/151514/
Það er bara ekkert skrítið að þetta fólk sé klikkað ef það trúir á þetta rit, og þetta fólk er staðráðið í að eiga í ófriði svo lengi sem heimurinn verður til.
Dæmdur í 30 ára fangelsi fyrir að rífa augun úr eiginkonu sinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
Miðvikudagur, 21. mars 2007
Stórkostlegasta náttúrusmíð heims.
Miklagljúfur (Grand Canyon) eru í norðanverðu Arizonaríki. Það er einhver stórkostlegasta náttúrusmíð heims. Coloradoáin hefur sorfið þetta 349 km langa og allt að 1660m djúpa gljúfur á 7 milljón árum niður í skógi vaxna Kaibabhásléttuna.
Áður en þessi útsýnispallur kom til sögunnar var nánast eina leiðin til að skoða gljúfrið að fara með þyrlu í útsýnisflug þar.
Þetta segir á vef Ferðaheima þar sem góð umsögn er um miklagljúfur og sögu þess.
Video af nýja útsýnispallinum >hér< ATH: Videoið byrjar með smá auglýsingarugli frá CNN
Skoða video í Media Player: >1<
Væri ekki athugandi að reysa útsýnisstað uppá td. Vatnajökli, snæfellsjökli, og jafnvel YFIR Kárahnjúkum og þá gert með stæl eins Indjánarnir gera við Miklagljúfur?
Indjánahöfðingjar og fyrrverandi geimfari í 1.200 metra hæð yfir Miklagljúfri | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Þriðjudagur, 20. mars 2007
Ekkert má nú!
Það þjónar bara ekki orðið nokkrum tilgangi að eiga bíla sem eru gefnir fyrir allt að 300 0g 400 km hraða? og svo má maður ekki einusinni hafa utanáliggjandi sól og eða skítavörn utaná bílrúðunum, hvenær fer lögreglan að kanna hvort einhver hafi gleymt að riksuga bílinn sinn?
Þessari frétt snéri Partners bara uppí grín, sennilega vegna þess hve ánægður hann er með störf lögreglunnar, samt skrítið að ökumenn virðast aldrei keyra hraðar en í vitlausu veðri, er ekki búið að vera skítaveður undanfarna daga? Keflavíkur lögreglan er söm við sig. Hraðaakstur á aðeins heima á einum stað og þar er fólk aldrei tekið, ekki einusinni fyrir drullugar eða klakabrynjaðar rúður.
21 tekinn fyrir hraðakstur; einn tekinn fyrir að skafa ekki af bílrúðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Tenglar
Ýmislegt áhugavert::
- Heimilissíðan Guðbjörg Sól Sigfúsdóttir
- Jólasíða Allt jóla
- Gestabókin Kveðjur
Nýjustu færslur
- Langt um liðið :)
- Vísnagáta 31 okt.
- Vísnagáta 28/10.
- Vísnagáta 26/10.
- Vísnagáta dagsins 25/10.
- Vísnagáta 19 okt.
- Vísnagátan 17 okt.
- Spurningaleikur Kalla Tomm!!
- Vísnagáta 14 okt.
- Vísnagáta 12 okt.
- Vísnagáta dagsins 8 okt.
- Vísnagáta dagsins 7 okt.
- Vísna gáta dagsins 6 okt.
- Vísnagáta dagsins 5 okt.
- Vísnagáta dagsins 4 okt.
Bloggvinir
- Alfreð Símonarson
- Anna Benkovic Mikaelsdóttir
- halkatla
- Ari Guðmar Hallgrímsson
- Baldvin Jónsson
- Birgir Leifur Hafþórsson
- Bjarni Harðarson
- Elsa Rut Jóhönnudóttir
- Eygló Þóra Harðardóttir
- Eyjólfur Kristinn Vilhjálmsson
- Eysteinn Skarphéðinsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Eyþór Jónsson
- Fannar frá Rifi
- Fararstjórinn
- Friðjón R. Friðjónsson
- Gestur Halldórsson
- Guðfríður Lilja
- Guðmundur Jónas Kristjánsson
- Guðmundur Ragnar Björnsson
- Svava frá Strandbergi
- Guðrún Magnea Helgadóttir
- Gylfi Björgvinsson
- Hafsteinn Karlsson
- Hallur Guðmundsson
- Hannes Sigurbjörn Jónsson
- Haraldur Haraldsson
- Haukur Nikulásson
- Hrannar Baldursson
- Hrönn Sigurðardóttir
- Jens Guð
- Jón Axel Ólafsson
- Jónína Benediktsdóttir
- Kolbrún Baldursdóttir
- Kolgrima
- Kristján Jónsson
- Kristín Katla Árnadóttir
- Margrét Elín Arnarsdóttir
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Páll Vilhjálmsson
- Ragnar Sigurðarson
- Sigmar Guðmundsson
- Sigurjón Benediktsson
- Sigurður Sigurðsson
- Stefán Friðrik Stefánsson
- Viggó H. Viggósson
- Vilborg Traustadóttir
- gudni.is
- Ása Hildur Guðjónsdóttir
- Ólaf de Fleur Jóhannesson
- Ólafur Ragnarsson
- Ólafur fannberg
- Ólöf Nordal
- Óskar Þ. G. Eiríksson
- Örvar Þór Kristjánsson
- Þóra Hermannsdóttir Passauer
- Birgir R.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar